Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1999, Side 62

Náttúrufræðingurinn - 1999, Side 62
fjölda botndýra á flatareiningu reyndust ekki nothæf vegna botnlagsins við Surtsey. Hætti hann því við svo biíið rannsóknum þar. ■ BOTNDÝR í FJÖRU OG Á GRUNNSÆVI VIÐ SURTSEY 1967-1992 Sumarið 1967 var orðið nokkuð ljóst að rannsóknir Willy Nicolaisen myndu ekki halda áfram öllu lengur. Því tóku Sigurður Jónsson þörungafræðingur og höfundur þessarar greinar sig saman og fengu sér til aðstoðar froskkafara sem söfnuðu þörung- um og dýrum við Surtsey. Surtseyjarfélagið greiddi kostnaðinn. Sýnataka fór aðeins fram á harða botnin- um, þar sem aðallega er um að ræða örsmá dýr í sandinum og mölinni við norðanverða eyna, en engir sérfræðingar voru þá fáan- legir til að vinna með þau. Stefnt var að því að kafa á 5, 10, 15,20, 30 og 40 m dýpi en dýpra töldu kafararnir ekki óhætt að fara. Það er tímafrekt og dýrt að fara niður á 40 m dýpi því það styttir mjög mikið köfunartímann þann daginn. Á síðari árum hefir 40 m stöðvunum verið sleppt, bæði vegna þessa óhagræðis og svo hins að lítið fannst af dýrum þar. A þessu dýpi er einnig of lítið ljós l'yrir þörungana og þeirra því varla von þar. Árin 1967-71 var sýnurn safnað á þennan hátt á hverju ári en eftir það árin 1974,77,80, 83,84,87 og 92. Ástæður fyrir því að ekki var haldið áfram að safna á hverju ári voru þær að breytingar á lífríkinu voru hægar og svo vantaði bæði fé og fóik til söfnunar og úrvinnslu. Einnig hamlaði veður söfnuninni sum árin; einkum varþað 1983 að lítið varð úr sýnatökunni þá viku sem við höfðum skip. Þess vegna var safnað aftur 1984. Sumarið 1967 fengust sýni með botn- dýrum á 10 og 20 m dýpi við vesturströnd- ina. Dýrin voru fá og ung og hafa borist til Surtseyjar sem lirfur, nema litla rækja (Eualus pusiola Kröyer) og sundkrabbinn (Portmms holsatus Fabr.), en báðar þessar tegundir, sem lifa umhverfis Surtsey, geta synt og eiga því auðvelt með að bera sig yl'ir. Mest bar þarna á kræklingi (Mytilus eclulis L.) og gluggaskel (Heteranomia squamula L.). Haustið 1967 voru gengnar fjörur, bæði að austan og vestan, og fundust þar nokkur ung dýr. Flest voru þau á steinum sem brimið hafði kastað upp í fjöruna. Voru þau því ekki eiginleg fjörudýr nema fjörukarlinn (Balanus balanoides (L.)). Einnig gæti eitthvað af kræklingnum hafa borist þangað sem lirfur. Mest var þarna af gluggaskel, rataskel (Hiatella arctica (L.)) og kræklingi, ásamt vörtukarli (Verruca stroemia (O. Fr. Mtiller)). Vorið eftir var fjörukarlinn alveg horfinn vegna niðurbrots á ströndum Surtseyjar. Lirfur hans berast þó þangað árlega og setjast þar að en hverfa svo aftur í brimróti úthafsöldunnar næsta vetur, svo dýr af þessari tegund eldri en á fyrsta ári hafa ekki fundist þar þegar fjörur hafa verið kannaðar, en það var síðast gert 1997. Of langt mál yrði að gera grein fyrir niðurstöðum hvers árs og vísast því til Surtseyjarskýrslnanna er nefndar eru sem heimildirhéráeftir. Það er ekki alltaf auðvelt fyrir botndýr í sjó að komast á milli staða. Það getur því tekið marga áratugi fyrir fánuna í fjöru og á grunnsævi við Surtsey að verða sambærileg við þá sem nú er við aðrar Vestmannaeyjar, þótt stutt sé á milli staða, t.d. aðeins 2,5 sjómílur frá Geirfuglaskeri. Lirfur sumra dýra lifa um skeið í svifinu í sjónum og geta þvf borist alllangt með straumum ef svifskeiðið er nógu langt. Einnig eru til lirfur sem geta lyft sér aftur frá botni ef þær lenda á óheppilegu botnlagi og framlengt þannig veru sína í svifinu. Flest botndýrin við Surtsey hafa borist þangað sem lirfur. Þá geta dýr borist á milli staða með þangi eða öðru rekaldi sem straumar bera með sér. Rannsóknir hafa sýnt að talsvert af smáum plastkúlum, sem settar voru í sjóinn við vestanverða Heimaey 1967, barst til Surtseyjar á einni viku, svo flutningshraði er umtalsverður á þeim slóðum. Ekki er búseta örugg þótt dýr sé komið til Surtseyjar, t.d. sem lirfa. Sama botnlag 204
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.