Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Síða 38
Sigling um Netið
í umsjón Hilmars Snorrasonar
Nú er fermingahátíðin í al-
gleymingi og því er hugur
þeirra sem eiga börn, ætt-
ingja eða vini sem eru að
fermast að leita út um alll að
gjöfum fyrir þau nýfermdu.
Gjafir er oft erfitt að finna
þegar til hátíða kemur en
fyrsta síðan að þessu sinni
mun leysa vanda ykkar sem
þetta lesið ef verið er að leita
að gjöf fyrir sjómann. Síða
J.H. Olsen í Kaupmannahöfn
http://www.ankerole.dk er
draumasíða sjómannsins
hvað varðar gjafir. Par kennir
margra grasa og fátt sem
hugurinn ekki girnist inn á
fallegt sjómannaheimili.
Hvaða sjómaður vill ekki
hafa skipsklukku hangandi
uppi á vegg hjá sér, en svo er
bara hvort betri helmingur-
inn sé því sammála?
Danir hafa ávallt verið
mikil siglingaþjóð og gert
mikið í því að hvetja ungt
fólk til að feta fótsporin í aðlaðandi kaupskipaflota. Siðan
http://www.skibsofficer.dk hefur að geyma upplýsingar fyrir þá
sem hafa áhuga á að gera sjómennsku að ævistarfi og hvaða
leiðir er hægt að fara til að afla sér menntunar í þeim efnum.
Því er nú svo farið að hér á landi eru ekki miklir möguleikar á
því fyrir ungt fólk að komast á sjóinn líkt og er í Danmörku en
hugsanlega er eina leiðin að hreinlega kaupa sér skip. Djurg-
ardsvarvet er að finna á http://www.djurgardsvarvet.se/ og þar er
hægt að kaupa sér skip af öllum stærðum og gerðum. Skemmti-
skip og herskip eru hugsanlegir möguleikar og þegar ég fór inn
á síðuna í lok mars var hægt að kaupa notaðan rússneskan kaf-
bát á litlar 250 þúsund evrur.
Þegar við höfum fest kaup á skipi þá er að vita hvert á að
fara. Síðan World Ports http://www.informare.it/harbs/oth-
eriuk.asp hefur tengla á hafnir um allan heim. Þar verður vafr-
arinn upptekinn lengi við að skyggnast í hafnir heimsins. Það
getur lika þurft á því að halda að rifja upp siglingaljós og jafn-
vel að reikna út vegalengdir milli hafna. Slík hjálpartól er meðal
þess sem má finna á síðu Boat Safe http://www.boatsafe.com/. Á
þessari síðu er einnig sérstök síða fyrir börnin og þeirra þátt í
sjómennsku.
En nú í aðra sálma. Nokkuð er um liðið síðan Estonia fórst í
Eystrasalti og víst er að langt verður þar til raddir þagna um
hvað gerðist. Á síðu Anders Björkmann skipaverkfræðings, The
biggest maritime scam of all times, á slóðinni http://heiwaco.tri-
pod.com/e7.htm er ítarleg umfjöllun um þetta slys og skoðanir
hans á því hvað þar gerðist. Það er ávallt eitthvað markvert um
að vera í skipaheiminum og til að fylgjast með eru sérstakar
fréttasíður ávallt vinsælar. Scandinavian Shipping Gazette er að
finna á slóðinni http://www.shipgaz.com/english/. Ef þú er leið-
ur á skjáborðinu hjá þér þá er einmitt hægt að fá skjáborðs-
myndir á þessari síðu. Annað fréttablað fyrir sjómenn er
danska vikublaðið Söfart sem við finnum á
http://www.soefart.dk/index.htm.
Svo er hér síða fyrir skipstjórnarmenn þar sem þeir geta
kynnt sér nýjasta tækið í siglingaheiminu AIS en tæki af gerð-
inni Skanti geta menn prófað á heimasíðu fyrirtækisins á slóð-
inni http://www.skanti.dk.
Eins og sagt var frá í þættinum Utan úr heimi þá hefur trygg-
ingaklúbburinn North of England gefið út veggspjöld lil leið-
beininga fyrir skipstjórnendur vegna misskilnings á 10. reglu
alþjóðasiglingareglananna þá má finna þetta veggspjald ásamt
fjölda annarra, leiðbeininga og fréttabréfa á slóðinni
http://www.nepia.com/frames/Main_Frame.htm. Einnig var sagt
frá verkefni á sama stað sem fjallar um að menn undir þrítugu
taki við sem skipstjórar eða yfirvélstjórar. Rannsóknarstofnun-
in sem að þessu verkefni stendur Seafarers lnternational Rese-
arch Centre er að finna á http://www.sirc.cf.ac.uk Þar eru mörg
áhugaverð verkefni sem rannsóknir hafa verið gerðar á.
Ekki verður sleppt að nefna íslenska síðu að þessu sinni en
nú hefur áhöfnin á Berki NK opnað heimasíðu á slóðinni
http://frontpage.simnet.is/borkurnk/. Þeir eru með alveg frá-
bæra síðu þar sem meðal annars eru ljósmyndir af öllum skip-
verjum ásamt gullkornum af göngum og myndum úr fortíð og
nútíð.
Að lokum skoðum við síðu Handelsflottans Kultur- och
Fritidsraad sem við finnum á slóðinni http://www.seatime.se/.
Hér er sænskur samstarfsaðili Víkingsins í ljósmyndakeppni
sjómanna á Norðurlöndum sem veitir sænskum sjómönnum
margvíslega þjónustu.
38 - Sjómannablaðið Víkingur
i