Náttúrufræðingurinn - 2005, Side 11
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
bil 700 þúsund ára gömul.3,4 Ætla
má að setlögin í kringum Ólafsvík
hafi myndast í lok síðasta jökul-
skeiðs á Matuyama-segulskeiði, svo
líklegt er að setlögin í Búlandshöfða
og nágrenni og umhverfis Ólafsvík
hafi ekki myndast á sama jökul-
skeiði þótt myndunarsaga set-
laganna sé svipuð.2 Þetta má
útskýra á þartn veg að setið hafi
safnast fyrir í dæld sem lá lægst við
Grundarfjörð en hæst við Skarðs-
læk. Hraun hafi síðan rurtnið út yfir
setið úr austri og suðaustri og því
yngjast hraunlögin og einnig set-
lögin til vesturs að Skarðslæk.8
FAnusamfélög
Við rannsókn á fánusamfélögum í
setlögum á norðanverðu Snæfells-
nesi fundust 42 tegundir sjávar-
hryggleysingja: 17 sniglategundir,
20 tegundir samlokna og 5 hrúður-
karlategundir.2 Árið 1998 fundust
steingervingar á einum nýjum stað,
í Kirkjufelli, en þar höfðu ekki
fundist steingervingar áður.2 Allar
tegundirnar sem fundust í set-
lögunum lifa við strendur fslands í
dag nema fjörudoppa (Littorina litt-
orea), turnrósi (Tachyrhynchus eros-
us), jökultodda (Portlandia arctica),
legskel (Tridonta placenta) og af-
brigði af lambaskel (Tridonta
montagui var. warhami). Allar
tegundimar sem fundust lifa við
strendur Norður-Ameríku og
Evrópu í dag, en einungis þrjár
þeirra lifa ekki við Grænland;
fjörudoppa, sarskóngur (Colus sarsii)
og kúskel. Af þessu má ætla að
fánan í ísaldarlögunum á Snæfells-
nesi sé dæmigerð Norður-Atlants-
hafsfána. Alls lifa 36 af hinum
fundnu tegundum á heimskauta-
2. mynd. ]arðlagasnið úr Búlandshöfða og
Stöð á norðanverðu Snæfellsnesi. -
Geological sections from Stöð and
Búlandshöfði, Snæfellsnes, West lceland.
I. Tholeiitic Tertiary lava. 2. Doleritic
lava from the Pleistocene. 3. Conglo-
merate. 4. Diamictite. 5. Sandstone, 6.
Siltstone. 7. Cross bedding. 8. Laminated
sediment. 9. Load casts. 10. Trace fossils.
II. Marine shells. 12. Plant remains,
mainly leaf impressions.
Jarðlagasnið úr Stöð
(131 m.y.s.)
1 11 l*| þóleiít
2 EZEH Grágrýti
3 I, I Völuberg
4 I " I Tvistberg
5 n Sandsteinn
6 I 1 Siltsteinn
Jarðlagasnið úr Búlandshöfða
(148 m.y.s.)
7 KXÍ Skálögun
Lagþynnur
9 Fargför
10 I I Lífhreyft
U © Skeljar, fleiri-færri
.2 4=4= 4» Plöntuleifar, mikið-lítiö
Jarðlagasnið úr Búlandshöfða og Stöð
81