Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
119
áfram bundinn við móberg og skreið' hann um raka, lóðrétta
móbergsveggi. Við móberg eru og heimkynni hans í Eyjum, og á
litlu svæði. Á Suðurlandi virðist hann alls enga útbreiðsluhæfi-
leika hafa og stingur þannig mjög í stúf við Austfjarðaafbrigðið.
Hugsanlegt er, að fyrrnefnda afbrigðið hefði getað 1 iíað, af ísöld
á Sveifluhálsi og ef til vill víðar á þeim slóðum, en hefur ekki
fundizt þar. Hinsvegar taldi Guðmundur Bárðarson sig hafa fund-
ið hann í fjörumó við Garðsskagavita. Sýnishorn Guðmundar hefur
ekki fundizt á Náttúrugripasafninu, en 1960 skoðaði ég síðustu
leifarnar af þessum mó og fann engin merki um bobbann, og er
frá þessu skýrt í smágrein síðar í þessu hefti.
Á Eyjafjallasvæðinu tel ég, að bobbinn muni hafa haft skilyrði
til þess að lifa af síðustu ísöld. En hvernig stendur á veru hans í
Vestmannaeyjum? Var landsamband, eða lifði hann af ísöld í
Heimakletti? Þá mundi hann snerta jarðsögu eyjanna á síðustu
ísöld eða eftir lok ísaldar, og því er hér vakin athygli á honurn. En
vissulega kemur allt önnur skýring til greina, nefnilega sú, að
bobbinn eða lirfur hans hafi borizt til Eyja í heyflutningum. Slík-
ir heyflutningar voru mjög tíðkaðir snemma á þessari öld, en áttu
þeir sér stað snemrna á öldum meðan byggð var við Kleifnaberg?
Spurningunni um bobbann verður vart svarað með vissu, en hún
heyrir til sögu Eyjanna á einhvern hátt, jarðsögunni eða byggða-
sögunni.
HFJMILDARIT
Trausti Einarsson: Bergmyndunarsaga Vestmannaeyja. Árb. Ferðafél. ísl. 1948,
s. 131—157. (Með kafla um öskulög í jarðvegi eftir dr. Sigurð Þórarinsson).
Guðrnundur Kjartansson: Nokkrar nýjar C't aldursákvarðanir. Náttúrufræð-
ingurinn 36, 1966, s. 126—141.
Trausti Einarsson: Upper Tertiary and Pleistocene Rocks in Iceland. Vís. ísl.
36, 1962. Tilvitnun á síðu 168—9.
Guðmundur Pálmason, Jens Tómasson, Jón Jónsson, ísleifur Jónsson: Djúp-
borun í Vestmannaeyjum. Fjölriluð skýrsla á vegum Raforkumálastjóra,
febrúar 1965.
Trausti Einarsson: Late and Post-Glacial Rise in Iceland and Sub-crustal Vis-
cosity. Jökull, 16. ár, 1966, s. 157—166.
Trausti Einarsson: Submarine Ridges as an Effect of Stress Fields. Journ. of
Geophys. Research, 72, 1968, pp. 7561—7576.