Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1964, Qupperneq 17

Náttúrufræðingurinn - 1964, Qupperneq 17
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 11 ferðar, og allt yfirbragð hans stingur svo glöggt í stúf við hina gömlu sléttu eða ávölu jökulmela, að ekki verður á villzt. Enn fremur veit stefna gömlu jökulrákanna, þar sem þær finnast ná- lægt jaðri núverandi jökuls, því nær þversum við skriðstefnu hans (sjá 2. mynd). Úfnu ruðningsmúgarnir við rendur Hofsjökuls og Langjökuls marka mestu útbreiðslu þessara jökla á síðustu öldum, en sléttu melarnir og aðrar jökulminjar um allan meginhluta Kjalar eru eftir ísaldarjökul, sem löngum þakti því nær allt fsland á síðasta jökulskeiði ísaldarinnar. Það jökulskeið hófst fyrir h. u. b. 70 þúsundum ára, og því lauk fyrir h. u. b. 10 þúsund árum. Þá tekur nútíminn við. Hvergi á Kili — né annars staðar á Miðhálendinu — hafa fundizt neinar jökulminjar, er að ellimerkjum séu millistig milli ísaldarminj- anna og minjanna um framgang jökla á síðustu öldum. Aí’ því má marka, að Hofsjökull og Langjökull hafa aldrei síðan í ísaldarlok orðið stærri en á 18. og 19. öld. Mér liafa reynzt jökulrákir flestum öðrum jökulminjum lær- dómsríkari um háttu síðasta ísaldarjökulsins yfir íslandi. (Þeim, sem ekki hat’a veitt atliygli þessum algengu rákum á sléttum klöpp- um, skal vísað til fyrri greina minna í Náttúrufr. 1955 og 1962). Jökulrákir á klöpp sanna okkur ekki aðeins, að jökull hefur legið ylir klöppinni, heldur sýna þær einnig skriðstefnu hans. Jökulís skríður alla jafna í þá átt sem yfirborði bans Iiallar. Út af því getur þó brugðið djúpt niðri í jöklinum, ef ísinn rekst Joar á brattan bergvegg eða treðst fram um krappan dal. En slíka staðhætti er hægt að varast, og má þá af stefnu jökulrákanna marka, í hvaða átt yfirborði jökulsins hallaði, jiegar liann risti þær. Vegna Jsess hve jökulrákir mást fljótt og hverfa, fyrir áhrif lrosts, sandfoks o. fl., má tel ja öruggt, að allar venjulega staðsettar og skýr- ar jökulrákir hér á landi séu eltir síðasta ísaldarjökulinn. Undan- tekningar eru aðeins: í fyrsta lagi rákir eftir nútímajökla, á háfjöllum eða í nánd við núverandi jökla, og eru þær helzt frá síðari öldum; og í öðru lagi rákir frá fyrri jökulskeiðum (þau voru ekki færri en þrjú alls á ísöldinni), fram komnar við það, að hart berg, sem þær hafa geymzt undir og er litlu yngra en þær sjálfar, hefur nýlega rofizt ofan af þeim. En slíkt fyrirbæri er vissulega sjaldséð og auk þess auðþekkt.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.