Fréttablaðið - 16.05.2009, Síða 4
4 16. maí 2009 LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL „Enn eru hér alþingismenn sem
kynntust því á yngri árum hvernig ágrein-
ingur um tengslin við önnur ríki klauf
þjóðina í herðar niður, sundraði samstöðu
á örlagastundum,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, í ræðu sinni við
þingsetningu 137. löggjafarþings í gær.
Hann minnti þingmenn á að hafa hugfast
að „á hinum nýju tímum þarf að efla sam-
stöðu Íslendinga, varðveita þá einingu sem
er forsenda árangurs“. En jafnframt að
umræðan um Evrópusambandið gæti orðið
efni til slíks klofnings eins og þjóðin hafi
áður reynt, ef illa tekst til. Því þurfi öll með-
ferð málsins að vera með þeim hætti að sem
flestir verði sáttir.
„Rökin bæði með og á móti eru svo efnis-
rík að sérhverjum ber að virða málflutning
hinna, gæta hófs, viðurkenna að málið snert-
ir svo sögu, sjálfsvitund og framtíðarsýn
Íslendinga að strengir röksemda og heitra
kennda munu ætíð hljóma í senn.“
Ólafur Ragnar minnti einnig á að Alþing-
is bíða erfiðari verkefni en oftast áður. Að
endurreisa fjármálakerfið, atvinnulífið og
heimilin og að tryggja velferð þeirra sem nú
glíma við atvinnuleysi, tekjutap og eigna-
missi auk þess að efla umsvifin í byggðum
landsins.
Þegar umræðan um stjórnarskrá er tengd
efnahagslegum erfiðleikum þarf að hafa í
huga að stjórnskipun og lýðræðislegt sam-
félag stóðst mikla þolraun, að liðast ekki í
sundur vegna átaka og erfiðleika, sagði Ólaf-
ur Ragnar. „Aldrei fyrr hefur alþingiskosn-
ingar borið að með slíkum hætti og mikil-
vægt að gera nú fagnað því að þjóðin tók af
öryggi og festu valdið sem henni bar í sínar
hendur. Það sýnir styrk lýðræðisins meðal
okkar og rætur þess í hugum fólksins, hefð-
um og siðum sem allir virða.“
Í umræðum um breytingu á stjórnarskrá
þurfi því að hafa í huga sögu Íslendinga
og hinar evrópsku lýðræðishefðir og meta
hvers vegna Evrópa hafi kosið sér slíkt lýð-
ræðisform sem þingræði er. „Þó margt
megi sannarlega bæta í stjórnskipan lands-
ins blasir engu að síður við sú staðreynd
að stjórnarskráin sem þjóðin samþykkti
við lýðveldisstofnun dugði vel þegar mest
á reyndi. Þjóðinni var fært það vald sem
hún kallaði eftir, alþingiskosningar fóru
fram, ríkisstjórn með meirihluta að baki
sér kemur til hins nýja þings og víðtækari
breytingar hafa orðið á löggjafarstofnuninni
en nokkru sinni á lýðveldistíma.“
svanborg@frettabladid.is
ESB má ekki kljúfa þjóðina
Ólafur Ragnar Grímsson minnti á að stjórnskipan hefði staðist þolraun en ekki liðast í sundur vegna átaka,
í ræðu sinni við setningu Alþingis. Umræðan um aðild að ESB mætti ekki kljúfa þjóðina í herðar niður.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
24°
22°
16°
11°
16°
19°
21°
12°
12°
20°
14°
25°
22°
31°
16°
15°
25°
12°
Á MORGUN
Hæg norðaustlæg eða
breytileg átt.
MÁNUDAGUR
Hægviðri.
14
12
14
12
9
10
10
14
11
8
5
4
3
4
3
6
5
9
7
7
6
13
10
15
16
1110
18
18
14
13
10
1211
18 18
BLÍÐA FRAM
Í NÆSTU VIKU
Helstu tíðindin eru
þau að það verða
litlar sem engar
breytingar næstu
daga en það og
er hæglætis veður
fram undan. Það
verður áfram hlýtt
og líklegt að hitinn
fari hátt í 19 stig
í innsveitum suð-
vestanlands næstu
daga.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
FJÓRIR NÝIR ÞINGMENN FORMENN
Allsherjarnefnd
Steinunn Valdís Óskarsdóttir (S)
Efnahags- og skattanefnd
Helgi Hjörvar (S)
Félags- og tryggingamála-
nefnd
Lilja Mósesdóttir (V)
Fjárlaganefnd
Guðbjartur Hannesson (S)
Forsætisnefnd
Ásta Ragnh. Jóhannesdóttir (S)
Heilbrigðisnefnd
Þuríður Backman (V)
Iðnaðarnefnd
Skúli Helgason (S)
Menntamálanefnd
Oddný Harðardóttir (S)
Samgöngunefnd
Björn Valur Gíslason (V)
Sjávarútvegs- og
landbúnaðarnefnd
Atli Gíslason (V)
Umhverfisnefnd
Þórunn Sveinbjarnardóttir (S)
Utanríkismálanefnd
Árni Þór Sigurðsson (V)
Viðskiptanefnd
Álfheiður Ingadóttir (V)
FORMENN FASTA-
NEFNDA ALÞINGIS
Samkvæmt samkomulagi
stjórnarflokkanna
Nýr forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, kallaði eftir
tilnefningu allra flokka í vinnuhóp til að endurskoða starf þingsins
í ræðu sinni á Alþingi í gær. „Við viljum vinna áfram í því að gera
Alþingi að fjölskylduvænum vinnustað, til að vinnulag verði eins og
hjá öðrum í þjóðfélaginu,“ segir Ásta Ragnheiður.
