Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2005, Page 54

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2005, Page 54
3on Bepqson eKf- ,,, ,, Jr_ „ * BOOTS BUILTTO LAST Kletthals 15-110 Reykjavik Sími: 588 8881 - Fax: 588 8944 Heimasíða: simnet.is/jonbergsson - E-mail: jonbergsonehf@simnet.is Ishúsið ehf er heildsala sem sérhæfir sig í innflutningi og sölu á öllu því sem snýr að kæli- og frystikerfum. Fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins er Tómas Hafliðason en þrátt fyrir ungan aldur hefur Tómas starfað mjög lengi við kæli- iðnaðinn. Fyrirtækið byggir á innflutningsdeild Kælivéla ehf, en starfsemi hennar var orðin það umfangsmikil að réttast þótti að stofna sérstakt félag um innflutning- inn. Fyrirtækið hefur nú umboð fyrir marga stóra framleiðendur á sviði kæli- og frystitækni. Má nefna dæmi eins og Frascold þjöppur, Kobol kæliblásara, Ako stýringar og Tucal laus- og plötu- frysta. „Frá upphafi höfum við miðað að þvi að vera með góðan lager“ segir Tómas, og bætir við, „viðskiptavinir vilja geta komið og fengið hefðbundinn búnað og rekstrarvörur án þess að þurfa að bíða.“ Fyrir annan búnað höfum boðið upp á sérpantanir en við höfum samið við framleiðendur á t.d. kæliklefum um að afhenda þá með skömmum fyrirvara. Helsta þróunin hjá íshúsinu hefur ver- ið að fyrirtæki hafa í auknurn mæli kom- ið og verslað beint af heildsölunni. Fyrir- tæki vilja kaupa hlutina á besta verðinu og fá þá jafnvel verktaka til að vinna verkin en kaupa beint af heildsölum líkt og íshúsinu. „Við höfum orðið mjög mikið varir við þessa þróun undanfarið“, segir Tómas, „aðilar sem hafa leitað til okkar hafa getað fengið rekstrarvörur, sem og annan búnað í kæli- og frystikerfi á betra verði en áður hefur þekkst.“ Nýsmíði Skinney-Þinganes hf. á Hornafirði áætlar að fara út í nýsmíðar á tveimur 29,6 metra tog og netaveiðaskipum, með aflvísi 1600, sem yrðu smíðuð í Tævan á næsta ári. Ef af verður, mun vélbúnaður verða frá MD Vélum chf. sem eru umboðs- aðilar fyrir Mitsubishi dieselvélar hér á landi. Hér yrði um að ræða stærsta ein- staka samning sem fyrirtækið hefur gert frá stofnun þess 1990. Vélbúnaðurinn samanstendur í stórum dráttum af eftirtöldu, ásamt öllum tilheyrandi búnaði. Aðalvél. Mitsubishi. Gerð S6U-MPTK Ljósavél : Mitsubishi. Gerð MAS 370 Skrúfugír. Mekanord gerð 450 HS með aflúttaki og stjórntækjum Skrúfubúnaður Helset gerð 4TX180/180-2200HSD ásamt skrúfuhring. Ásrafall: Stamford gerð HCM 534 E-2 THERMOLITE íshúsið í sókn 54 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.