Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 47
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
141
um það var aðeins vitað um eitt fálkahreiður, með þremur ung-
um, í Jökursárgljúfrum síðastliðið sumar,*) og annað sumarið 1968,
en hvergi annars staðar í Þingeyjarsýslum, svo öruggt væri. Aftur
mátti segja, að fálkar sæjust daglega á veiðum, þegar rjúpur voru
flestar, á fyrrnefndum svæðum og tíma. En óskandi væri, að fórn-
fúsir náttúruunnendur fái samt tækifæri til að ná góðum kvik-
myndum af þeim fyrirbærum, sem hér hefur verið lýst, af fálkum,
sem gera árásir á rjúpur hátt í lofti og þjóta langt niður fyrir þær,
áður en þeir beygja upp aftur. Og þá gæti einnig svo farið, að fyrir
auga þeirra bæri tvo fálka, sem hefðu samvinnu á veiðum í skóg-
lendi í bröttum fjallahlíðum. Annar þeirra hlassar sér niður í skóg-
inn, til að reka upp rjúpu, sem komizt hefur þar til jarðar á flótt-
anum. Þegar hún flýgur upp, kemur hinn fálkinn, sem beðið hef-
ur hátt í lofti, niður eins og örskot og slær hana. eða grípur í
klærnar. Mestur fengur væri þó í því að ná góðum myndum af
þeim aðförum hans, þar sem hann slær rjúpur á flugi hátt í lofti,
og fluglína hans myndar minnst fjörutíu og fimm gráða horn við
fluglínu rjúpunnar. Slíkar kvikmyndir gætu einar skýrt muninn á
þeim aðförum — og þeirri flugsnilli, sem þar nær hámarki —
miðað við aðfarir hans við fugla á jörðu niðri eða á flugi, þar sem
hann þýtur fram yfir þá á svipaðri fluglínu og fuglarnir, sem hann
gerir árásina á.
Fróðlegt væri það og spennandi, ef í Náttúrufræðingnum væri
skýrt frá þeim árangri, sem náðst hefur á þessu sviði, með því að
kvikmynda grænlenzka fálkann á rjúpnaveiðum í lofti. Því hef ég
ekki kynnst sjállur, en nokkrum sinnum séð hann renna sér niður
að fuglum á jörðu niðri, án þess að beita fótunum. Mér virðist
hann gera það í þeim eina tilgangi að fá þá til að fljúga, á sama
hátt og ég hef svo oft séð íslenzka fálkann gera við rjúpu á ber-
svæði.
Að síðustu er það svo ósk mín og von, að takast megi að fá
fulkomnar sannanir fyrir Jrví á hvern hátt íslenzki fálkinn fær
gert þá áverka, sem áður er lýst. Og ég hef aldrei getað skilið, að
Jrað geri hann með fótunum einum saman.
) Þ.e. sumarið 1969. Greinin er skrifuð í fyrrahaust. Ritstj.