Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Page 32
Hilmar Snorrason skipstjóri
ur
heimi
Risi hverfur úr skipaheiminum
Á síðasta ári var tilkynnt að skiparisinn Niarchos ætlaði að
hætta starfsemi eftir 70 ár. Mörgum mun verða eftirsjá af Ni-
archos sem á sínum tíma sameinaðist flota Onassis. í kjölfar til-
kynningarinnar urðu keppinautarnir æstir í að verða fyrstir til
að kaupa ódýrt þau skip sem útgerðin átti í smiðum en það voru
„bara“ þrjú risaolíuskip (VLCC) í, tvö aframax olíuskip og tvö
nýlega afhent panamax búlkskip.
Ekki ánægðir með leiguna
Ekki er alltaf hægt að segja að Norðurlöndin standi ávallt
saman og að sameiginlegur norrænn vinnumarkaður sé til fyrir-
myndar. í október s.l. tókst finnska sjómannafélaginu að koma í
veg fyrir að finnska ekjuskipið Bore Mari fengi leigusamning til
siglinga til Bornhólms. Leigutakinn hafði sett þau skilyrði að
hluti áhafnar finnska skipsins yrði að vera danskur en sjó-
mannafélagið hafnaði því með öllu og mótmæli þeirra urðu til
þess að útgerð skipsins ákvað að hætta við leiguna. Siðan þá
hefur skipið verið i reiðileysi þar sem erfitt hefur reynst að finna
verkefni fyrir það.
Ósamlyndi
Sá sorglegi atburður varð um borð í spænsku ferjunni Volcán
de Tauce, að ágreiningur kom upp á milli stýrimanna skipsins
með þeim afleiðingum að annar stýrimaður drap yfirstýrimann-
inn. Skipið lá við bryggju á Las Palmas á Kanaríeyjum þegar at-
burðurinn gerðist en báðir mennirnir höfðu starfað saman til
margra ára.
Að ferðast með skemmtiferðaskipi getur breytst í martröð eins og
dcemin sanna.
Vænt sem er grænt
Það varð uppi fótur og fit um borð í skemmtiferðaskipinu
Oceana þegar margir kvenkyns farþegar fóru að fá grænt hár eft-
ir að hafa stungið sér til sunds í sundlaug skipsins. Eftir tals-
verða rannsókn varð ljóst að ekki var vatninu í lauginni um að
kenna. í ljós kom að konurnar með græna hárið höfðu allar not-
að tækifærið, þegar þær komu um borð, að fara í hárgreiðslu og
litun á hárgreiðslustofu skipsins. Efni það sem notað var við
háralitun tók efnabreytingum með fyrrgreindum afleiðingum
þegar frúrnar skelltu sér í laugina. Þetta voru reyndar ekki einu
raunirnar sem farþegarnir urðu fyrir i þessari ferð skipsins því
yfir 100 farþegar fengu slæma magakveisu.
Nýja drottníngín verður ekki lengi stærst farþegaskipa á heimshöfun-
um
Stærra skal það vera
Það var ekki fyrr búið að sjósetja Queen Mary 2 og dást að
henni sem stærsta farþegaskipi heims en að búið var að leggja
inn pöntun á smíði enn stærra farþegaskips. Það er einn af
keppinautum Cunard sem það gerði Royal Caribbean Cruises.
Skipið sem mun geta tekið 3600 farþega verður smíðað hjá
Kværner skipasmíðastöðinni í Finlandi. Verður það tilbúið árið
2006 og mun kosta litlar 760 milljónir US dollara. Bendir allt til
að nú sé skemmtiskipaútgerðir að rétta aftur úr kútnum eftir
erfið ár að undanförnu.
Alvarlegur samdráttur
Verulegar áhyggjur eru í Japan vegna fækkunar þarlendra sjó-
manna. Samkvæmt nýlegum spám er gert ráð fyrir að fjöldi jap-
anskra sjómanna verði einungis 2.500. Fjöldi erlendra sjó-
manna á japönskum skipum hefur aukist stöðugt eftir að þar-
lend yfirvöld heimiluðu útlenda sjómenn um borð í kaupskipin.
Á síðasta ári voru 33.000 erlendir sjómenn við störf á japönsk-
um skipum.
Gylliboð?
Harla erfitt getur verið fyrir þjóðríki að verjast innreið er-
lendra sjómanna á skip sín en einnig getur verið erfitt að finna
þeim störf á annara ríkja þjóðfánum. Pakistanar hafa sett nýjar
reglur sem þeir vona að stuðli að auknum störfum þarlendra
sjómanna á skip sem sigla til landsins. Yfirvöld bjóða nú út-
gerðum sem til landsins sigla með allt að 80% pakistanska sjó-
menn um borð 25% afslátt af hafnargjöldum. Fyrir 11. septem-
ber voru pakistanskir sjómenn vinsælir og ódýrir sjómenn en
hryðjuverkaótti heimsbyggðarinnar gerðu þá að hættulegustu
32 - Sjómannablaðið Víkingur