Náttúrufræðingurinn - 1947, Síða 18
10
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ing á þessu höfum við ekki öðlast fyrr en við hinar kerfisbundnu
merkingar, sem gerðar hafa verið á þorski á þessari öld.
Þessar vísindalegu rannsóknir byrjuðu með rannsóknarleiðangri
danska skipsins „Thors" 1903 undir stjórn dr. Johs. Schmidts. Eigum
við Dönum mikið að þakka fyrir sínar ágætu fiskirannsóknir hér
við land og Jrá sérstaklega dr. Schmidt, serp stjórnaði þessum leið-
öngrum frá byrjun og allt til dauða síns 1933. Eftir hann tók við
dr. Á. Vedel Táning. Margir aðrir danskir vísindamenn Iiafa lagt
mikinn skerf til þessara rannsókna. En af íslendingum vil ég sér-
staklega nefna Bjarna Sæmundsson. Hið ötula starf hans í þágu
íslenzkra fiskirannsókna hefur haft mikið vísindalegt og praktískt
gildi. Hann hóf rannsóknir sínar hér við land í kringum síðustu
aldamót og hefur innt af hendi geysimikið starf, en bjó þó við
þröngan fjárhag og einnig vísindalega einangrun. Frá Jrví er hann
lauk háskólanámi í Danmörku, og til ársins 1923 var hann kennari
í Menntaskólanum í Reykjavík. Eftir það lékk liann lausn frá
kennslustörfum og gat upp frá því alveg helgað sig áhugamálum
sínum. Aðalverk hans á sviði fiskirannsóknanna er bókin Fiskarnir,
og stenzt hún samjöfnuð við Jrað bezta, sem skrifað er um slíka hluti
í öðrum löndum. Bjarni hafði mikið sarnan við sjómenn að sælda,
var Jjeim vel kunnugur og virtur af Jreim. Árið 1931 byrjaði Árni
Friðriksson fiskirannsóknir sínar fyrir Fiskitélag Islands, sem hafði
Jrær með höndum, unz fiskirannsóknirnar 1937 voru lagðar undir
Atvinnudeild Háskólans. Nú er ísland orðið aðili að Aljrjóða-
hafrannsóknarráðinu og mun sennilega á næstu árum taka við mestu
af Jreim rannsóknum, sem hingað til hafa verið framkvæmdar af
Dönum.
ísland liggur nyrzt í Atlantshafi á Jreim neðansjávarhrygg, sem
gerigur í suðaustur frá austurströnd Grænlands. Við strendur lands-
ins breikkar hryggur Jaessi lil mikilla muna og myndar Jrar liina auð-
ugu fiskibanka. Frá íslandi liggur hann áfram suðaustur til Færeyja
og Skotlands. Þessi neðansjávarhryggur er aðeins 575 m undir sjávar-
fleti, þar sem dýpst er á honum, og skiptir hann Norður-Atlants-
hafinu í tvo afar ólíka hluta. I.andgrunnið hefur grundvallar J)ýð-
ingu fyrir fiskveiðarnar. Það er breiðast út frá vestur- og suðaustur-
ströndinni, þar sem það nær allt að því 50—f>0 sjómílur út til hafs.
Þorskurinn hrygnir að langmestu leyti við suður- og vesturströnd
landsins og á þessum hrygningargöngum byggist rnestur hluti Jrorsk-