Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Page 46
Sjötta starfssári Sjávarútxegsskólans lokið
Hefur útskrifað
84 nemendur
Frá útskrifthmi
Nú hefur 6. árgangur Sjávarútvegs-
skóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna
verið útskrifaður. Skólinn er að mestu
leyti fjármagnaður með framlögum ís-
lands til marghliða þróunaraðstoðar. Sér-
staða skólans felst í nánu sambýli við
rannsóknarstofnanir sjávarútvegsins.
Hafrannsóknastofnunin rekur skólann í
nánu samstarfi við Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins, Háskóla íslands, Háskól-
ans á Akureyri og fleiri stofnana og fyrir-
tækja í sjávarútvegi.
Skólinn býður upp á sex mánaða nám
og starfsþjálfun fyrir fagfólk og sérfræð-
inga frá þróunarlöndunum og löndum
fyrrum lýðvelda Sovétríkjanna. Áhersla
er lögð á einstaklingsmiðað nám sem
nýtist nemendum i starfi heima fyrir.
Nemendur eru frá löndum sem sýnt hafa
sérstakan áhuga á samstarfi við íslend-
inga á svið sjávarútvegs eða sóst eftir að-
stoð. Þeir eru sérstaklega valdir með til-
liti til þeirra áherslna sem stofnanir
þeirra um þróun til næstu ára og miðað
er við að gefa hóp fagfólks frá hverju
landi tækifæri til að stunda nám hér á
nokkurra ára tímabili.
Núna útskrifuðust 22 nemendur frá 15
löndum, þar af 6 konur, en til þessa hafa
þá alls lokið námi við skólann 84 ein-
staklingar frá 20 löndum, þar af 27 kon-
ur. í hópnum eru meðal annars þrír
nemendur sem taka þátt í verkefnum
Þróunarsamvinnustofnunar í Namibíu,
Malawi og Uganda. Á fyrstu sex árum
skólans hafa alls 9 manns frá Uganda
lokið námi og 7 frá Mósambíkk, Kúbu og
Víetnam.
Á siðasta ári var sú nýbreytni í starf-
semi skólans að þróað var námskeið fyrir
verkstjóra i fiskvinnslum í Víetnam, í
samvinnu við tvo þarlenda háskóla, þar
sem meðal annar komu að fyrrum nem-
endur skólans. Því verkefni er nú að
ljúka. Gert er ráð fyrir að framhald verði
á slíkri starfsemi, en með slíkum nám-
skeiðum er lögð aukin áhersla á að sú
þekking og færni sem nemendur skólans
öðlast hér á landi nýtist í heimalöndun-
um. Unt leið styrkir þessi starfsemi enn
frekar stoðir skólans og fagþekkingu
þeirra sem taka þátt i kennslunni.
Góð samvinna
Þessu sinni skiptust nemendur í fjög-
ur mismunandi svið sérhæfingar, þ.e.
gæaðastjórnun í meðhöndlun fisks og
vinnslu, veiðitækni, veiðistjórnun og
mótun nýtingarstefnu, og loks umhverf-
isfræðum. Að loknum sex vikna inn-
gangsnámskeiði og fimm vikna sérnámi
taka við verkefni sem unnin eru í nánu
samstarfi við leiðbeinendur. Verkefnin
voru ýmist sótt í viðfangsefni innan-
lands, eða byggðu á gögnum sem nem-
endur komu með eða fengu send að
heiman. í náminu er mikið lagt upp úr
því að neinendur kynnist vel starfsemi og
starfsfólki stofnana og fyrirtækja og að
þau verði huti af því fagumhverfi sem
þau starfa í þá sex mánuði sem þau
dvelja hérlendis.
í náminu er einnig lagt mikið upp úr
því að nemendur kynnist starfsemi fyrir-
tækja, stofnana og annarra aðila i sjávar-
útvegi, í tengslum við fræðilega umfjöll-
un og verkefni. Afgerandi fyrir staðsetn-
ingu Sjávarútvegsskólans hér á landi var
einmitt það góða orðspor sem fer af ís-
lenskum sjávarútvegi. Á þessurn tíma-
mótum vill Sjávarútvegsskólinn koma á
framfæri innilegu þakklæti til þeirra fjöl-
mörgu aðila sem komið hafa að starfsem-
inni. Án góðrar samvinnu er ekki hægt
að standa undir þeim væntingum sent til
skólans eru gerðar. Jákvæð viðbrögð og
góður vilji allra sem leitað hefur verið til
er mikil hvatning til að þróa þessa starf-
semi og efla hana enn frekar á komandi
árum.
46 - Sjómannablaðið Víkingur