Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 6

Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 6
Náttúrufræðingurinn 2. mynd. Spdnarsnigill (Arion lusitanicus) í Ártúnsholti í Reykjavík 2. september 2004. - Iberian slug (Arion lusitanicus), Reykjavik, 2 September 2004. Ljósm./Photo Erling Ólafsson. hefur verið landlæg hér um aldir en þeir félagar Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson5 geta hans í ferðabók sinni árið 1772. Svartsnigill (3. mynd) hefur fundist víða um land en er algengastur á landinu sunnan- verðu, einkum í gróðurríkum brekkum og hlíðum sem vita mót suðri. Hann er að öllu jöfnu svartur á lit, 10-15 cm langur, stundum allt að 20 cm í nágrannalöndunum. Hérlendis nær hann ekki þvílíkri stærð. I nágrannalöndum okkar er spánarsnigill 7-15 cm langur. Hann er nokkuð breytilegur á lit, oftast rauðbrúnn en finnst einnig í ýmsum öðrum brúnum og rauðum litum. Rauðsnigill (Arion rufus (Linnaeus, 1758)) er tegund nauðalík spánar- snigli, svipaður á stærð og lit. Harrn finnst einnig í nágrannalöndunum en hefur enn ekki fundist hér á landi. Eins og spánarsnigill er hann upp- runninn í surtnanverðri Evrópu og er talið að hann hafi borist norður eftir álfunni um miðja 19. öld. Þessar tvær stóru, rauðu tegundir geta verið svo líkar útlits að kryfja þurfi sniglana og skoða kynfæri þeirra til að greina þá í sundur. Þessar stóru tegundir af ætt- kvíslinni Arion eru gjaman kallaðar skógarsniglar á norrænum tungum. Spánarsnigill kallast t.d. iberisk skovsnegl (DK), spansk skogsnigel (SE) og fberiaskogsnegl (NO). Að auki á hann sér „gælunöfn" sem gefa sterklega til kynna hversu illa þokkaður snigillinn er í nýjum heimkynnum, s.s. „dræbersnegl", „mördarsnigel" og „killer slug" og samsvarandi heiti á öðmm tungum. Uppruni OG DREIFING Upprunaleg heimkynni spánar- snigils eru á vesturhluta Spánar, í Portúgal og Suður-Frakklandi. Upp úr 1960 fór hans að verða vart víðar, t.d. á Italíu, í Sviss, Austurríki, Búlgaríu, Vestur-Þýskalandi, þá- verandi Júgóslavíu og Alsír. Eftir að járntjaldið féll og samskipti milli Austur- og Vestur-Evrópu jukust hefur hann einnig breiðst út um Austur-Evrópu. Nú virðist spánar- snigill hafa náð fótfestu víða um álfuna, allt norður til Norðurlanda. Að auki fannst hann suður á Falk- landseyjum árið 1986. Á Norðurlöndum varð spánar- snigils fyrst vart á Skáni í Svíþjóð árið 1975. Eins og algengt er með landnema fór lítið fyrir kvikindinu fyrstu tíu árin en næsta áratug þar á eftir var fjölgunin gífurleg og út- breiðsla snigilsins í Svíþjóð jókst umtalsvert. Árið 1994 var spánar- snigill orðinn algengur víða í bæjum í Svíþjóð og hafði náð allt norður til Ángermanland (63°17'N). Spánarsnigils varð fyrst vart í Noregi árið 1988 og í Danmörku 1991 en hann er þó talinn hafa komið þangað mun fyrr. Nú finnst hann einnig í Finnlandi og á Álandseyjum og árið 1996 fannst hann fyrst í Færeyjum. Þar hefur hann verið að festa sig í sessi undanfarin ár.6 Nú hefur spánar- snigill náð að berast til Islands en það á eftir að koma í ljós hvernig honum reiðir af hér á landi. Spánarsnigill dreifist nær ein- göngu af mannavöldum. Algengast er að hann berist sem egg eða ungviði með plöntum og jarðvegi og er því að öllum líkindum stöðugt að flytjast á milli landa. í löndum utan upprunalegra heim- kynna sinna er hann langalgeng- astur í húsa- og matjurtagörðum, gróðrarstöðvum og grasagörðum þar sem mikið er um innfluttar plöntur. Innan svæðis getur snigill- inn svo breiðst út með því að skríða sjálfur en eins og aðrir sniglar kemst hann ekki tiltakanlega hratt yfir þannig. Hann getur auðveld- lega komið sér fyrir í feldi dýra sem lagst hafa fyrir á döggvotu grasi, hangið þar fastur vegna þess hve slímugur hann er og fengið far með þeim. Auk þess getur hann borist út í rennandi vatn og flotið með því langar leiðir. LÍFSHÆTTIR Sniglar eiga það sameiginlegt að líka lífið best þegar loftraki er hár og dögg fellur á jörðu. Þeir eru því mest á ferli að nóttu til en einnig á rigningardögum. Þegar þurrt er halda þeir sig þar sem rakast er, koma sér fyrir í skugga eða ofan í jarðveginum og eru blómapottar gjarnan notaðir. Þegar veðurfar er hagstætt getur sniglunum fjölgað hratt og í Svíþjóð eru dæmi um að fjöldi spánarsnigla hafi verið 5-10 á fermetra, í Danmörku allt að 50. 76
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.