Fréttablaðið - 16.05.2009, Síða 2
2 16. maí 2009 LAUGARDAGUR
www.ob.is26 stöðvar um land allt.
-5kr.
VIÐ FYRST
U NOTKUN
Á ÓB-LYKL
INUM
OG SÍÐAN
ALLTAF -2K
R.
TB
W
A
\R
EY
K
JA
VÍ
K
\
SÍ
A
Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is eða í síma 515 1141.
ÓB-lykilhafar geta safnað Vildarpunktum Icelandair.
Guðlaug, er þetta tóm tjara?
„Já, og algjör steypa.“
Minnihluti sveitarstjórnar Rangárþings
gagnrýnir að verja eigi 2,6 milljónum í að
malbika vegi að sumarhúsum. Guðlaug
Ósk Svansdóttir er fulltrúi minnihlutans.
VIÐSKIPTI „Tillögur um stórkostlega
fyrirgreiðslu ríkisbanka gagnvart
einum aðila á markaði felur aug-
ljóslega í sér mismunun gagnvart
öðrum,“ skrifar Sævar Freyr Þrá-
insson, forstjóri Símans, í aðsendri
grein í Fréttablaðinu í dag.
Þar fjallar Sævar um frum-
varp til nauðarsamninga Teymis,
sem gerir ráð fyrir því að skuldir
Teymis, Vodafone og Kögunar
verði skrifaðar niður um þrjá-
tíu milljarða króna. Sævar segir
nauðsynlegt að eitt gangi yfir alla
á samkeppnismarkaði.
„Að kollvarpa markaðnum
þannig að þeim sé umbunað sem
ekki standa sig er ekki bara ósann-
gjarnt heldur beinlínis hættulegt
fyrir samfélagið til lengri tíma
litið,“ skrifar Sævar. Það gangi
jafnframt gegn úrskurði Sam-
keppniseftirlitsins, og erfitt sé að
sjá að þessi aðferð geti samræmst
ríkisstyrkjareglum samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið.
Sævar segir stjórnendur Teymis
hafa keyrt fyrirtækið í þrot löngu
áður en íslenska bankakerfið hafi
hrunið. Eigið fé hafi farið úr því
að vera jákvætt um 7,5 milljarða
króna í að verða neikvætt um 25
milljarða á átta mánuðum.
Það sé því lágmarkskrafa að
horft sé til annarra fyrirtækja á
samkeppnismarkaði, ætli ríkis-
bankarnir sér að halda áfram að
skrifa niður skuldir fyrirtækja
sem hafi keyrt sig í þrot.
- bj / sjá síðu 18
Afskriftir á skuldum hættulegar segir forstjóri Símans:
Augljós mismunun
hjá ríkisbönkunum
MENNING Listahátíð í Reykjavík var
sett í gær og hefur miðasala gengið
vel að sögn Jóhönnu Vigdísar Guð-
mundsdóttur framkvæmdastjóra.
Uppselt er á fjölda viðburða en
enn eru til miðar á fjölmarga, enda
margt í boði.
„Þetta hefur gengið ótrúlega vel
og stemningin fyrir Listahátíð er
góð eins og endranær. Miðasala
hefur gengið vel og mér sýnist að
menn séu almennt að rækta garð-
inn sinn og sinna því sem er nær,
en ekki fjær,“ segir Jóhanna, sem
merkir ekki kreppuhugsunarhátt
þegar kemur að miðasölunni.
Meðal fjölmargra viðburða á
hátíðinni má nefna að í dag klukk-
an 14 sýnir ástralski götulista-
hópurinn Strange Fruit listir sínar
á Austurvelli. Listafólkið er á fjög-
urra metra háum sveigjanlegum
stöngum og sýnir á þeim alls kyns
kúnstir. Það mun setja svip sinn á
borgarlífið um helgina.
