Náttúrufræðingurinn - 1964, Side 35
NÁTTÚ RUF RÆÐIN G U RT N N
29
tekið að lækka nokkuð í því, „Hvítá hætt að renna í Húnaflóa",
ef svo má að orði kornast.
Sú skýring, sem ég hef nú haldið frarn um myndun eldfjalls-
ins Leggjabrjóts, er í meginatriðum hin sama og áður var rakin
um myndun stapanna. í báðum tilfellum er það aðhald íss og leys-
ingarvatns að storknandi bergkvikunni, sem mótar hinar þver-
höggnu brúnir og bröttu hlíðar þessara eldfjalla. En á Leggja-
brjót er þetta allt miklu ljósara í einstökum atriðum en í gömlu
fjöllunum.
Tilraun til tímasetningar.
í frásögnum af stórviðburðum hér að framan hefur lítt verið
tilgreint, hvenær þeir gerðust að almennu tímatali. Til þess
hrökkva skammt athuganir mínar og annarra norður á Kili, en
samanburður við hliðstæða viðburði í öðrum löndum, þ.ar sem
meiri er orðinn árangur sögurannsókna af þessu tagi, má lielzt
verða að gagni.
Það er nú fullvíst orðið, að ísaldarlok urðu mjög um sama leyti
á meginlöndum Norður-Evrópu og Norður-Ameríku, og meira að
segja virðast veðurfarsbreytingar yfirleitt hafa orðið á sarna veg
og samtímis báðum megin Atlanzhafsins ekki skemur en frá byrjun
síðasta jökulskeiðs (fyrir um 70 þús. árum) til vorra daga (Emiliani
1958, Flint 1961).
í lok svonefnds Allerödskeiðs, sem var tiltölulega hlýtt skeið í
ísaldarlokin, liafði mjög gengið á ísaldarjökulinn mikla á Norður-
löndum. Eigi vita menn gerla, hve langt jökulröndin hörfaði þá
norður eftir Skandinavíu. En hitt er víst, að á næsta skeiði gekk
hún fram aftur og nam þar fyrst staðar, sem síðan liggja eftir
hana miklir ruðningsgarðar, kallaðir Salpausselka í Finnlandi,
miðsœnsku mórenurnar í Svíþjóð og raðirnar (raene), í Noregi.
Við þessi mörk lá jökulröndin nokkurn veginn stöðug frá því fyrir
um 11 þús. þangað til fyrir um 10 þús. árum (nákvæmast talið í
Finnlandi: l'rá 8700 til 7900 f. K.), og er sá tími nefndur Salpaus-
selkaskeiðið. Það var vitanlega kuldaskeið, eins og margt fleira en
jökulframgangurinn vitnar um, og raunar eini verulega harði aft-
urkippurinn í hinum almenna veðurfarsbata ísaldarlokanna.
Að þessu harðindaskeiði loknu (fyrir um 10 þús. árum) hörfaði