Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Síða 34
sjómönnum heims sem enginn vildi lengur hafa um borð hjá
sér. Pakistanskir sjómenn hafa því liðið mjög fyrir gjörðir
Osama Bin Laden.
Ruslið austur
Varaforseti Malasíu, Abdullah Ahmad Badawi, vandaði ekki
kveðjurnar til Evrópusambandsins og enn síður til Bandaríkj-
anna i opnunarræðu ráðstefnu um sjóflutninga í Asíu s.l. haust.
Sagði hann að Asíuríki yrðu illilega fyrir barðinu á öryggisæði
Vesturlanda sem skaðaði svo um munaði hagsmuni þeirra. Þá
sagði hann að aðgerðir þessa aðila í að banna olíuskip með ein-
földum byrðingi kastaði einfaldlega tímasprengjum til Austur-
landa sem ekki hafa tekið þá stefnu enn sem komið er að banna
þannig olíuskip. Skip sem gerð verði burtræk frá Evrópu og
Bandaríkjunum munu taka stefnuna til Asíulanda þar sem þau
fá að vera í friði.
Franska flugmóðurskipið Clemenceau sem skilað var aftur heim.
Þetta gekk ekki
Neyðarleg uppákoma var hjá franska flotanum þegar þeir
þurftu að taka aftur við gömlu flugmóðurskipi sem þeir höfðu
áður selt í brotajárn. Flugmóðurskipið Clemenceau var smíðað
árið 1961 og var því lagt 1997. Hugmyndir voru um að sökkva
því og mynda þannig rif til að verja höfnina í Toulon en frá
þeim var síðan horfið. Eftir að hafa legið um nokkurra ára skeið
í Toulon var það loks selt til Spánar til niðurrifs. Spánska fyrir-
tækið hafði reyndar aðrar hugmyndir uppi varðandi rif á skip-
inu því þeir höfðu ekki ætlað sér að annast það sjálfir heldur
láta framkvæma niðurrifið í Tyrklandi. Áður en skipið komst til
Tyrklands var ferð þess stöðvuð þar sem í skipinu er mengaður
úrgangur og bannað er að flytja hann til þriðjaheims landa.
Urðu Frakkarnir því að taka skipið aftur til sín og hugsa Spán-
verjunum þegjandi þörfina á þessum grikk þeirra.
Franska vonin
Frakkar eru lika komnir með skráningafána sem er skamm-
stafaður FIR eða French International Register. Það var í janúar
sem hann var formlega opnaður og gera þarlend stjórnvöld ráð
fyrir að franski kaupskipaflotinn muni tvöfaldast á fyrsta árinu
en einungis er krafa um að um borð séu franskir skipstjórar og
stýrimenn. Grunnurinn er að sjálfsögðu eins og allir aðrir
skráningarfánar að bjóða upp á skattafríðindi til sjómannanna
sem koma sem styrkir til útgerðanna. Á sama tíma eru íslenskir
stjórnmálamenn að gera áætlanir um að afnema sjómannaafslátt
á sama tíma og aðrar þjóðir fella niður tekjuskatt af sjómönn-
um.
Fleiri skip
Bandaríska ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita fjárhagsaðstoð
til flutningaaðila í þeim tilgangi að efla innanlandssiglingar.
Með þessu er markvisst verið að koma flutningum af þjóðveg-
um landsins og sjóleiðina. Sama er uppi á teningnum í Evrópu
þar sem mikið er lagt upp úr þvi að koma vörum sjóleiðina á
milli. Hér á landi er nú stefnan vist allt önnur þrátt fyrir að
vegakerfið hér á landi sér margfalt minna i sniðum en í ná-
grannaálfum okkar.
Lögfræðingar hrella
Eins og þekkt er í Bandaríkjunum þá eru lögfræðingar til í að
lögsækja allt og alla sem hefur orðið til þess að fólk vill ekki tjá
sig um nokkurn hlut né skipta sér af. Þetta hefur því leitt af sér
dómsmálastríð. Rannsóknarnefnd sjóslysa í Bandaríkjunum er í
miklum vanda vegna rannsóknar á slysinu þegar ferja í New
York sigldi á bryggju í október s.l. með þeim aneiðingum að 10
farþegar lét lífið. Yfirmenn skipsins hafa neitað með öllu að gefa
skýrslur til rannsóknarnefndarinnar á þeim forsendum að þeirra
vitnisburður gæti orðið þess valdandi að lögfræðingar ættingja
þeirra sem létust og annarra farþega um borð myndi lögsækja
þá vegna slyssins. Liggur því fyrir að stefna þurfi mönnunum
fyrir dóm til að fá af þeim skýrslur. Því er svo við að bæta að
einn þeirra farþega sem lét lífið um borð í ferjunni var einn
þeirra sem komust af þegar ferjan Estonia fórst.
Nú skal drykkjan stöðvuð
Norsk siglingamálayfirvöld hafa verið að hugleiða innleiðingu
reglna um að banna með öllu notkun áfengis urn borð í öllum
norskum skipum jafnt flutninga- farþega og fiskiskipa. Dóms-
málaráðuneytið er þó ekki sammála siglingastofnuninni og vill
þó hafa prómill mörkin lág. Danska skipafélagið A.R Möller
hefur nú bannað notkun áfengis um borð í öllum Mærsk skip-
um félagsin. Aður náði áfengisbann einungis til skipa félagsins
sem þjónustuðu olíuiðnaðinn en á öðrum skipum var svokölluð
„tveir bjórar á dag“ áfengisstefna. í stað tveggja bjóra mátti
neyta léttvíns með leyfi skipstjóra. Samhliða áfengisbanninu
býður útgerðin skipverjum sem eiga við áfengisvandamál að
stríða upp á aðstoð. Bannið var sett í kjölfar slyss um borð í
einu skipa félagsins.
Næst stærsta skip heims Sea Giant, hér sem Hellas Fos, hefur lokið
sinni slðustu siglingu.
Risi kveður
Nú er næst stærsta skip sem nokkru sinni hefur verið byggt í
heiminum komið á sína endastöð eða í fjöru hjá brotajárnsstöð
í Pakistan. Skipið Sea Giant var eitt fjögurra systurskipa smíðað
árið 1979 og var stærð þess 555.0001 burðartonn. Var söluverð
þess 232 US dollarar fyrir hvert 75.272 tonna af stáli sem í skip-
inu er. Stærsta skip heims er enn í notkun þótt siglingum þess
hafi fækkað og það nú notað sem geymsluskip en það er í
norskri eigu og heitir Jahre Viking. Ekki hafa heyrst áform urn
að það sé á leið í brotajárn en það skip er 10.000 tonnum
stærra en Sea Giant.
Yngri skipstjóra
Rannsóknarstöðin, Seafarers International Research Centre, i
Cardiff hefur farið fram á styrk frá Evrópubandalaginu til að
setja á laggirnar verkefni sent felur í sér að stöður skipstjóra og
yfirvélstjóra verði skipaðar ungum mönnum allt niður í 25 ára
aldur. Á verkefnið að hefjast á þessu ári og er það von manna
að yngir menn fáist til sjós ef verkefnið tekst vel. Japanir hafa
líst miklum áhuga á að fylgjast með þróun verkefnisins.
34 - Sjómannablaðið Víkingur