Skipað var í fastanefndir þingsins í gær og í tólf fastanefndum,
utan forsætisnefndar, eru þingmenn Samfylkingar og Vinstri
grænna með formennsku í sex nefndum hver flokkur. Þá eru sex
konur og sex karlar formenn nefnda. Guðbjartur Hannesson verður
formaður fjárlaganefndar og Árni Þór Sigurðsson formaður utanríkis-
nefndar.
Fjórir nýliðar fá að spreyta sig á nefndarformennsku. Fyrir Sam-
fylkingu verður Skúli Helgason formaður iðnaðarnefndar og Oddný
Harðardóttir formaður menntamálanefndar. Fyrir Vinstri græn
verður Lilja Mósesdóttir formaður félags- og tryggingamálanefndar
og Björn Valur Gíslason formaður samgöngunefndar.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, og
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, verða í utanríkis-
málanefnd. Borgarahreyfingin mun eiga fulltrúa í öllum nefndum,
auk þess að eiga áheyrnarfulltrúa í forsætisnefnd.
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Forseti Íslands minnti við upphaf Alþingis í
gær á að stjórnarskráin hefði dugað vel þegar á reyndi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Lögregla hefur fengið í hendur krufn-
ingarskýrslu konu sem fannst látin í dúfnakofa í
Hafnarfirði í byrjun febrúar. Lögregla vill ekkert
gefa upp um niðurstöðuna, en samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hefur sambýlismaður konunnar, sem
sat í gæsluvarðhaldi vegna málsins um tíma, enn
stöðu sakbornings í málinu.
Konan, Sirrey María Alexandersdóttir, fannst látin
í dúfnakofa nálægt geymslusvæði til móts við álverið
í Straumsvík að kvöldi 5. febrúar. Hún var nakin með
lambhúshettu á höfði. Úlpa hennar lá á jörðinni fyrir
utan kofann. Svo virðist sem konan hafi komið að
kofanum ásamt sambýlismanni sínum á bíl.
Maðurinn, sem er fæddur árið 1972 eins og konan,
var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald dag-
inn eftir. Fram hefur komið að fólkið hafi verið í
óreglu. Maðurinn losnaði úr varðhaldi 20. febrúar.
Líklegt þótti að konan hefði farið inn um glugga á
kofanum sjálf og ekki var talið útilokað að hún hefði
frosið í hel.
Bráðabirgðaniðurstaða krufningar barst skömmu
eftir að málið kom upp en varpaði ekki frekara ljósi á
málið. - sh
Enn með stöðu sakbornings í máli konu sem fannst látin í dúfnakofa:
Krufningarskýrslan er tilbúin
DÚFNAKOFINN
Kofinn sem
konan fannst
látin í er í eigu
Skrautdúfna-
félags Hafnar-
fjarðar.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
FÉLAGSMÁL Velferðarsjóður barna
stendur í sumar fyrir verkefninu
Sumargleði. Með því er ætlunin
að styrkja ýmiss konar námskeið
fyrir börn og unglinga hjá
sveitar félögum, íþróttafélögum
og félagasamtökum.
Velferðarsjóðurinn vill
tryggja jafnan aðgang barna og
unglinga að námskeiðum. Þar
sem fjárhagslegar aðstæður
margra heimila hafa versnað til
muna undanfarið mun sjóðurinn
koma til móts við þau heimili sem
illa standa. Til þess þurfa nám-
skeiðahaldarar að sækja um hjá
Sumargleðinni. Verkefnastjóri er
Þórey Edda Elísdóttir. - kóp
Velferðarsjóður barna:
Styrkir nám-
skeið fyrir börn
PALESTÍNA, AP Palestínumenn á
Vesturbakkanum og Gasasvæð-
inu hafa undanfarna daga minnst
þess að 61 ár er liðið frá því að
Ísraelsríki var stofnað árið 1948.
Hundruð þúsunda Palestínu-
manna flúðu eða voru hrakin að
heiman í kjölfar stofnunarinnar.
Palestínumenn nefna þennan
atburð „nakba“, eða hörmung-
arnar.
Á Vesturbakkanum, þar sem
Fatah-hreyfingin ræður ríkjum,
minntust menn þessa á fimmtu-
dag, en í gær á Gasasvæðinu, þar
sem Hamas hefur völdin. - gb
Palestínumenn fagna ekki:
Upphafs hörm-
unga minnst
MÓTMÆLI Á GASA Ísraelskir landamæra-
verðir handtaka Palestínumann.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GENGIÐ 15.05.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
209,9316
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,25 126,85
191,51 192,45
171,18 172,14
22,984 23,118
19,39 19,504
16,048 16,142
1,3282 1,336
191,63 192,77
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Út í skurð eftir ofsaakstur
Sextán ára ökumaður endaði ökuferð
sína utanvegar eftir ofsaakstur frá
Reykjavík að Ölfusi um miðjan dag
í gær. Lögreglu bárust tilkynningar
um ofsaakstur bíls á austurleið, og
mældu hann á 118 kílómetra hraða.
Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum
áður en tókst að stöðva för hans.
Hann er ekki talinn alvarlega slasaður.
Slökktu eld í veggarni
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var
kallað að fjölbýlishúsi við Suður-
hóla í Breiðholti í gær. Þar hafði
eldur í veggarni farið úr böndunum.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn, en
reykræsta þurfti íbúðina. Slökkviliðið
rýmdi stigaganginn á meðan slökki-
starfi stóð.
LÖGREGLUMÁL