Náttúrufræðingurinn - 1933, Síða 13
NÁTTÚRUFR.
75
Litla blesgœs (Anser ergtropus (L)).
(Eftir Sergius Alpheraky: The Geese of Europe and Asia, London 1908).
Nokkur orð tim grágæsír og helsíngja.
Eftir Magnús Björnsson.
Framhald.
4. tegund.
Litla blesgœs (Anser erytropus (L.)).
Syn. Anser íinmarchicus, Gunnerus. Anser minutus, Naumann.
(Á NorcSurlanda-málum: Fjallgás, Dverggás, Dverggaas).
Á ensku: Lesser white-fronted goose.
Á þýzku: Zwerggans, kleine Blassgans, o. s. frv.).
Lýsing. Höfuðið og efri hluti hálsins eru dökk-móleit, og tals-
vert dekkri en á stóru blesgæs. Ýmisleg biæbrigði eru á litnum
(dekkri eða Ijósari), og er því erfitt að kveða á um það, hvor þess-
ara tveggja tegunda sé algengari. Breytileikinn er svo mikill, að
sumir fræðimenn staðhæfa, að engir tveir einstaklingar af þessum
tveimur tegundum gæsa, séu nákvæmlega eins á litinn. Yfirleitt er
gæsategund þessi mjög svipuð stóru blesgæs á litinn, en það, sem
aðallega skilur þær, er blesan í enninu. Á litlu blesgæsinni nær
blesan talsvert hærra upp á höfuðið, þ. e. upp fyrir augu, og er það
auðsætt, jafnvel úr nokkurri fjarlægð. Bregði maður bandspotta