Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Síða 50
XX / 400 gerðin
Um leið og DHB-röðin var sett á markað var tveimur nýjum
stærðum bætt við XX/400 gerðina, DN200 og DN250. Með
þeim nær geta dælnanna upp á efsta hluta vinnslusviðsins.
Dæluhjólin eru hönnuð með aðstoð nýjustu tölvutækni til að
mæta sífellt auknum kröfum um hægan snúning, háan þrýst-
ing, lágt NPSH-gildi og mikla nýtni.
Nýju /400 gerðirnar eru fáanlegar bæði í CN- og DHB-línun-
um.
Maskinfabriken Iron A/S var stofnuð árið 1906. Nokkrum
árum síðar var fyrsta dæla fyrirtækisins hönnuð. Pað var
spjaldadæla sem seldist vel árum saman. Henni var komið fyrir í
fyrsta díselknúna úthafsskipi heims, M/S Selandia.
Þróun spjaldadælunnar hafði áhrif á frekari vöruþróun fyrir-
tækisins og í dag einbeitir það sér nær eingöngu að dælum.
Vörur Maskinfabriken Iron A/S eru notaðar í skipaútgerð, á
olíuborpöllum, i orkuverum, hitaveitum, vatnsveitum, áveitum,
vatnshreinsistöðvum og fjölmörgum öðrum iðngreinum.
Vegna aukinnar alþjóðlegrar markaðssækni var nafninu fyrir-
tækisins breytt árið 2000 í Iron Pump A/S.
Afkastageta, skýringarmynd - CN / DHB
Hm< (mVl|
iH
□ JSOOrpm O «00rom ■ t200rom C!3ao/joo at 120ORPH
60/260
250/400
80/200
100/200 |l 25/250 160/260
66/200
.200/400
200/316'
260/311
100/2501 125/250^11!
50/250
2QP/250
200/400?
- — ^
65/180 \ 80/316
Eiginleikar sem láta engan bíða
Sauer-Danfoss, Series 45 stimpildcelur - hlaðnar orku
Sauer-Danfoss, Series 45 línan er tilbúin til að
mæta þörfum allra opinna vökvakerfa.
Stimpildælurnar frá Sauer-Danfoss hafa aldrei boðið upp á svo
mörg tækifæri fyrir svo marga notkunarmöguleika. Tvö ný hús
til viðbótar hafa aukið svigrúm hönnuða og framleiðenda á bún-
aði fyrir vökvakerfi.
Series 45 dælurnar svara öllum kröfum þýðgengra vökvakerfa
vegna þess hve skilvirkar, áreiðanlegar og hljóðlátar þær eru .
Með álagsstýrðri “LS”- og þrýstiháðri “PC” flæðistýringu eru
dælurnar heppilegur kostur til notkunar með PVG
Proportional stjórnlokunum og PVE rafstýringum frá Sauer-
Danfoss. Hæfileiki “LS” stýringarinnar til að stilla dæluflæðið
eftir raunverulegri þörf vökvakerfisins tryggir hagkvæman
rekstur og lengri líftíma á dælu og öðrum búnaði kerfisins.
Á sjó eða landi?
Algeng notkun á Series 45 dælum eru meðal annars kranar,
skotbómulyftarar, gaffallyftarar, hjólaskóflur, traktorsgröfu og fl.
Notkun á stimpildælum um borð í skipum og bátum fer
stöðugt vaxandi. Algeng notkun á Series 45 dælunum með PC
stýringu eru td. færibandakerfin i skipunum. Dælurnar eru jafn-
framt notaðar með LS stýringu fyrir spilkerfi, skipskrana og
hliðarskrúfur auk margra annara nota þar sem þörf er á rekstr-
aröruggum og hagkvæmum vökvakerfum.
Margir vélaframleiðendur fyrir báta leitast við að minnka
snúningshraða á vélum af ýmsum ástæðum. Minni snúnings-
hraði vélar þýðir að þörf er á stærri dælum til að fá óskað flæði.
Með fyrirferðalitlum stimpildælum eins og Serise 45 er því
hægt að fá meira flæði á lægri snúningshraða. Meira afl úr fyrir-
ferðaminni búnaði. Kostir stimpildælunar eru auk þess þeir að
hún skilar engu flæði nema vökvakerfið kalli eftir þvi og er því
mjög orkusparandi í rekstri.
PVG32
with joystick
Áhugaverðir eiginleikar.
Nýju dæluhúsin hafa kenniheitin E ogj.
Meðal þess sem Sauer-Danfoss vekur athygli á í nýju stærð-
unum er lítil fyrirferð sem gefur þá meira pláss fyrir annan
búnað. Einnig eru stýritjakkar staðsettir mjög nálægt dælustýr-
ingu en það tryggir hraðvirka svörun. Fjögurra bolta samsetn-
ing fækkar mögulegum lekaleiðum og fækkar einnig íhlutum.
Báðar stærðirnar eru hljóðlátar sem minnkar vinnuálag og
þreytu þeirra sem vinna nálægt búnaðinum.
Series 45 dælurnar voru fyrst kynntar 1995 og hafa síðan
þróast upp í að innihalda 6 hússtærðir. Heildar sviðið nær nú
yfir stærðirnar 25 til 147 cm3/sn. og er boðið upp á þann
möguleika að byggja saman fleiri en eina dælu.
50 - Sjómannablaðið Víkingur