Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2005, Síða 34
Hampiðjan
Alþjóðlegt tæknifyrirtæki í sókn
Hampiðjan er rótgróið fyrirtæki sem
allir íslendingar þekkja. Ekki er þó
víst að hugmyndir fólks um fyrirtækið
hafi fylgt eftir þeim miklu breytingum
sem orðið hafa á starfsemi þess á undan-
förnum árum. Hampiðjan hefur færst frá
því að stunda hefðbundna framleiðslu
veiðarfæra yfir í að þróa nýja veiðarfæra-
tækni og lausnir fyrir sjávarútveginn.
hetta birtist í því að öll grunnfram-
leiðsla á garni og köðlum sem og neta-
hnýting er komin úr landi. Hún fer fram
í nýrri verksmiðju i Litháen og þangað er
einnig verið að flytja starfsemi sem nú er
í Portúgal. í Litháen munu frá og með
næstu áramótum starfa um 250 manns í
20.000 fermetra verksmiðjuhúsnæði.
Hér á landi er fyrst og fremst unnið að
tækniþróun og markaðssetningu, auk
þess sem fyrirtækið starfrækir netaverk-
stæði í Örfirisey þar sem veiðarfærin eru
sett saman.
Jón Guðmann Pétursson forstjóri
Hampiðjunnar segir í viðtali við Sjó-
mannablaðið Víking að fyrirtækið eigi í
alþjóðlegri samkeppni en sérstaða þess er
fólgin í því að vera í senn með fram-
leiðslu á mikilvægum grunneiningum
veiðarfæra, svo sem netum og köðlum,
og síðan með framleiðslu og sölu á full-
búnum og sérhæfðum veiðarfærum.
„Vaxandi hluti af sölu samstæðunnar
er sala á einkaleyfisbundnum vörum.
Einkaleyfin breyta viðhorfi þeirra sem
þau eiga. Þeir vanda sig betur í grunn-
vinnunni meðan verið að er þróa nýjar
vörur og sækja um einkaleyfin. Þá eru
menn viljugri til að fjárfesta í vöruþróun-
inni ef þeir vita að hættan á því að ein-
hverjir komi strax með eftirlíkingar er úr
sögunni. Það skerpir afstöðu manna til
vöruþróunar og mikilvægis hennar bæði
fyrir Hampiðjuna og ekki síður við-
skiptavini hennar," segir hann.
Toghlerinn Opex verður helsta nýjungin í
sýningarbás Hampiðjunnar á Sjávarútvegs-
sýningunni í Kópavogi.
Toghlerinn Opex
Þessi stefnubreyting hefur gert Hamp-
iðjunni kleift að bjóða fram heildarlausn-
ir sem í vaxandi mæli eru bundnar
einkaleyfum. „Þar erum við til dæmis að
tala um Þantæknina setn við nefnum svo,
nýja gerð af toghlerum, sérstakar útfærsl-
ur á Dynex tógi og nýja gerð af neli.“
Þegar blaðamaður innir hann eftir þvi
hvað Hampiðjan ælli að sýna gestum
Sjávarútvegssýningarinnar nefnir hann til
sögunnar nýjan toghlera sem hefur hlot-
ið nafnið Opex. „Þessi hleri er að stærst-
um hluta úr gerviefni sem hefur jafn-
mikla hörku og stál, er afar kuldaþolið
og hefur langtum minni sjóþyngd en
stálhlerar. Fyrsta útgáfa hlerans er gerð
fyrir flottroll og gerir þau auðveldari í
drætti. Hlerinn hefur sama skverunar-
kraft og 50-70% stærri stálhlerar sem
leiðir til umtalsverðs sparnaðar í olíu-
eyðslu. Hann gerir skipunum einnig
kleift að draga trollið á meiri ferð og eyk-
ur yfirferð þeirra. Við höfum gert prófan-
ir með 7 fermetra hlera um borð í þrem-
ur skipum og þeir hafa staðið fyllilega
undir væntingum. Eitt þessara skipa er
Svanur RE, sem hefur verið við síldveið-
ar við Svalbarða. Við kynnum þessa hlera
á sýningunni og erum reyndar þegar
komnir í viðræður við stór útgerðarfyrir-
tæki um sölu á þeim. Vandamálið með
Opex hlerana er að vegna flókinnar
framleiðsluaðferðar þá er afkastageta
hennar takmörkuð,“ segir Jón Guðmann.
Léttleikinn eftirsóttur
Jón Guðmann bætir því við að þessi
nýi hleri sé í takt við þann tíðaranda sem
nú ríkir og ræðst ekki síst af ört hækk-
andi olíuverði. „Verulegur hluti af orku-
notkun skipanna er við að draga veiðar-
færið - það er togvírana, hlerana og troll-
ið - á eftir sér. Því er allt gert til þess að
draga úr mótstöðu veiðarfæranna og gera
þau léttari, meðal annars með því að
nota þanefni, ofurtóg í stað víra, grennra
en sterkara trollnet, gerviefni í hlera og
þannig má áfram telja. Þróunarvinnan
miðast öll við það þessi misserin,11 segir
hann. Togveiðar eiga undir högg að
sækja vegna hækkandi orkukostnaðar og
það er einfaldlega skylda þjónustufyrir-
tækis eins og Hampiðjunnar að vinna að
krafti í mótvægisaðgerðum og koma frain
með léttari veiðarfæri, sem fiska að
minnsta kosti ekki síður og helst betur
en eldri gerðir.
Jón Guðmann bætir því við að staða
fyrirtækisins sé góð og sóknarfæri víða.
„Við erum með verkstæði víða um heim
þar sem við setjum saman veiðarfæri og
við finnum að það er styrkur að því að
vinna með eigin framleiðsluvörur og eig-
in tæknilausnir. Uppbygging samstæð-
unnar gerir okkur kleift að stökkva inn í
vöruþróunina á öllum stigum framleiðsl-
unnar en sanrtímis því getum við haldið
sölunni á einkaleyfisbundnunr lausnum
alfarið innan hennar sem gerir samstæð-
una eftirsóknarverðan samstarfsaðila,“
segir hann.
Verkstæðin sem Hampiðjan og dóttur-
félög starfrækja eru, auk þess sem er í
Örfirisey, víða um land hérlendis, í Dan-
mörku, á írlandi og Skotlandi, í Banda-
ríkjunum, Namibíu, Kanada og á Nýja-
Sjálandi. Auk þess starfrækir Hampiðjan
sölufyrirtæki í Noregi. Hagur fyrirtækis-
ins stendur traustum fótum víða urn
heim enda hefur margt breyst frá því
forðum daga þegar menn stóðu vaktina
við netahnýtingar í Stakkholtinu í
Reykjavík.
-ÞH
Hampiðjan er að reisa glœsilegt verksmiðjuhúsnœði í Litháen.
34 - Sjómannablaðið Víkingur