Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Page 35
Nýr fáni?
Fyrir nokkrum árum var talað um það innan Evrópubanda-
lagsins að öll skip bandalagsríkjanna skyldu sigla undir stjörnu-
prýddum bláfána sambandsins. Hart var barist gegn þessum
áformum sem á endanum var horfið frá. Þá var reynt að koma
stjörnuhringnum upp í vinstra horn þjóðfánanna og naumlega
tókst að afstýra þeirri að gerð. Nú hafa spánverjar lagt til að
settar verði evrópskar skipaskráningareglur sem vonir þeirra
standi til að verði að veruleika í ár. Þetta hefur mælst misvel
fyrir meðal hagsmunaaðila sem ekki vilja sá slíkar aðgerðir sem
geta haft veruleg áhrif á skiparekstur Evrópurlkja. Nú er að sjá
og bíða því ekki höfum við möguleika á öðru en að taka við því
sem ákveðið er i Brussel.
Með herskipahönnun gámaskipa mun svona útlit gámaskips heyra sög-
unni til.
Mútur eður ei
Hann hafði nú ekki neitt slæmt i hyggju sænski skipstjórinn
sem var að endurnýja atvinnuskírteini sitt fyrir skömmu. Hann
vissi að greiða þyrfti fyrir endurnýjunina rúmar 2000 kr. sænsk-
ar en ákvað að láta samt rúmlega þá upphæð fara með í umslag-
inu með umsókninni. Fimm þúsund krónur i peningum var sú
upphæð sem hann lét í umslagið og ætlaði hann umframfjár-
hæðina sem framlag til stofnunarinnar og sem þakklætisvott.
Eitthvað fór þetta þó öðru vísi en til stóð því karlinn var um-
svifalaust kærður fyrir mútur og var síðar dæmdur til sektar.
Svona er farið með menn í sviaríki sem vilja styrkja opinberar
stofnanir.
Misskilin regla
Samkvæmt upplýsingum frá tryggingaklúbbnum North of
England þá er siglingaregla 10 mest ntisskilda siglingareglan
meðal skipstjórnarmanna. Sú regla fjallar um siglingar á að-
skildum siglingaleiðum og þrátt fyrir að þessi regla orsaki marg-
an áreksturinn þá séu reglur um aðskildar siglingaleiðir mjög
góðar og hafa skilað öruggari siglingum. Málið sé fyrst og
fremst misskilningur á túlkun siglingareglna. Við athugun
þeirra hefur komið í ljós að árverkni skipstjórnarmanna minnk-
ar til muna þegar þeir eru komnir í aðskyldar siglingaleiðir þar
sem þeir telja sér trú urn að öryggi sé tryggt með þeim. Þessu er
því miður ekki þannig varið. Þá eru margir sem setja stefnur
skipa sinna i miðja siglingaleiðina sem gerir þar með skipum
með meiri ferð erfiðara að komast frarn úr. Af þeirri ástæðu að
siglingaregla 10 er misskilin hefur NoE gefið út veggspjald lil
að minna skipstjórnarmenn á regluna. Sjá nánar í greininni
Sigling um Netið.
Framtíðin
Oft hefur á þessum síðum verið hugað að framtíðarsýn í
hönnun skipa en nú er enn ein ný hugmynd á lofti gagnvart
hönnun gámaskipa. Gámaskipin verða að vera þannig hönnuð
að þau geti staðist hryðjuverkaárásir en það er mat manna að sú
tegund skipa sé skotmark hryðjuverkamanna. Hafa skipaverk-
fræðingar horft til hönnunar herskipa með framtíðarhönnun
gámaskipa í huga. Þau verða þá væntanlega brúkleg í rneira en
að flytja gáma sérstaklega ef þau verða vopnuð fallbyssum í
framtíðinni!
Góður kostur
Stöðugt bætast áhugaverðir siglingafánar í hópinn sem lokka
skipaeigendur til að flytja skip sín frá eigin þjóðfána og á „þægi-
legri“ fána. í byrjun þessa árs var til dæmis íslenska olíuskipið
Keilir færður af íslenska fánanum yfir á færeyskan fána þar sem
það þykir rneira spennandi og ódýrara en að hafa okkar fallega
fána í skut. Nýjasti fáninn sem dregur til sín skipaeigendur er
belgíski fáninn. Belgísk alþjóðaskipaskráning var opnuð á síð-
asta ári og voru þá strax skráð undir fánann skip sem áður
höfðu verið á fána eyjunar Mön og Bahama fána. Belgíski kaup-
skipastóllinn hafði á síðustu 12 árurn horfið smátt og smátt yfir
á fána Luxemburg en stjórnvöld sáu sig knúin til aðgerða til að
endurheimta kaupskipastól á ný. Þá er Suður-Afríska skipafélag-
ið Safmarine, sem er í eigu Mærsk Sealand risans danska, að
setja öll sín skip undir þennan fána. Nú er spurningin sú hvort
íslensk stjórnvöld hafi einhvern áhuga á því að lokka til sín
stórar útgerðir með því að bjóða upp á íslenska alþjóðaskrán-
ingu skipa. Við verðum brátt meðal ríkja heims sem ekki búa
yfir kaupskipaflota vegna ofurstolts og trúar á, að ekki þurfi að
liðka til, svo farmennska leggist ekki endanlega af.
VARAHLUTIR - RÁÐGJÖF - EFTIRLIT - ÞJÓNUSTA
M
pJ
mitech
K.
can
Gtkuíp
'NTERNATIONAL
#DAEVUOO
IMIWOO Hf AVY INOUtlTBir.S irO
B5Ífl[kyZ1íralannl
Sa'fepsÍp’seGg
Sjókopar
Leg u r
Pakkdósir
Varahlutir
Dælur
Austurskiljur)
Lokar
Bindivélar
Vélar
Raskjulínur
Frystipönnur
Tengi
Ásþétti
SKIPA & VÉLAEFTIRLITIÐ
M.SIGURÐSSON EHF
Smiöshöfði 13-110 Reykjavík
Sími: 587 1503 Fax: 587 4167
GSM: 894 4790/899 4790/893 4790
E-mail: msig@msig.is -www.msig.is
W
Sjómannablaðið Víkingur - 35