Náttúrufræðingurinn - 1970, Qupperneq 41
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
135
Svona sandlag með skeljum og kuðúngum finnst ekki í Sel-
tjarnarmónum og er ekki ástæða til að skýra lagið með skamm-
vinnri hækkun sjávar. Ekki er heldur ástæða til að gera ráð fyrir
almennu flæði inn yfir mýrina, sem mórinn var að myndast í, því
slíkt hefði haft í för með sér almennara sand- og malarlag. í þess
stað eru bobbar og skeljar innan um gróðurtrefjar. Tel ég því lík-
legast, að um fok sé að ræða frá fjörunni, líklega að einhverju
leyti inn eftir ís á tjörn eða mýri að vetri til, sbr. basaltmolann, enda
hvassviðri þá mest. Mundi skeljalagið þá svara til hvassviðra-
skeiðs.
Þessi mór er sýnilega myndaður að baki malarkambs við strönd
og hafa hér varla verið lífsskilyrði fyrir brekkubobbann (Helix
hortensis), enda fann ég engin merki hans. Guðmundnr G. Bárðar-
son taldi sig hafa fundið hann í þessum lögum neðst í fjörunni.
Ég komst líka neðst í móinn án þess að finna nokkur ummerki
bobbans. Ég verð að álíta, að um einhvern misskilning muni hafa
verið að ræða hjá Guðmundi. Gat hann ekki hafa fundiðj bobba í
Núpshlíðar- eða Sveifluhálsi, en efnið blandast saman, eða mis-
minni komið til?
LEIÐRÉTTING
í grein Ævars Petersens í síðasta hefti Náttúrufr., um fuglalíf í
Skógum á óshólmasvæði Héraðsvatna í Skagafirði, hefur meinleg
villa slæðzt inn í töfluna á bl. 36. Þar er talin fyrst tegunda heiða-
gæs (Anser brachyrhynchus), en á að vera grágæs (Anser anser).
Correction
In llie article by Ævar Petersen in the last number of this journal an un-
fortunate error has inadvertently crept into the table on page 36. The first
species listed there is lieidagæs (Anser brachyrhynchus) but this should be
subtituted by grágæs (Anser anser).