Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2005, Blaðsíða 60

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2005, Blaðsíða 60
Nýjar og framsæknar lausnir Marel kynntar á íslensku sjávarútvegssýningunni 2005 Asjávarútvegssýningunni 2005 kynnir Marel nýjar og framsæknar lausnir fyrir fiskiðnaðinn á sviði flokkunar, bita- skurðar, snyrtingar og pökkunar. Helstu nýjungarnar eru á sviði sjálfvirkni við skömmtun og pökkun, sem og á sviði gæðaskoðunar og formflokkunar. Marel kynnir einnig í fyrsta sinn þró- unarstarf sitt við hagnýtingu róbótatækni við matvælavinnslu. Fyrirtækið hefur ný- lega hafið þróun á því sviði og verður ró- bóti til sýnis á básnum í Fífunni Meðal þeirra tækja sem Marel kynnir í Fífunni er sjónflokkari, hraðpökkunar- kerfi, skurðarvél, samvalsflokkari, þjarki til pökkunar á fiskstykkjum auk Marel hugbúnaðarkerfa og úrvals af land og sjóvogum. Marel sjónflokkarinn Vision Grader er útbúinn háþróaðri tölvusjón sem flokkar hráefnið eftir þyngd og lögun. Sjónflokk- arann má ýmist nota til flokkunar á mat- vælum eftir formi eða í sjálfvirkt gæða- mat. Skurðarvélin IPM III LaserEye byggir einnig á tölvusjón og sker matvæli í bita eftir formi og þyngd. Skurðarvélin hefur hugbúnað sem hámarkar verðmæti hráefnis og er notuð í fisk-, kjöt- og kjúklingavinnslu víða um heim. Marel kynnir jafnframt tvær lausnir, SpeedBatcher og CheckBin, fyrir skömmtun á matvöru eftir þyngd til pökkunar í neytendaumbúðir. Hraðpökk- unarkerfið SpeedBatcher hentar einkum við pökkun á mörgum smáum stykkjum í skammt, en CheckBin flokkarinn hefur þá kosti að geta valið saman stykki eftir þyngd, formi og fjölda. M1100 og M2200 land- og sjóvogir með M6000 stýriborðum verða einnig til sýnis, ásamt MPS hugbúnaði. Tugir manna koma að þróun og innleiðingu hugbúnaðar hjá Marel og er þar að finna sterkan vaxtarbrodd hjá félaginu. Meðan á sýningunni stendur mun Mar- el bjóða viðskiptavinum að heimsækja höfuðstöðvar fyrirtækisins í Garðabæ. Par verður m.a. hægt að skoða flæðilínu fyrir bolfisk og nýja sjálfvirka laxasnyrtivél, Intelligent Trimming Maching, sem út- línusnyrtir laxaflök á miklum hraða. Laxasnyrtivélin notar háþróaða tölvusjón með litgreiningu til að ákvarða skurðar- mynstur. Nákvæmur skurður vélarinnar tryggir hámarks nákvæmni og eykur framleiðni við vinnslu. Marel ITM tryggir jöfn gæði flaka og allt að 2% meiri nýt- ingu en handvirk snyrting og getur auk þess unnið allt að 40 flök á mínútu. Stella Björg Kristinsdóttir Við þekkjum Sjávarútveginra Kæiivélar hafe mikla reynslu í uppsetningu, viðhaldi, hönnum og smíöum fýrir sjávarútveginn. Hvort sem er um borð eða I landi. KÆLlVÉLAR" KÆLIVÉLAVERKST Æ ÐJ 587 4530 • 893 1906 Donaldson. Filtration Solutions VOKVAKERFISSIUR SMUROLIUSIUR HRÁOLÍUSÍUR KÆLIVATNSSÍUR LOFTSIUR Reki hf • Fiskislóð 57-59 • 101 Reykjavík Sími 562 2950 • Fax 562 3760 E-mail: bjorn@reki-ehf.is • Vefsíða: www.reki-ehf.is 60 - Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.