Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 29

Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 29
N A T T Ú R U F R Æ ÐIN G U RIN N 123 þó einnig dálítið af blómum langt fram á haust. Hann blómgast í rauninni allt sumarið. Hunangsflugur, býflugur o.fl. skordýr sækja mikið í hunang blómanna. (Athugið hvaða skordýrategundir jiið sjáið sjúga hunang úr körfu fífilsins). Fífillinn er ekki allur Jrar sem hann er séður! Hann var lengi tal- inn ein tegund, æði breytileg að vísu. En skömmu eftir aldamótin síðustu uppgötvaði danski grasafræðingurinn, Raunkiær, atSfífillmn myndar oft frœ án frjóvgunar. Þá líkist afkvæmið móðurjurtinni al- gerlega, hvað erfðaeiginleika snertir, líkt og kartöflur undan einu grasi líkjast móðurinni. Eiginleikarnir haldast óbreyttir kynslóð eft- ir kynslóð, þeir koma frá einu foreldri. Aðeins getur brugðið út af við stökkbreytingar. Undafíflum er svipað farið og hafa bæði túnfífl- ar og undafíflar á síðari tímum verið klofnir í fjölda tegunda eða smátegunda. Munu smátegundir túnfífils nú vera taldar hátt á annað hundrað hér á landi og alls um 450 á Norðurlönduxn. En deilt er um, hvað telja skal tegund, Jregar svona stendur á, og er aðeins á færi sériræðinga að fást við hinar fjölmörgu „£ífiltegundir“. Samkvæmt Flóru Islands er íslenzku fífiltegundunum skipt í 3 aðaldeildir og vísast hér til jress. — Margir grasblettaeigendur bölva fíflinum, en börnunum þykir vænt um liann, safna körfunum og gera sér festar úr holum leggjum lians. Mjólkursafinn getur sett dökka bletti á fatnað. Fyrrum var fífillinn ekki talinn ill- gresi, síður en svo. En hann hefur orðið það síðar með breyttum ræktunaiaðfeiðum og e.t.v. tilkomu nýrra afbrigða. Fífilfræ berast auðvekllega með varningi og munu öðru hvoru nema hér land, einkuin í kaupstöðum. Berast fræ margra jurta hingað með gras- fræi og hænsnafóðri. Fífillinn vex víða um Evrópu og Asíu og N.-Ameríku og dreifist stöðugt. ,,Þó munur sé mikill á Frakklandi og Grænlandi, eru jxó fífilblöðin etin á báðum stöðunum,“ sagði hagfræðilega sinnaður prestur á 18. öld. Menn hafa gefið fíflinum mörg nöfn í ýmsum löndum. Danir kalla hann Fandens mælkebötte, jx.e. mjólkurfötu fjandans. Norðmenn kalla hann víðast Ijónstönn (lövetann), enda eru blöð sumra tegunda hvassflipótt. Nork fíflanöfn eru líka hestablóm, gullbursti, hárkall, kvöldsvæva o.fl. Frakkar kalla hann pissenlit og segja, að krökkum hætti til að væta rúmið, ef þau eta xnikið af fífilblöðum seint á kvöld- in. Enska nafnið er dandelion o.s.frv. Nöfnin er fjölmörg, jrví að fjöldi jyjóða Jrekkir fífilinn. Fífillinn hefur verið notaður til

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.