Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 40
Náttúrufræðingurinn
8. mynd. Fjallasebrinn. - Mountain zebra. Myndir úr/photos from: Desmond Morris
1990: Animal Watching. Crown Publishers, lnc. New York.
9. mynd. Grévyis-sebrinn. - Grevyis zebra.
Sebrahestar
í Afríku hafa nær eingöngu fundist
leifar hesta sem teljast forverar
sebrahesta1 og enn eru það þeir sem
eru ríkjandi hestakyn á þeim
slóðum. Eins og áður hefur komið
fram eru tegundimar þrjár. Munur-
inn á milli þeirra liggur aðallega í
stærð dýrsins, stærð og lögun
höfuðs og eyrna og munstrinu á
feldinum. Fjallasebrinn (E. zebra) (8.
mynd) er minnsta sebrategundin, en
grévyis-sebrinn (E. grevyi) sú
stærsta (9. mynd). Sléttusebrinn (E.
burchelli) (10. mynd) er algengastur,
með útbreiðslu um A- og S-Afríku.
Undirtegundir sléttusebrans sem
enn finnast em grants-sebrinn og
damara-sebrinn, en tvær undir-
tegundir hans em útdauðar. Önnur
þeirra, E. burchelli quagga, var mun
minna munstmð en aðrar sebra-
tegundir. Síðasti einstaklingur
hennar sem vitað er um dó í dýra-
garði 1883. Hin var E. burchelli
burchelli sem dó út 1918. Af
fjallasebranum eru til tvær undir-
tegundir, sem báðar hafa komist
nærri útrýmingu. Stofnstærð E.
zebra zebra, sem er minnsti sebrinn,
var komin niður í fáa tugi um 1950.
Með markvissri vemdun tókst að
bjarga tegundinni svo nú er hana
aftur að finna á hluta síns fyrra
útbreiðslusvæðis.20
Asnar
10. mynd. Sléttusebrinn. - The common zcbra.
Villta asna er að finna á nokkrum
svæðum í Asíu og í norðanverðri
Afríku. Þær tvær tegundir sem
flokkast sem asnar, afríkuasninn og
asíuasninn, em mjög ólíkar í útliti.
Afríkuasninn (E. africanus) er lítill,
grár að lit, með stór eyru og stórt
höfuð (11. mynd). Til em tvö af-
brigði sem bæði eru á lista yfir teg-
undir í útrýmingarhættu. Af afríku-
asnanum er runnið ræktaða af-
brigðið sem allir ræktaðir og tamdir
asnar tilheyra.
Asíuasninn (E. hemionus) er að út-
liti líkari takhi-hestinum en afríku-
asnanum. Nokkuð mörg afbrigði
eru til af asíuasnanum og vilja
margir flokka þau sem sérstakar
110
Á