Fréttablaðið - 16.05.2009, Síða 10
10 16. maí 2009 LAUGARDAGUR
NEYTENDUR Hreinlætisvörur,
drykkjarvörur og ýmsar nýlendu-
vörur hafa hækkað mikið en
grænmeti, ávextir og mjólkurvör-
ur hafa lækkað í verði á flestum
stöðum þar sem verð var kannað
á vegum verðeftirlits ASÍ. Mæl-
ingar á vörukörfu ASÍ fóru fram í
nítjándu viku og er miðað við mæl-
ingar frá því í þriðju viku.
Vörukarfan hækkaði mest í
Kaskó og Nóatúni en lækkaði
mest í 10-11, Krónunni og Bónus.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá ASÍ.
Vörukarfan hækkaði um 3,6
prósent í Kaskó og um 3,1 prósent
í Nóatúni en lækkaði um 2,6 pró-
sent í 10-11, 1,7 prósent í Krónunni
og 1,6 prósent í Bónus.
Ester Sveinbjarnardóttir, verk-
efnastjóri verðeftirlits ASÍ, segir
að hækkanir hafi verið áberandi á
hreinlætisvörum, drykkjarvörum
og ýmsum nýlenduvörum í flest-
um verslunum en að öðru leyti sýni
niður stöðurnar að matvælaverð
hafi lækkað.
Í Kaskó má rekja verðhækkun-
ina til mikillar hækkunar á kjöt-
vörum, hreinlætis- og snyrtivör-
um og drykkjarvörum. Í Krónunni
vega þyngst hækkanir á hreinlætis-
og snyrtivörum og drykkjarvörum
en kjötvörur lækkuðu í verði um níu
prósent.
Í stórmörkuðum hækkaði verð
vörukörfunnar mest í Nóatúni eða
um 3,1 prósent sem rekja má mest
til hækkana á kjötvörum, hreinlæt-
is- og snyrtivörum, brauði, korn-
vörum og drykkjarvörum. Af stór-
mörkuðum lækkaði Hagkaup verðið
mest eða um 0,7 prósent. - ghs
BRETLAND Shahid Malik, aðstoðar-
dómsmálaráðherra Bretlands,
sagði af sér í gær eftir að upp
komst að hann hafði nælt sér í
rúm 65 þúsund pund úr opinber-
um sjóðum undanfarin þrjú ár.
Féð, sem er jafnvirði um það
bil 12 milljóna króna, fékk hann
í styrk fyrir halda annað heim-
ili í London, en hann á einnig
heimili í kjördæmi sínu, Vestur-
Jórvíkurskíri. Féð átti að nota til
að greiða leigu af húsnæðinu, en
í reynd fékk hann húsnæðið mjög
ódýrt og mismunurinn fór í eigin
vasa.
Sjálfur hafði Malik þó, stuttu
fyrir afsögn sína, sagst hafa
hreinan skjöld: „Ég þarf ekki
að biðjast afsökunar á neinu. Ég
hef ekki gert neitt rangt,“ sagði
hann, og bætti því við að nú væri
nóg komið af „blóðveislu“ fjöl-
miðla, sem undanfarna daga
hafa ljóstrað upp um hvern þing-
manninn á fætur öðrum. Þing-
mennirnir hafa þegið stórar fjár-
hæðir úr ríkissjóði til þess að
kaupa í matinn og greiða fyrir
viðhald af húsum þeirra, og annað
af því tagi sem almenningi þykir
eðlilegt að launin þeirra eigi að
duga fyrir. Jafnvel eru dæmi um
þingmann sem lét ríkið greiða
afborganir af láni, sem hafði þó
verið greitt að fullu.
Dagblaðið Telegraph komst yfir
þessar upplýsingar um útgjöld
þingmanna, sem birta átti hvort
sem er samkvæmt dómsúrskurði í
næsta mánuði. Blaðið hefur verið
að birta þessar upplýsingar smám
saman, með þeim afleiðingum að
þingheimur er í uppnámi.
Enginn stjórnmálaflokkur
hefur sloppið óskaddaður. Sumir
þingmenn hafa endurgreitt tugi
þúsunda punda, og þótt þeir haldi
því statt og stöðugt fram að þeir
hafi farið algerlega að þeim regl-
um, sem um þessi mál gilda, þá
lætur almenningur sér fátt um
þær varnir finnast.
Margir þingmenn eru sagðir
hugleiða að segja hreinlega af
sér þingmennsku vegna þessara
uppljóstrana.
Ríkisstjórn Gordons Brown og
Verkamannaflokksins stendur
afar tæpt þessa dagana. Efna-
hagskreppan á sinn þátt í litlu
fylgi hennar, en þessi útgjalda-
mál þingmanna eiga einnig stór-
an þátt í hrakförum flokksins.
