Náttúrufræðingurinn - 1975, Síða 62
180
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Jón Jónsson:
Sandfellsklofagígir og Hraunhóll
Vestan við norðurendann á Sveifluhálsi gengur dálítill dalur til
suðurs. Hann er að nokkru leyti myndaður við misgengi og má vel
greina sprungurnar vestan megin dalsins þar, sem þær hafa náð að
brjóta hraun, sem runnin eru á nútíma. Austan megin dalsins er
móberg, sem mjög heiur veðrast og er því erfiðara að greina sprung-
urnar þar. Dalur þessi heitir Sandfellsklofi og tekur nafn af mó-
bergshnúk, sem raunar að nokkru er með grágrýtisþekju og er vest-
an megin dalsins syðst.
Á þessu svæði og raunar víða á Reykjanesskaga má sjá hversu
náið samband er milli sprungumyndana og eldvirkni því syðst í
Sandfellsklofa og þar suður af hefur gos orðið á sprungu, vafalaust
þeirri sömu, sem átti sinn hlut í myndun dalsins. Nyrstu gígirnir
tveir eru í brekkunni fyrir stafni dalsins og hef ég því nefnt gíga-
röðina í heild Sandfellsklofagígi, en um nafn á þeim er mér ekki
kunnugt og ekki eru þeir merktir á neinu korti fram að þessu.
Engum efa er bundið, að megin hraunrennslið hefur verið úr
þessum nyrstu gígum, enda eru þeir á þeim hluta gígaraðarinnar,
sem lægst liggur. Þaðan hefur hraunið runnið norður dalinn og
þekur dalbotninn hlíða milli. Hafa þar myndast hrauntraðir mikl-
ar, sem nú eru að mestu sandorpnar, en sem þó má rekja norður
eftir öllum Sandfellsklofa. Þar sem sandur hefur nýlega verið tek-
inn úr hrauntröðunum kemur í ljós, að þær hafa verið óvenjulega
djúpar. Nyrsti hluti þeirra og þar með hraunið sjálft hverfur inn
undir Kapelluhraun vestur af Vatnsskarði.
Suður af Sandfellsklofa eru gosstöðvarnar vestan í Sveifluhálsi
og þar hafa gígir hlaðist upp utan í móberginu. Vestan við gígina
er móbergið á köflum brynjað hrauni, sem fallið hefur í þrem foss-
um frá gígnum og niður á sléttuna vestan við hálsinn, en ekki
verður það rakið úr því, vegna þess að sandur hylur nú það svæði
að mestu. Ljóst er hins vegar, að það hefur ekki runnið norður af
meðfram Sveifmhálsi. Hraunrennsli virðist hafa verið mjög lítið