Náttúrufræðingurinn - 1955, Side 27
FUGLALlF Á SELTJARNARNESI
21
ber—desember. 1 april er hún algeng, og einnig sjást stöku fuglar á
sumrin fram í ágúst.
51. Teista (Cepphus grylle). Slæðingur er af teistu i apríl og
fram í maí, og ein hefur sézt 5. des.
52. Lundi (Fratercula arctica). Verpur í Akurey. Sést stöku sinn-
um að sumrinu til i fjörunni Kollafjarðarmegin og einu sinni Skerja-
fjarðarmegin (allir ataðir í olíu). Allmikð rekur einnig af lunda á
fjörur á sumrin.
53. Snæugla (Nyctea scandiaca). Frá því ll.nóv. 1951 fram
yfir áramót hélt snæugla sig í Suðurnesi og á gröndunum.
54. Brandugla (Asio flammeus). Hinn 18.marz 1951 sást brand-
ugla nálægt Bakkakoti. Eftir það sást brandugla öðru hverju í Lamba-
staðatúni fram í april (líklega sami fuglinn). Hinn 4. febrúar 1953
fannst nýdauð og að mestu étin brandugla á Bakkagranda. Hefur
þar líklega verið valur að verki.
55. Hrafn (Corvus corax). Sést allan ársins hring, en er fágætur
á sumrin (maí—ágúst). Langalgengastur um háveturinn. Oft sjást
„hrafnaþing“ hér og þar um nesið, og sitja það oft margir hrafnar
(stundum 70 eða fleiri).
56. Músarrindill (Troglodytes troglodytes). Oft sjást fáeinir
við ströndina fyrri hluta vetrar (okt.—des.). Árin 1952 og 1953 sá-
ust þeir þó aldrei.
57. Gráþröstur (Turdus pilaris). Óreglulegur vetrargestur, sem
sést í des.—febrúar. 1 fugl sást auk þess 14. april 1953 með skógar-
þröstum. Aldrei hafa þeir sézt fleiri en 4 saman.
58. Skógarþröstur (Turdus musicus). Algengur umferðafar-
fugl, sem sést aðallega í apríl. Skipta þá oft hundruðum. Einu sinni
hefur hann sézt að vetri til, einn fugl í fjörunni 1,-—3. febrúar 1953.
59. Steindepill (Oenanthe oenanthe). Allalgengur farfugl, sem
kemur venjulega seinast í apríl (komudagar 19.4.—1.5.) og er orð-
inn algengur snemma í mai. Fækkar síðan aftur, og seint í mánuð-
inum er iitið orðið eftir annað en varpfuglar. Steindepillinn verpur
hér og þar um allt svæðið nema í Suðurnesi. Hreiðrin eru í hlöðnum
grjótgörðum, í urðum og holum undir steinum o. s. frv. Höfum að-
eins athugað 2 hreiður, annað með 5, en hitt með 8 eggjum. Ekki er
þó fullvíst, að fuglinn liafi verið fullorpinn í fyrra skiptið. Varptím-
inn virðist vera fyrri hluti júnímánaðar. 1 ágúst og í septemberbyrj-
un ber mikið á steindeplum meðfram sjónum. Seinni hluta september