Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1955, Page 21

Náttúrufræðingurinn - 1955, Page 21
FUGLALÍF Á SELTJARNARNESI 15 26. Vepja (Vanellus vanellus). Hinn 13. des- ember 1953 sást vepja við Eiði. Hún sást víðar um nesið næstu daga, m. a. í Gróttu. 27. Heiðlóa (Charadrius apricarius). Sést á tímabilinu apríl—nóv., en mjög fáar í júni—júli. Hún kemur í byrjun apríl, en er ekki mjög mörg á vorin (200—300, stundum allt að 400). Snemma í ágúst fer þeim aftur að fjölga að ráði og ná há- marki seint í september og skipta þá oft þúsund- um, en fækkar í október og hverfa að mestu fyrir miðjan nóvember. Hinn 28. nóv. 1953 sást þó ein heiðlóa við Suðurnesvörðu. 28. Sandlóa (Charadrius hiaticula). Farfugl. Hún fer að koma um 20. apríl, en 1953 sáum við þó eina sandlóu 10. apríl. Henni fjölgar ört og er alkomin síðast í apríl, um 50 fuglar. Sandlóan er mjög algengur varpfugl á Seltjarnarnesi og geng- ur næst kríunni að fjölda. Mun ekki vera of hátt að áætla tölu hreiðra um 25. Sandlóan verpur í fíngerðum sandi og möl í gróðurlausu landi eða gróðurlitlu. Oft virðist hún koma hreiðrinu fyrir við hlið stórra steina, spýtna, beina og skelja. Hreiðrið er aðeins dæld í jörðina, en undir eggin er oftast hrúgað saman allmiklu af smáum skeljabrotum eða smásteinum. Hjá 29 fullorpnum fuglum reyndist eggjafjöldinn þessi: 2 egg voru í 2 hreiðrum, 4 egg í 26 hreiðrum og 5 egg í einu hreiðri. Sandlóan virtist oftast verpa eggjunum með um 2 daga millibili, en þetta er þó ekki reglulegt, því að stundum líður aðeins 1 dagur á milli eggjanna. Fyrsta hreiðrið með fullum eggja- fjölda höfum við fundið 12. mai, en aðalvarptíminn mun vera frá 20.—30. maí. Óunguð egg finnast þó fram yfir miðjan júní, og er þá líklega um eftirvarp að ræða. Biðilsflug sandlóunnar ber vott um mikla flugfimi. Flýgur þá annar fuglinn, líklega karlfuglinn, fram og aftur, fast við jörðu, í ótal hlykkjum og beygjum. Þessu heldur hann lengi áfram án þess að setjast. Fuglinn gefur um leið frá sér kvakandi hljóð. Hvert sandlóupar hefur sérstakt umráðasvæði, og rekur það allar sandlóur burt af því og jafnvel fugla annarra tegunda Ef komið er nálægt hreiðrinu, barma þær sér mjög og kveinka. Virðist sand- lóan haga sér þannig allan tímann, meðan hún á egg og unga. T. d. hefur sandlóa sézt barma sér fyrstu dagana í maí, og hefur liún þá Tjaldar.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.