Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 45

Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 45
NÁTTÚRUFR. 37 ofviða að birta nokkura greinargerð þeirra ferðalaga, en að því er snertir gæsategund þá, sem hér er um að ræða, — heiðagæsina, skal vikið að því helzta, sem vitnast hefir um háttu hennar hér á landi. Það er þá fyrst, að því fer mjög fjarri, að heiðagæsin sé sjaldgæfur varpfugl hér á landi. Á þeim slóðum, sem þegar hefir verið farið um, verpur hún víðast hvar, þar sem landslag, gróður og aðrir staðhættir, er síðar skal lýst, gera henni kleift að hafast þar við. Á sunnanverðu hálendinu er þegar kunnugt um nokkura varpstaði hennar, t. d. við Þjórsá (í Gljúfurleit), í Kerlingar- fjöllum (Kisárbotnar), við Hofsjökul sunnan- og austanverð- an, í Eyvindarveri o. v. Líkur benda til þess, að hún sé enn víð- ar á þessum slóðum. Norður um hálendið eru heimkynni hennar víðsvegar um útjaðra Ódáðahrauns, vestan, norðan og austan hraunsins og í nágrenni þess, t. d. í Skjálfandafljóts-gljúfrum, sunnan, vest- an og norðan Stóra-Flæðuhnjúks, í Hraunárdal (Hraunárgljúfr- um og neðst við Langadrag), við Krossá, í Hrafnabjörgum og víðar meðfram Skjálfandafljóti (t. d. í nánd við Aldeigjufoss), í Krákárbotnum og á nokkurum stöðum stöðum meðfram Kráká, í Grafarlöndum eystri og áreiðanlega víðar um þessar slóðir, en nú hefir verið talið. Á Möðrudalsöræfum varð hennar vart í Arnardal, í Fagra- dal, í Grágæsadal og í Hvannalindum. Á Brúaröræfum, í Kring- ilsárana og ef til vill víðar við norðurjaðar Brúarjökuls. Samanlagt er óhætt að fullyrða, að tala þeirra heiðagæsa, er heimkynni eiga á þeim slóðum, sem nú hafa verið nefndar, nemi nokkurum þúsundum. En fulla vissu um þetta er eigi hægt að fá með öðru en því, að dvelja um lengri tíma á hverjum stað og leita landið nákvæmlega. Á venjulegum fjallferðalögum er ekki um slíkt að ræða. Þessháttar rannsóknir mundu og verða all-kostnaðarsamar, og hefir því verið lögð meiri áherzla á, að fara víðar yfir og leita vegsummerkja þess, að varp ætti sér stað, þar sem komið er, en hins að koma tölu á hreiðrin, sem bæði er seinlegt og oft all-erfitt. Hefir því verið látið nægja, að gera lauslegar ágizkanir á nokkurum stöðum og hefir nið- urstaðan orðið sú, sem að framan getur. Lifnaðarhættir. Heiðagæsin velur sér bólfestu þar sem hún hefir nokkurt útsýni yfir umhverfið hið næsta sér, svo að eigi verði auðveldlega komið að henni algerlega að óvöru. Venju-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.