Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1964, Síða 47

Náttúrufræðingurinn - 1964, Síða 47
N Á T T Ú R U F RÆ ÐIN G U RIN N 41 að því daglega ura nokkurt skeið. Þess varð þá vart, að nokkuð nryndi vera aí: loðnu í ánni, bæði dauðri og lifandi. En nóttina milli 31. raarz og 1. apríl gróf áin rifið sundur og lækkaði yfirborð hennar rajög mikið við það. Tók þá einn þeirra manna, sem þarna unnu, eftir því, að vik, sem við þetta þornaði alveg, var alþakið hrognum, og var lagið sums staðar unr 2 cm að þykkt. Varla er vafi á, að þarna var um loðnuhrogn að ræða, en sennilega lrefur loðnan þó ekki viljandi leitað hrygningarstaðar í Jökulsá, heldur hafi straunrurinn hrifið hana með sér inn í lónið og hún svo lokazt inni þegar rifið myndaðist. Ekki fundust lrrogn víðar en á þessum stað, en þau gátu verið víða unr botn árinnar og e. t. v. lónsins. Sigurður Björnsson. Svarthveðnir. (Úr bréfi). Hinn 30. apríl s. 1. veiddi v/b „Sunnutindur“, Djúpavogi, sjald- séðan fisk, senr svarthveðnir nefnist. Var báturinn að veiðum nreð net sín lit af Skaftárós á 80—90 faðma dýpi. Fiskur þessi var 42 cm á lengd. Það skal tekið fram, að ég var öruggur með að þekkja fiskinn er ég hafði athugað „Eiskana” eftir dr. Bjarna Sæmundsson hina nýju útgáfu með viðauka eftir Jón Jónson fiskifræðing. Þar stendur, að það hafi einungis fjórir fiskar af þessari tegund veiðzt lrér við land í botnvörpu og allir í dýpinu út af SA-landi. Sigurfinnur Vilhjálmsson. Berklar ógna Evrópu ennþá. Berklar eru nú eins hættulegir í Evrópu eins og þeir hafa nokkurn tíma verið, segir dr. J. J. van de Calseyde, forstjóri Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), sem hefur aðsetur í Kaupmannahöfn. Hinar miklu framfarir sem komu í kjölfar þeirra nýju lyfja, er tekin voru í notkun strax upp úr seinni heimsstyrjöld, komu mörgunr til að halda, að berklar væru ekki lengur veruleg ógnun við mannkynið. En bjartsýnismennirnir neyddust til að skipta um skoðun. Því enda þótt tala dauðsfalla af völdum berkla væri mjög lág, þá var tala sjúkdómstilfella eftir sem áður alltof há. A hverju ári komu í ljós þúsundir nýrra berklatilfella, jafnvel í há- þróuðustu löndum Evrópu. Hinn mikli fjöldi sjúklinga, sem slær niður aftur, leiðir auk þess í ljós, að beygurinn sem menn eitt sinn

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.