Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Blaðsíða 37
kolsýrlingur og hann er talinn helsta or-
sök æðaskemmda hjá reykingafólkiHann
dregur úr getu blóðsins til að flytja súr-
efni og stuðlar að því að vöðvar líkam-
ans, þar með talinn hjartavöðvinn, fá
minna súrefni en ella. Við það starfar
hjartað ekki eins vel og æskilegt er.
Reykingar hafa einnig áhrif á hjarta- og
æðakerfi af öðrum sökum.
Vitað er að:
Reykingar auka magn blóðfitu (kól-
esteról í blóði).
Reykingar auka likur á blóðtappa-
myndun (auka samloðun blóðflagna sem
getur leitt til blóðtappa).
Reykingar herða á púlsinum, sem er
aukin vinna fyrir hjartað.
Um leið og hætt er að reykja batnar
súrefnisflæðið lil hjartans. Ef viðkomandi
hefur fengið kransæðastíflu og hætt reyk-
ingum í kjölfarið, minnkar hættan á
annarri kransæðastíflu unt helming. Að
hætta að reykja er einnig það besta sem
hægt er að gera gegn æðakölkun í fótum.
Ef hætt er að reykja minnka líkurnar á
hjartaáfalli stórlega.
Hreyfingarleysi
Áhrif hreyfingarleysis eru m.a. minnk-
að þol og úthald, vöðvaslappleiki,offita
o.fl. Rannsóknir sýna að regluleg líkams-
þjálfun dregur úr líkurn á kransæðasjúk-
dómi, eykur afkastagetu hjartans og hef-
ur góð áhrif á blóðflæði um líkamann.
Auk þess veitir þjálfun vellíðan, losar um
streitu, eykur sjálfstraust, styrkir
vöðvana, lækkar blóðfitu og hjálpar fólki
að losna við aukakílóin.
Með reglulegri líkamsþjálfun er átt við
30 mínútna þjálfun daglega, t.d. röska
göngu. Mælt er með þjálfun sem reynir á
hendur og fótleggi, t.d. göngu, sund,
hjólreiðar eða dans. Gott er einnig að
auka hreyfingu í dagsins önn; velja stig-
ann í stað lyflu, fara gangandi stuttar
vegalengdir í staðinn fyrir að nota bílinn
o.s.frv.
Ráðlegt er að gera þjálfunaráætlun sem
hentar viðkomandi og honum finnst
skemmtileg. Þá er auðveldara að fylgja
henni.
Offita
Offita er einn áhættuþáttur kransæða-
sjúkdóma sem oft er rætt um en allt of
sjaldan tekinn alvarlega. Þeir, sem er of
þungir, hafa oftar en aðrir háan blóð-
þrýsting, hátt kólesteról og skert sykur-
þol. Þeir eur því í margfalt meiri hættu
en aðrir að fá kransæðasjúkdóma.
Rannsóknir hafa sýnt að ef þeir, sem
eru of þungir, létta sig, hefur það áhrif á
þessa þætti, þ.e. blóðþrýstingur
lækkar,kólesteról lækkar og sykurþol
eykst. Þannig mælir allt með því að
ntegrun sé besti kosturinn fyrir þann
sem er of þungur.
Mittismálið er góður mælikvarði á það
hvort viðkomandi er of feit/ur. Fitan,
sem sest á maga og mjaðmir, virðist auka
líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum.
Oft nægir að léttast um 5-10% af lík-
amsþyngdinni til að draga verulega úr
aukaverkunum offitu. Mikil og/eða hröð
megrun er ekki æskileg til að ná auknu
heilbrigði.
Það eru litlu hlutirnir sem við gerurn
dag eftir dag sem skipta máli. Það að
gera lítils háttar breytingar á daglegum
venjum, eins og að ganga eða hjóla til og
frá vinnu, ganga stiga í stað þess að nota
lyftu, fara i sund og gönguferðir, er oft
vænlegra til árangurs en krefjandi í-
þróttaiðkun sem tiltölulega fáir geta
stundað. Röskleg ganga í 30 mínútur á
dag eykur brennsluna. Gerðu þjálfunará-
ætlun sem hentar þér og farðu eftir
henni.