Í dag verða einnig sýndir fimm
stórir skúlptúrar undir heitinu
Campingkvinner, sem hverfist um
hjólhýsi í líki kvenna. Þá má sjá á
Austurvelli klukkan 14 og 16. - kóp
Götulistamenn verða í háloftunum á Austurvelli klukkan tvö í dag:
Góð stemning fyrir Listahátíð í Reykjavík
Í HÁLOFTUNUM Áströlsku götulista-
mennina í listahópnum Strange Fruit bar
við háloftin þar sem þeir stóðu á ríflega
fjögurra metra háum stöngum sínum
fyrir utan Kjarvalsstaði í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JAFNRÉTTISMÁL Fyrsta skrefið í því
að auka hlutdeild kvenna í stjórn-
unarstöðum fyrirtækja er að fjölga
konum í stjórnum fyrirtækjanna.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
rannsóknar Creditinfo á hlutdeild
kvenna í íslensku atvinnulífi.
Forystufólk Samtaka atvinnu-
lífsins, Félags kvenna í atvinnu-
rekstri og Viðskiptaráðs Íslands
skrifaði í gær undir samkomu-
lag þar sem hvatt er til fjölgun-
ar kvenna í forystusveit íslensks
atvinnulífs. Markmiðið er að í lok
árs 2013 verði hlutfall hvors kyns
ekki undir fjörutíu prósentum.
Hlutfall kvenna af stofnend-
um fyrirtækja hefur aukist jafnt
og þétt á síðustu árum. Árið 1990
voru konur ellefu prósent stofn-
enda fyrir tækja, en í ár er hlut-
fallið komið upp í 22 prósent, sam-
kvæmt könnun Capacent. Haldi
þessi hæga þróun áfram á óbreytt-
um hraða verður kynjahlutfallið
ekki jafnt fyrr en árið 2057, sam-
kvæmt útreikningum Fréttablaðs-
ins.
Af 24.390 framkvæmdastjór-
um íslenskra fyrirtækja eru 4.503
konur. Hlutfallið er því 18,5 pró-
sent. Gera má ráð fyrir því að
karlkyns framkvæmdastjórar séu
að meðaltali með tæplega þriðj-
ungi hærri laun en konur sem eru
framkvæmdastjórar, samkvæmt
rannsókn Capacent. Ríflega 150
þúsund krónum munar á meðal-
launum karlkyns og kvenkyns
framkvæmdastjóra, en tölurnar
eru frá árinu 2007.
Eftir því sem fyrirtækin eru
stærri því minni líkur eru á að
konur veljist í stöðu framkvæmda-
stjóra. Hjá minnstu fyrirtækjun-
um eru konur 22 prósent fram-
kvæmdastjóra, en aðeins níu
prósent hjá þeim stærstu.
Konur eru um fimmtungur
stjórnarmanna íslenskra fyrir-
tækja. Þær virðast þó mun vin-
sælli varamenn, því 51 prósent
varamanna í stjórnum er konur.
Heppilegast virðist vera að bæði
kynin komi að stofnun og rekstri
fyrirtækja. Fram kemur í könnun
Capacent að arðsemi eigin fjár sé
meiri hjá fyrirtækjum með kven-
kyns framkvæmdastjóra. Arð-
semi eigin fjár sýnir hversu mikið
eigendur hagnast á fyrirtækjum
sínum.
Fyrirtæki eru ólíklegri til að
lenda í alvarlegum vanskilum ef
framkvæmdastjórar þeirra eru
konur. Þá eru fyrirtæki sem stofn-
uð eru af báðum kynjum ólíklegri
en önnur til að hætta rekstri, hvort
sem er vegna gjaldþrots eða ann-
arra ástæðna. brjann@frettabladid.is
Stefnir í jafnt kynja-
hlutfall árið 2057
Viðskiptalífið ætlar að sameinast um að auka hlutfall kvenna í forystusveit fyrir-
tækja. Í dag er um fimmtungur framkvæmdastjóra og stjórnarmanna konur.
Fyrirtæki sem eru stofnuð og rekin af báðum kynjum standa sig betur en önnur.
ATVINNULÍFIÐ Helstu niðurstöður úr könnun á hlutdeild kvenna í íslensku atvinnulífi
voru kynntar á tíu ára afmælisráðstefnu Félags kvenna í atvinnurekstri í Rúgbrauðs-
gerðinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur hafn-
að kröfu landeiganda við Þjórsá
um vatnsréttindi í ánni. Lands-
virkjun telst því eiga svo gott
sem öll vatnsréttindi Þjórsár,
en þau eru forsenda þess að áin
verði virkjuð, eins og áform hafa
verið uppi um.
