Náttúrufræðingurinn - 1975, Page 44
168
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
saman við þá kenningu, að eystra gosbeltið byrji virkni fyrir 3 mill-
jónum árum síðan.
Með uppruna Heklubergs í huga er hægt að styðjast við þessa
mynd og gera líkan, sem byggist á deilibráðnun skorpuplötunnar.
Við látum hraunlagastafla, sem myndast á vestra gosbeltinu graf-
ast niður á nokkurra kílómetra dýpi jafnframt því að staflinn mjak-
ast til austurs. Á um það bil 7 km dýpi er hitastig hraunlagastafl-
ans nægjanlega hátt til þess að deilibráðnun geti hafist. Fyrsta
kvikan, sem myndast, hefir efnasamsetningu sem hugsanlega líkist
súrri Heklugjósku. Þessi kvika leitar upp en storknar fljótlega
aftur án þess að ná til yfirborðsins. Þannig safnast kísilrík innskot
fyrir í plötunni á ákveðnu dýptarbili, þar sem hitastig er jafnt og
aðeins undir bræðslumarki súru kvikunnar. Þegar skorpuplatan
berst inn yfir eystra gosbeltið færast jafnhitaferlarnir nær yfirborði,
kísilríku innskotin bráðna á ný og gjósa upp á yfirborðið.
Líkanið gefur til kynna að súr eldvirkni verði einkum á vestur-
jaðri eystra gosbeltisins. Strax og rásir hafa myndast til yfirborðs frá
ákveðnum skorpuhluta tæmist súra kvikan út á tiltölulega
skömmum tíma, en áframhaldandi deilibráðnun getur leitt til
myndunar ísúrrar kviku.
Þessi mynd er í góðu samræmi við gossögu Heklu. í upphafi mun
Hekla hafa gosið hlutfallslega mun meiru af súrri gjósku en ísúrum
hraunum. Nú eru ísúru hraunin algengust. Hekla liggur á vestur-
jaðri eystra gosbeltisins, en austar liggja eldfjöll sem hafa gosið
kísilríku bergi fyrr á tímum en eru sennilega útdauð nú.
Þetta líkan ber að taka með mikilli varúð. Hugmyndir um
deilibráðnun jarðskorpunnar undir Islandi eru reikular og byggð-
ar á tilraunum, sem voru gerðar við allt aðrar aðstæður en þær,
sem eru fyrir hendi í Heklurótum. Ástæðan til þess að líkan þetta
er sett fram til umhugsunar er sú fyrst og fremst, að fyrri kenn-
ingar um kristaldiffrun eiga við erfiðleika að etja, sem hverfa að
einhverju leyti ef reynt er að skýra samsetningu Heklubergs á
grundvelli deilibráðnunar. Enda þótt eitthvað hafi skýrst við þessa
skoðun á bergtegundum Heklu eru þó enn ekki öll kurl komin til
grafar.
Efnagreiningar voru allar framkvæmdar af Nielsi Óskarssyni og
kann ég honum miklar þakkir fyrir.