Hvað mataræðið varðar skiptir mestu
máli að fæðið sé fjölbreytt, að fitu og
sykri sé stilll í hóf en borðað sé mikið af
grænmeti og ávöxtum. Ef viðkomandi
borðar meira en hann brennur fær lík-
aminn of mikla orku sem hann safnar
upp senr fituforða.
Æskilegt er að ternja sér að útbúa góð-
an mat án óþarfa fitu eða sykurs, t.d. úr
matreiðslubókunum Af bestu lyst I og Af
beslu lyst II. óhófleg streita getur haft já-
kvæð áhrif og aukið dagleg afköst en fari
hún yfir visst mark skaðar hún heilsuna
og er þá orðin ein af áhættuþáttum
hjarta- og æðasjúkdóma.
Streita
Heirnur nútímamannsins er hlaðinn
alls konar áreiti og spennu. Hraðinn er
mun meiri en áður tíðkaðist. Stundum
þarf að fást við langvinna streitu eða dag-
legt áreiti sem sífellt endurtekur sig. Lík-
aminn bregst við slíku áreiti með streitu-
viðbrögðum. Ótal breytingar verða á lík-
amsstarfseminni sem eiga að gera lík-
amann hæfari til að takast á við mögu-
lega hættu eða flýja hana.
Þetta veldur auknu álagi á hjartað. Ef
líkaminn nær ekki að slaka á leiðir það
til stöðugrar spennu sem getur valdið
vöðvabólgu, svefntruflunum, magasári og
hjartasjúkdómum. Langvinn streita er
óheppileg fyrir hjartað, meðal annars
vegna þess að hún hækkar blóðþrýsting-
inn, herðir á hjartslættinum og eykur
magn storkuþátta í blóðinu.
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir
hvað veldur streitu í eigin lífi og hvernig
hægt er að bregðast við henni.
Ákveðnir þættir auka neikvæð áhrif
streitunnar, t.d. óhófleg kaffidrykkja,
reykingar, óreglulegt mataræði, mikið
sælgætisát og sykurdrykkir.
Þeir sem eru haldnir streitu:
Finnst þeir alltaf þurfa að flýta þér.
Finnst þeir alltaf vera á síðustu stundu.
Verða fljótt pirraðir.
Eiga erfitt með að einbeita þér.
Eru gleymnir.
Finnst þeir alltaf vera þreyttir.
Eru óþolinmóðir.
Njóta ekki lífsins eins vel.
Nokkur góð ráð til að draga úr streitu:
Fyrsta skrefið er að gera sér grein fyrir
hvað veldur streitunni.
Hafa ber í huga að enginn er ómissandi.
Ekki er hægt að þóknast öllum.
Læra að hlusta á fólk.
Forðast pirring.
Ekki reyna að gera 100 hluti í einu.
Skipuleggja tíma sinn.
Raða verkefnum í forgangsröð.
Draga úr koffínneyslu og sykuráti.
Hreyfa sig reglulega.
Hafðu í huga:
Hvers ætlast þú til af sjálfri/sjálfum þér?
Minnkaðu við þig vinnuna ef þú ert und-
ir álagi.
Ertu tilbúin/n að fórna heilsunni fyrir
vinnuna?
Lærðu að segja „nei“.
Reyndu að forðast tilfinningalegt upp-
nám.
Talaðu um vandann.
Slökun getur verið hjálpleg.
Kranavogir margar stærðir
Frá 600kg - 10.000kg vogaþoli
2000kg vog til sýnis hjá okkur
tm*
EXCELl
Einfaldar í notkun með fjarstýringu.
Hleðslubatterí dugar I 150klst.
Voganemi hannaður fyrir 200% yfirþyngd
upplýsingar hjá sölumönnum
í síma 567 8888
Krókhálsi 1 • www.pmt.is