Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Side 26
Það eru margir sem hafa stundað sjóinn um lengri eða skemmri
tíma, en síðan ákveðið að fá sér vinnu í landi við léttari störf og
geta verið í daglegum samvistum við fjölskyldu sína. Einn þessara
manna er Hilmar Vignir Guðmundsson sem vann á dýpkunarskipi
og síðan við fiskveiðar. Rakel Guðmundsdóttir rœddi við Hilmar
um störf hans til sjós en hann segist hafa verið óheillakráka
Grálúðan bdt mig
t nefið!'
Hilmar Vignir Guðmundsson.
Hilmar Vignir Guðmundsson er einn
af þeim sem hafa upplifað ævintýri á
sjónum. Hilmar hefur unnið við ýmislegt
á lífsleiðinni og var meðal annars bæði á
dýpkunarskipi og á togara í nokkur ár
þegar hann var yngri. Hann er 37 ára
fjölskyldufaðir í Kópavoginum og starfar
í dag í álverinu í Straumsvik. Fyrir 15
árum stundaði hann nám í viðskipta-
fræði við Háskóla íslands og kláraði þrjár
annir þar. Náinn frændi Hilmars vann á
dýpkunarskipi og þannig komst hann í
kynni við starfið. Hilmar vann stundum
með frænda sínum i afleysingum á dýpk-
unarskipinu Reyni, en þá var verið að
dýpka höfnina í Hafnarfirði. Innan tiðar
kom upp sú staða að Hilmari var boðið
það tækifæri að fara með skipinu kring-
um landið og dýpka hafnir um allt land.
Honum leist mjðg vel á þetta, hætti i há-
skólanum á miðri önn 1989 og fór á vit
ævintýranna.
Bestu ár llfsins
- Hvemig var að vera á dýpkunarskip-
inu?
„Þetta var mjög skemmtilegur tími,
það var góður mórall og skemmtilegt
starfsfólk. Ég fór hringinn um landið að
dýpka hafnir fyrir stóra togara og það er
frábært að kynnast landinu sinu á þenn-
an hátt. Ég var alltaf að kynnast nýju
fólki á nýjum stöðum og það var alltaf
gaman. Við vorum flottir strákar, meira
og minna ógiftir og vorum nýjir á hverj-
um stað. Það má segja að þetta hafi verið
bestu ár lífs míns, þetta var svo spenn-
andi og skemmtilegt."
- Var þetta mikil vinna?
„Við vorum yfirleitt á 12 tíma vöktum
um borð og svo fórum við í land og
skemmtum okkur. En þetta var mikil
vinna að sjálfsögðu, enda lyftum við
okkur upp þegar við fengum hvíld. Þá
fórum við á bar sem var nálægt höfninni
sem við vorum að vinna en við bjuggum
í rauninni um borð. Við vorum eins og
villimenn, unnum mikið og bjuggum í
þessum drulludalli. Þetta var samt gríð-
arlegt ævintýri!"
- Var mikið verið að skemtnta sér?
„Það var aldrei fyllerí um borð en við
leituðum að djammi þegar við komum í
land. Það var ekkert annað hægt að gera.
Við vorum ungir menn og vildum
skemmta okkur. Við stoppuðum á hverj-
um stað fyrir sig allt frá viku og upp í
þrjá mánuði. Þetta var allt öðruvísi en að
vera á togara, þar var maður stundum í
mánuð í frystitúr. Maður fékk einn sólar-
hring í hvíld fyrir hverja viku sem maður
var á sjó. Þannig að ég fékk fjóra sólar-
hringa í fri áður en ég fór svo út á sjó
aftur.“
Blóð út um allt
- Slasaðist þú einhvemtímann á sjónum?
„ Já, ég var alltaf að slasa mig. Ég er
mjög óheppinn hvað það varðar. Þegar
við vorum að dýpka höfnina i Bolungar-
vík þá fórum við til ísafjarðar á pöbb.
Við strákarnir vorum að fá okkur bjór og
slaka á í rólegheitunum. Svo þurfti ég að
fara á klósettið og það var hilla fyrir ofan
hlandskálina þar sem ég tyllti annarri
hendinni á meðan ég lauk mér af. Fyrir
aftan mig var einhver maður með
drykkjulæti en ég þóttist ekki taka eftir
því. Svo vissi ég ekki betur en að ölkrús-
in hans var brotin á hillunni við hliðina
á hendinni á mér. Glerbrotin fóru á kaf
inn í höndina og það fór blóð út um allt
klósettið, ég varð alveg brjálaður. Sam-
starfsfélagarnir mínir hjálpuðu mér og ég
fór beint upp á spítala. Á þessum tíma
var bara saumað fyrir sárið og ekki rann-
sakað neitt frekar. Ég var með umbúðir á
hendinni og reyndi að vinna um borð
mjög fljótlega eftir þetta. En þá tók ég
eftir því að fingurnir voru eitthvað
skrýtnir og virkuðu ekki. Viku seinna fór
ég suður á spítala til að láta athuga þetta
og þá kom í ljós að allar sinarnar voru í
sundur. Ég þurfti að fara til sérfræðings
og hann tengdi sinarnar saman, hann
þurfti að tengja baugfingur og litla fingur
á eina sin svo þeir puttar virka svolítið
asnalega.“
- Varstu óheillakrákan um horð?
26 - Sjómannablaðið Víkingur