Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1934, Blaðsíða 41

Náttúrufræðingurinn - 1934, Blaðsíða 41
TíÁTTÚRUFR. 33 Um stærS heiSagæsa er það að segja, að hún breytist mjög -eftir aldri og kynferði, og er því lítt um þetta vitað með vissu. Yfirleitt vita menn lítið um æfi og uppvöxt grágæsa, en þó vita menn lang-minnst um heiðagæsirnar, vegna þess, að þær eiga heimkynni sín víðasthvar svo fjarri mannabyg'gðum, að tækifæri hafa verið minni til þess að kynnast þessari grágæsategund, en töðrum frænkum hennar. Er því nær allt, sem um þetta finnst á prenti, byggt á ágizkunum. Það er fyrst nú, hin síðustu 2—3 undanfarin ár, að vitneskja hefir fengizt um bólfesti heiðagæs- anna hér á landi, og er því þess að vænta, að meira verði vitað um þessa gæs að nokkurum árum liðnum, en menn vita nú. Er Jjví ekki lengur nauðsynlegt að ráðast í dýr og erfið ferðalög norður í heimskautslönd til þess að sækja þær heim. Er þess að óska, að stjórnarvöld þessa lands, beri gæfu til þess að friða svo um þessa sjaldgæfu gæsategund, að hún haldist við í landinu þrátt fyrir nábýlið við mannheima. Alpheraky telur sig ekki geta fullyrt neitt um mestu eða minnstu stærð heiðagæsa, •— til þess kveðst hann hafa haft þær of fáar handa á milli. Hann kveðst að eins hafa mælt fáeina fullþroskaða heiðagæsasteggi, og mældust þeir þannig: Lengd 650—708 mm. Vængir 400 mm. .Nef (culmen) 44—48 mm. Fótleggir (tarsus) ca. 56 mm. Tenn- ur telur hann ca. 20—22, sitthvoru megin í efra skolti, en hygg- ur þó að þær geti orðið eitthvað fleiri. Kolthoff och Jágerskiöld telja fram eftirfarandi stærðahlutföll: Lengd 590—760 mm. Vængir 390—426 mm. Nef 37—49 mm. Má af þeim ráða, að þar sé tekið tillit til beggja kynja og jafnvel ungra fugla á 1.—2. ári, á það bendir lágmarkstalan 37 mm. neflengd, sem naumast getur átt við fullþroskaða heiðagæs. Er ólíklegt, að neflengd þeirra fari að ráði niður fyrir 40 mm. Að öðru leyti er engu minni stærðarmunur á karl- og kvenfuglum meðal heiðagæsa. en annarra grágæsa, og má því búast við talsverðum mismun á rnilli lágmarks og hámarksstærða þeirra, þótt ekki sé tekið til- lit til hálfþroskaðra fugla. Fótleggjalengd heiðagæsa telja flest- ir höfundar ca. 50—70 mm., og stéllengd ca. 111—148 mm. Eg, sem þetta rita, hefi að eins haft fáar heiðagæsir handa á milli, ca. 10—12 alls, og þar af að eins 3 fullorðnar, 2 steggi og 1 gæs. Er því ekki mikið upp úr þeim tölum leggjandi, sem eg hefi fram að færa, en þær eru sem hér segir: 1) Heiðagæsarsteggur, skotinn í Eyvindarveri 28. júlí 1931. Uengd: 735 mm., nef (culmen) : 47 mm., fótleggir (tarsus) : 75 mm., miðtá + kló: 75 mm., kló: 12 mm. Flugfjaðrir voru al-felldar 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.