Fréttablaðið - 16.05.2009, Side 13
LAUGARDAGUR 16. maí 2009
Pantaðu ráðgjöf á landsbankinn.is,
í útibúinu þínu eða í síma 410 4000
NÝTT KORTATÍMABIL
%
nema 15% afsláttur af allri snyrtivöru
og hjá NTC
Afsláttur af völdum vörum hjá
Oasis og Jane Norman
AF ÖLLU*
AFSL.
Gerðu góð kaup
alla helgina!
Sprengidagar
*Munið að 25%
Sprengidagsafsláttur gildir
ofan á allar útsöluvörur
Áfram fjör og flottar vörur
Sprengitilboð
laugardag og sunnudag
að sækja um, er að framkvæmda-
stjórn er falið að semja skýrslu
þar sem lagt er mat á aðildarhæfni
umsóknarríkisins. Sú skýrsla er
forsenda fyrir því að ráðherraráð
Evrópusambandsins taki afstöðu
til þess hvort hefja beri viðræð-
ur.“
Hvað varðar formennsku Spán-
verja á fyrri helming ársins 2010
segir Auðunn að það geti orðið
Íslendingum heppilegt. „Út frá
hagsmunum Íslendinga getur það
verið mjög gott, því formennsku-
ríkið er alltaf í málamiðlunarhlut-
verki. Það er í hlutverki þess að sjá
til þess að það náist niðurstaða í
þeim samningum sem farið er í.
Því getur það ekki leyft sér að ota
sínum sérhagsmunatota eins har-
kalega og annars væri.“
Viðræður snúast um sérlausnir
Ýmsir hafa haldið því fram að
afstaða Evrópusambandsins og
gildandi löggjöf þess sé vel þekkt
og ef aðildarsamningar snúast
fyrst og fremst um það hvernig
umsóknar ríki tekur upp gildandi
löggjöf og stefnumið ESB, er þá
eitthvað um að semja? Auðunn
segir að með því að skoða aðildar-
samninga annarra ríkja sjáist að
það sé alltaf sveigjan leiki til sér-
lausna. „Hvert aðildarríki heftir
alltaf eitthvert sérmál sem það
telur sig verða að ná fram í aðildar-
viðræðum. Það eru mörg fordæmi
fyrir sérlausnum og sértækum
aðlögunum eftir aðstæðum í hverju
landi. Það er einmitt mikilvægt að
samninganefndin íslenska nýti sér
til hins ýtrasta að skoða þær sér-
lausnir sem önnur ríki hafa fengið
í sínum samningum til að færa rök
fyrir því að Íslendingar ættu að fá
sínar sérlausna hugmyndir fram í
viðræðunum.“
Auðunn bendir á að eitt sé laga-
bókstafurinn og annað sé prakt-
íkin; hvernig leyst sé úr málum.
„Það má til dæmis benda á ákvæði
um að styrkja beri sérstaklega
norðurslóðalandbúnað, bæði í
Finnlandi og Svíþjóð, sem er
ekki álitið vera undantekning frá
landbúnaðar stefnunni, en er samt
sérsniðin lausn.“
Auðunn segir að hægt sé að vísa
til margra fordæma fyrir slíkum
sérlausnum, sem eru varanlegar
en gilda ekki einungis í einhvern
aðlögunartíma. „Þess vegna reyn-
ir mjög á að undirbúningurinn og
heimavinnan hér sé þannig að alls
konar slíkar sérlausnir í aðildar-
samningum annarra landa séu
nýttir sem fordæmi fyrir kröfum
Íslendinga.“
FRÉTTAVIÐTAL
SVANBORG SIGMARSDÓTTIR
svanborg@frettabladid.is
Erfiðir
Landbúnaður
Sjávarútvegur
Efnahags- og myntbandalagið
Byggðamál
Fjármál og fjárlög ESB
Stofnanamál
Miðlungserfiðir
Matvælaöryggi
Orkumál
Skattamál
Félags- og atvinnumál
Mannréttindi og dómstólar
Umhverfismál
Tollabandalagið
Alþjóðatengsl
Utanríkis-, öryggis- og varnarmál
MISERFIÐIR KAFL-
AR Í VIÐRÆÐUNUM
Heimild: Inni eða úti? Aðildarviðræður
við Evrópusambandið