Náttúrufræðingurinn - 1964, Síða 29
N ÁTT Ú R U F RÆ ÐINGURINN
23
hún er öll smurð jökulruðningi, sem mundi almennt kallaður
melar. En þær klappir sem upp úr standa — og það er lielzt á há-
kollinum — eru sléttar og sums staðar rákaðar eltir jökul. Ekki
getur heitið, að votti fyrir gíg hæst á dyngjukollinum. Aðeins
með góðum vilja má taka klappabungur, sem þar liggja í boga-
dreginni löð, fyrir leifar at' gígbarmi. Væntanlega hefur ísaldar-
jökullinn fyllt gíginn af ruðningi og auk þess sorfið niður barma
hans.
Jökulsorfnar dyngjur á borð við Baldheiði, en þó fáar eins
reglulegar, eru víða á móbergssvæðum Árnessýslu og einnig í Suður-
Þingeyjarsýslu. Hér hefur áður verið nokkuð minnzt á Skálpanes-
dyngjuna norðvestur af Bláfelli, en htin er stór grágrýtisbunga af
þessu tagi og nágranni Baldheiðar. — Ogerlegt er að hugsa sér, að
þessar jökulsorfnu dyngjur hafi myndazt undir jökli, því að hraun
þeirra liafa breitt úr sér hindrunarlaust með sama hætti og hraun
nútímadyngnanna og auk þess storknað í kristallað basalt, en ekki
móberg. Þess vegna hljóta þær að vera frá hlýviðrisskeiðum ísald-
arinnar, þegar jöklar voru vart meiri en á vorum dögum, fremur
minni.
Stapar.
Þess var áður getið um Blálell, að það mundi stapi að efni
og uppruna, en lögunin sködduð af óþyrmilegu rofi jökla um
langan aldur. En lítt skaddaðir stapar er sú fjallgerð, sem öðrum
fremur mótar svip fandslagsins á Kili. Þetta eru kistulaga f jöl 1
með flötum eða dálítið hvelfdum kolli, en hvössum brúnum og
bröttum hlíðum allt í kring. Gerðinni er raunar bezt lýst nreð
því að nefna dæmin, því að þau eru mörgum kunn: Hrútfell („Hrúta-
fel 1“ á flestum kortum) er þeirra mest, 1410 m y. s., mikilúðlegt
Ijall með jökulhettu á kolli og íalljökla í hlíðum. Skriðufell við
Hvítárvatn er einnig með jökulhettu, en auk þess hálft á kafi í
Langjökli. Blágnípa er fast við rönd Hofsjökuls, en Kjalfell á
miðjum Kili, og enn má telja allstórt nafnlaust fjall af þessu tagi
í norðausturhorni Hofsjökuls upp af Álftabrekkum.
Kollur og brúnir þessara fjalla eru úr basalti, bersýnilega hraun-
lögum, en það, sem undir liggur, er oftast aðallega móberg, en
stundum með svo miklu ívafi af bólstrabergi (og kubbabergi) að
það verður fyrirferðameira en móbergið.