Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Side 29
Árni Bjarnason forseti FFSÍ á málþingi um stjórnun fiskveiða
framsali aflaheimilda
Nemendafélög Stýrimannaskólans og
Vélskólans stóðu fyrir málþingi föstudag-
inn 26. mars sem var vel sótt af hags-
munaaðilum og stjórnamálamönnum.
Var yfirskrift málþingsins: Stjórn fisk-
veiða. Þetta var annað málþing skóla-
nemenda um atvinnu- og hagsmunamál
þeirra sem stunda sjó og mennta sig fyrir
þær greinar, en fyrr í haust fjölluðu þeir
og boðsgestir þeirra um framtið kaup-
skipaútgerðar á íslandi.
Á fundinum flutti formaður Félags
skipstjórnarmanna, Árni Bjarnason, er-
indi um stjórn fiskveiða og fer erindi
hans í heild hér á eftir.
Sennilega hefur ekkert eitt málefni
fengið eins mikla umfjöllun eða valdið
jafnmiklum deilum og sá málaflokkur,
sem ætlunin er að reifa hér á þessum
fundi. Stofnaður var stjórnmálaflokkur
sem í sinni fyrstu kosningabaráttu helg-
aði sig alfarið þessu máli og náði tveimur
mönnum inn á þing og hefur síðan bætt
urn betur með sjávarútvegsstefnuna í fyr-
irrúmi sem mál málanna.
Sú þróun sem átt hefur sér stað frá því
að svarta skýrslan svokallaða kom út árið
1983 er með þeim hætti að óhætt er að
líkja við byltingu. Kvótakerfið hefur td.
kollvarpað öllum forsendum senr leggja
þarf til grundvallar varðandi fjölmarga
þætti þjóðlífsins. Til dæmis nám ykkar
nemendur góðir hér við sjómannaskól-
ann. Þegar ég var hér við nám fyrir rúm-
um 30 árum þá gekk annar hver nem-
andi hér með útgerðarmanninn í magan-
um. Draumur margra nemendanna var
að eignast eigin bát, verða sjálfs síns
herra og engum háður. Nú á thnum er
aðstæður gjörbreyttar, möguleikar til að
byrja frá grunni eru allverulega þrengri
en áður var og ef við lítum yfir greinina í
heild þá er sviðið gjörbreytt .Við þessar
mjög svo ólíku aðstæður, hljóta það að
vera aðrir þættir sem vekja áhuga manna
fyrir að námi í þessurn skóla. Eitt hefur
þó ekki breyst hvað varðar réttindanám
til skipstjórnar og vélstjórnar, en það er
sú áskorun sem í því felst að hafa
mannaforráð, stjórna skipi og bera
ábyrgð á áhöfn og þeim miklu verðmæt-
um sem skipstjórnarmönnum og vél-
stjórum er trúað fyrir. Auk þess má segja
Sjómantiaskólinn