Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 23
NÁTTÚRUFR.
15
islandica (Gmelin)).
Húsönd (Glaucionetta
Allar endurveiddar húsend-
ur voru koilur, merktar að
að varpi. Allar voru þær
veiddar í því héraði, þar
sem þær voru merktar, allar
höfðu þær verpt þar aftur
eftir markárið. Ein sem fannst
í október, hafði farist í neti.
Hávella (Clangula hyemalis (L).
Auk nokkurra fugla, sem
unga á varpstöðvunum, þar
sem þær höfðu verið merkt-
ar, fannst ein síðast í októ-
ber við Norðurströnd íslands,
og ein í maí við vesturströnd
Grænlands.
síðar fundust á eggjum eða með
Straumönd (Histronicus histronicus histronicus (L.)).
Allar þær straumendur, sem endurveiðst hafa, náðust á ís-
landi. Eftir merkingunum að dæma, er fuglinn þar í júní, júlí og
ágúst, en eftir endurveiðinni í september, febrúar og apríl. Engar
íslenzkar straumendur hafa veiðst í öðrum löndum.
Hrafnsönd (Melanitta nigra nigra (L.)). (Sjá kort II).
Af hrafnsöndum, sem merktar hafa verið sem ungar,. hafa
einungis þrjár veiðst aftur. Ein drukknaði í heimahögum í neti í júlí,
árið, sem hún var merkt, aðra veiddi fálki á markstaðnum þá um
haustið, en sú þriðja náðist við Azor-eyjar síðast í október. Af
gömlum kollum, sem merktar voru á hreiðri, hafa 30 náðst aftur
á hreiðri á sama stað, en ein tekin í Portúgal í deeembermánuði.
Æðarfugl (Somateria mollissima islandica (Brehm)).
V 3400 Blönduós 3.6.28 9.1.29 Rauðárvík. Fundin særð af skoti.
E 695 Skagafjörður 22.027 10.2.8 Húvík. Skotinn.