Landeigandinn krafðist þess
að samningur um sölu vatnsrétt-
inda, sem gerður var um miðja
síðustu öld teldist niður fallinn
þar sem ríkið hefði ekki nýtt rétt-
inn. Þessu hafnaði Hæstiréttur,
og staðfesti þar með dóm héraðs-
dóms í málinu. Aðilar þurfa sjálf-
ir að greiða sinn málskostnað. - bj
Kröfu landeiganda hafnað:
Landsvirkjun á
vatnsréttindin
IÐNAÐUR Tvær umsóknir bárust
um sérleyfi til rannsóknar og
vinnslu kolvetnis á Drekasvæð-
inu, en útboðsfrestur rann út í
gær. Umsóknirnar verða opn-
aðar á Orkustofnun klukkan 14
á mánudag og gefst almenningi
kostur á að vera viðstaddur.
Í tilkynningu Orkustofnunar
segir að áhuga umsækjanda
á útboðinu beri að fagna, sér-
staklega í ljósi hinna sérstöku
aðstæðna á Drekasvæðinu. Um
kostnaðar- og áhættusamt verk-
efni til langs tíma sé að ræða.
Stofnuninni hefur einnig borist
umsókn um leitarleyfi. - kóp
Útboð Orkustofnunar:
Tvær umsóknir
í Drekasvæðið
FÓLK Sýning á íslenskri hönnun
var opnuð í Listasafni Reykja-
víkur á Kjarvalsstöðum í gær, á
sama tíma og málverkasýningin
Frá Unuhúsi til Áttunda strætis.
Hönnunarsýningin er unnin í
samstarfi við Hönnunarmiðstöð
Íslands og er á dagskrá Lista-
hátíðar í Reykjavík. Sýningunni
er ætlað að kynna brot af því
besta sem er að gerast í íslenskri
hönnun í dag með áherslu á hús-
gagna- og vöruhönnun og arki-
tektúr í víðum skilningi.
- hs / sjá Heimili og hönnun
Hönnun á Kjarvalsstöðum:
Rjóminn af ís-
lenskri hönnun
HUGVIT OG FRAMSÆKNI Á sýningunni
Íslensk hönnun 2009 er kynnt brot af
því besta í íslenskri hönnun í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÉLAGSMÁL Þorgeir Eyjólfsson
hefur sagt starfi sínu sem for-
stjóri Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna lausu. Í samtali við frétta-
vef Morgunblaðsins í gær sagði
hann ástæðuna vera breytingar
á baklandi sjóðsins. Nýverið var
skipt um stjórn VR og Kristinn
Örn Jóhannesson tók við sem for-
maður af Gunnari Páli Pálssyni,
en VR er bakland sjóðsins.
Stjórn sjóðsins fundar á mánu-
daginn um eftirmann Þorgeirs.
Í fréttum Stöðvar 2 í gær kom
fram að Þorgeir fengi sex mánaða
uppsagnarfrest sinn greiddan og
héldi lúxusjeppa sínum. - kóp
Lífeyrissjóður verzlunarmanna:
Þorgeir hættir
sem forstjóri
SKEMMTUN Hrafna Hanna Elísa
Herbertsdóttir hafði sigur í Idol-
inu á Stöð 2 í gær. Alls greiddu
sjötíu þúsund manns atkvæði og
var Hrafna valin fram yfir Önnu
Hlín Sekulic, sem lenti í öðru
sæti.
Hrafna flutti lagið Ticket to
the Moon með ELO og dómnefnd
valdi fyrir hana lagið Ég elska
þig enn með Mannakornum.
Báðar stúlkurnar fluttu síðan
lagið Alla leið, sem þeir Örlygur
Smári og Páll Óskar sömdu sér-
staklega fyrir keppnina. Anna
Hlín flutti lagið Woman in Love,
sem Barbra Streisand gerði
frægt, og dómnefnd valdi lagið
Hlustaðu á regnið með Trúbrot.
- kóp
70 þúsund greiddu atkvæði:
Hrafna hafði
sigur í Idolinu
SUNGIÐ TIL SIGURS Hrafna söng til
sigurs á sviði Smáralindarinnar í gær og
er ný Idolstjarna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SPURNING DAGSINS