Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 48

Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 48
142 NÁTTÚRUFRÆÐIN GU R 1 N N Jóhann Þorsteinsson: Glatað tækifæri Um aldaraðir hafa Landeyjarnar verið alleftirsóttar sem varp- land margra farfuglategunda, auk þess eru þær í flugleið margra farfuglategunda og flækingar hafa oft komið þar við og dvalið þar lengur eða skemur eftir ástæðum. Land það, er liér kemur við sögu, er graslendi næst sjó á austur- bakka Affallsins, er á þessum tíma var jökulvatn og átti það til að vera viðsjált yfirferðar, ef vöxtur var í því. Þarna er landslagi svo háttað, að næst Affallinu eru sendnar valllendisflatir með rof- bökkum hér og þar. Víðast hvar er landið þarna hærra á árbakk- anum, eða skammt frá honum, en þar sem hallann þrýtur tóku við mýrarsund á milli lágxa ása, sem þarna voru kalla;ðir rimar, t.d. Fjárhúsrimi og Stöðulrimi, svo dæmi séu nefnd. Nú er landið óðum að breytast þarna af völdum stórfelldrar fram- ræslu. Þar sem áður voru ótræð mýrarfen, er nú lieyjað með vinnu- vélum. Þessi mikla breyting á landinu hlýtur að umturna svo kjörlendi margra varpfugla til hins verra, að þeir hætta að verpa þarna. Á æskuárum mínum urpu á þessum slóðum margar tegundir af fuglum, einkum voru það sund- og vaðfuglar. Flórgoðinn, sem þarna var almennt nefndur flóðseti, var á næstum því liverri tjörn, eitt eða fleiri pör, allt eftir stærð og lögun tjarnanna. Mikið var þarna af stelk og hrossagauki, er ávallt var kallaður mýrispíta þarna. Þá var töluvert af lóuþræl og jaðrakan, er þar kallaðist jaðrikja, svo og spóa, óðinshana og lóu, en aðeins einstaka keldusvín. Á malareyrum Affallsins áttu sandlóa og tjaldur oft hreiður. Mest áberandi fuglar þarna voru spói, stelkur og jaðrakan. Þessar tegundir eru allar nokkuð hávaðasamar á varpstöðvum sín- um. Sá, er vel þekkir háttalag spóans, getur auðveldlega áætlað varp-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.