Samkvæmt nýrri skoðana-
könnun, sem gerð var fyrir dag-
blaðið The Sun, myndu 22 pró-
sent kjósa Verkamannaflokkinn,
en Íhaldsflokkurinn fengi 41 pró-
sent og Frjálslyndi flokkurinn 19
prósent.
gudsteinn@frettabladid.is
Ráðherra segir af sér
Fyrsti ráðherrann sem segir af sér vegna útgjaldahneykslisins í Bretlandi er
Shahid Malik. Hann segist þó ekki hafa brotið neinar reglur og kvartar undan
„blóðþorsta“ blaðamanna. Fylgi ríkisstjórnar Gordons Brown er í lágmarki.
GORDON BROWN Stjórnin á í vök að verjast, eins og reyndar þingheimur allur, vegna þess hve þingmenn hafa ótæpilega þegið fé
úr ríkissjóði. NORDICPHOTOS/AFP
Stafir lífeyrissjóður boðar til ársfundar á Grand hóteli
Reykjavík á þriðjudaginn kemur, 19. maí, kl. 17:00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og tillögur
að breytingum á samþykktum sem hægt er að kynna sér
á stafir.is.
Stafir boða jafnframt til sjóðfélagafundar kvöldið fyrir
ársfund, mánudaginn 18. maí, kl. 20:00.
Stjórnendur Stafa ætla þar að „rýna í stöðuna“ með
fundargestum og svara fyrirspurnum um afleiðingar hrunsins
og um niðurstöður ársreiknings 2008.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og afla upplýsinga
eða leita svara við spurningum.
Allir sjóðfélagar eru hjartanlega velkomnir á báða fundina!
Stórhöfða 31 | 110 Reyk jav ík | S ími 569 3000 | www.staf i r . i s
Sjóðfélagafundur 18. maí
Ársfundur 19. maí
Stjórn Stafa lífeyrissjóðs
st
of
a1
08
GÍRAFFAFJÖLSKYLDA Litli gírafinn
Shani fær góða athygli frá foreldrum
sínum, Naruk og Kibaya, í dýragarðin-
um í Berlín. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Verðbreytingar á vörukörfu ASÍ frá því í janúar 2009:
Hreinlætisvörur hækkuðu mest í verði
Grafið sýnir að verðið hækkaði mest í Kaskó og Nóatúni en lækkaði mest í Tíu-ellefu.
4
3
2
1
0
-1
-2
-3
Vörukarfa ASÍ Breytingar á milli 3. og 19. viku 2009
-1,6
%
-1,7
1,0 3,6 0,7 3,1 1,6
-2,6
2,5 1,1
Heimild: Fréttatilkynning ASÍ
HÆLISLEITENDUR Sturla Ólafsson
sjúkraflutningamaður segir að
honum hafi verið „nauðgað“ af
fjölmiðlum þegar þeir fjölluðu
um skrif hans á Fésbókarsíðu 12.
maí.
Stöð 2 greindi þá frá því að þar
stæði, í umfjöllun um hælisleitend-
ur, „held við ættum bara að negla
frímerki á rassgatið á þessu liði
og senda það með fyrstu flugvél
til Órafjarrillíu“.
Vakti þetta sérstaka athygli þar
sem Sturla vinnur á Suðurnesjum,
þar sem hælisleitendur eru geymd-
ir. Hann gæti því þurft að flytja þá
á sjúkrahús í veikindum.
Sturla segist
hafa verið að
vísa til bágbor-
innar meðferðar
stjórnvalda á
fólkinu. Það sé
látið dúsa hér
ár eftir ár, án
þess að nokkuð
sé gert í þeirra
málum. Því sé
ekki leyft að
vinna eða ganga í skóla á meðan.
Skárra væri að fara illa með fólkið
á skemmri tíma, svo sem með því
að senda það strax burt.
„Fjölmiðlar hafa látið líta svo
út að hér sé rasismi á ferð. En það
er fáránlegt að halda að ég, sem
hef lagt mikið á mig til að verða
sjúkraflutningamaður, hafi vilj-
að niðurlægja fólk sem er að berj-
ast við ömurlegar aðstæður og sér
enga lausn aðra en að svelta sig.“
Sturla biðst afsökunar á ummæl-
um sínum, en segist ekki geta
borið ábyrgð á ummælum ann-
arra, sem birtust á síðunni. Hann
hafi reynt að skýra mál sitt fyrir
fréttastofu Stöðvar 2 en allt kom
fyrir ekki. Sturla ítrekar að hann
og samstarfsmenn hans starfi af
heilindum og manngæsku. Því
megi treysta. - kóþ
Sjúkraflutningamaður segist hafa vísað til illrar meðferðar á hælisleitendum:
Ósáttur við umfjöllun fjölmiðla
STURLA ÓLAFSSON