Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 22
116
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Það er auðvitað vonlaust nú að ætla að skera úr um stað fyrstu
byggðarinnar; hún mun mjög snemma hafa verið báðum megin
hafnar, samanber og hlutkestið.
Mér hefur lengi verið það ráðgáta, hvers vegna Eyjarnar eru
taldar byggjast seinast á landnámstíð, og margar spurningar vakna
í tilefni af því. Landnámsmenn voru þó vanir eyjabyggð og hér
var mikið kostaland, eina höfnin, sem hægt var að tala um fyrir
allri suðurströndinni, gnægð fugls og fisks, og fé gat gengið hér
sjálfala að kalla mátti. En skógur var sjálfsagt enginn og eldiviðar-
skortur ef til vill fyrirsjáanlegur; reki ekki nægur? Eða var hér
írsk byggð fyrir? Betri sumardvalarstað en þennan gátu Irar varla
fundið við suðurströnd Islands. Var það ef til viil hér sem þrælar
Hjörleifs sáu tækifæri til frelsis? Er ekki vel hugsanlegt, að góð
sambúð hafi tekizt með írskri nýlendu og landmönnum, sem nutu
þeirra þá á margan hátt við vermennsku og fugiaveiðar? Hiifðu
Irar ef til vill fé og sauðamjólk og annað nýmeti til að veita að-
komumönnum? Og úr þvi að Landnáma kallar Papa Vestmenn,
var þá ekki nafn Eyjanna eðlilegt, ef frjálsir írar höfðu hér aðsetur
á landnámstíð? En allt hljóta þetta að vera ágizkanir nema fornleifa-
gröftur leiði eitthvað nýtt í Ijós.
En loks kom að því, sem I.andnáma kallar landnám. Margar
skoðanir hafa komið fram um landnámsstaðinn. Ræði ég þær að-
eins að litlu leyti, en vísa til greinargerðar Jóhanns G. Ólafssonar
í Árb. Ferðafél. ísl. 1948 og til Sögu Vestmannaeyja eftir Sigfús
M. Johnsen 1946. Um sögulegar heimildir styðst ég verulega við
greinargerð J. G. Ó.
Samkvæmt Hauksbók og Melabók hét sá Herjólfur Bárðarson,
er fyrstur byggði Vestmannaeyjar og bjó í Herjólfsdal fyrir innan
Ægisdyr, jiar sem nú er hraun brunnið. Hans sonur var Ormur
auðgi (aurgi), er bjó á Ormsstöðum við Hamar niðri, þar sem nú
er blásið allt. í Sturlubók segir hinsvegar, að Ormur auðgi Bárðar-
son hafi numið land í Eyjum, en J. G. Ó. (s. 98) segir fræðimenn
sammála um, að fyrri frásögnin sé réttari.
Skoðun mín er sú, að höfnin hafi frá upphafi hlotið að vera
miðdepill byggðarinnar og bæði Herjólfur og Ormur hafi búið í
nánd við hana. Hvað Dalinn snertir, sem Herjólfur á að hafa búið
í og kenndur var við hann, álít ég, að menn hafi miklað óþarflega
lyrir sér stærð þess dals. í uppvexti mínum var allt svæðið frá höfn