Fréttablaðið - 16.05.2009, Síða 52
106
Gott fólk ehf.
Þrotabú
Til sölu úr þrotabúi Góðs fólks ehf. Tölvur, húsgögn,
skannar, prentarar og ýmislegt fl eira.
Upplýsingar fást hjá skiptastjóra, Magnúsi Guðlaugssyni hrl.
Skólavörðustíg 12, Reykjavík, sími 511-2000 magus@logmal.is
Innkaupaskrifstofa
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Tilboð óskast í útvegun og uppsetningu á
vatnsrennibraut í Laugardalslaug.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 1.500 í
síma- og upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Vettvangsskoðun verður í Laugardalslaug þann
20. maí 2009 kl. 10:00 Opnun tilboða: 29. maí 2009
kl 14:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
12267
Nánari upplýsingar er að fi nna á
www.reykjavik.is/utbod.
Auglýsing um skipulag í Kópavogi.
Skipulags- og umhverfi ssvið
Vatnsendi - norðursvæði, Breiðahvarf 5. Breytt skipulag.
A. Breytt aðalskipulag.
Tillaga að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012 auglýsist hér með skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulagssvæðið tekur
til lóðarinnar nr. 5 við Breiðahvarf. Í tillögunni felst ósk um breytta landnotkun. Landnotkun svæðisins sem er í gildandi aðalskipulagi skilgreind sem
íbúðarsvæði, verður eftir breytingu með blandaða landnotkun íbúðasvæðis og svæðis fyrir þjónustustofnanir. Á breytingasvæðinu sem er 1048 m² er
áætlað að breyta einbýlishúsi í ungbarnaleikskóla með aðstöðu fyrir 25 börn. Gert er ráð fyrir 5 starfsmönnum og 10 bílastæðum á lóð. Byggingarmagn
og nýtingarhlutfall lóðarinnar er óbreytt.
Helstu rök fyrir uppbyggingu þjónustustofnunnar á lóðinni er ósk um að auka þjónustu í íbúðabyggðinni og fjölbreytni í dagvistun ungbarna.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 dags. í desember 2008.
B. Breytt deiliskipulag.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga, auglýsist tillaga að breyttu deiliskipulagi Breiðahvarfs 5. Almennt er vísað í deiliskipulag og skipulags-
skilmála fyrir Vatnsenda - Norðursvæði, samþykkt í bæjarráði 26. júlí 2002.
Í erindinu felst ósk um að breyta einbýlishúsinu Breiðahvarfi 5 í ungbarnaleikskóla fyrir 25 börn. Gert er ráð fyrir að starfsmenn verði 5 og 10 bílastæði á
lóð. Áætlað er að núverandi hesthús verði geymsla.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð dags. 8. apríl 2009. Nánar vísast til kynningargagna.
Dalsmári 21, breytt deiliskipulag.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga, auglýsist tillaga að breyttu deiliskipulagi Dalsmára 21 Almennt er vísað í deiliskipulag og skipulags-
skilmála fyrir Kópavogsdal m.s.br. samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs 12. maí 1992
Í erindinu felst ósk um að koma fyrir færanlegri kennslustofu á lóð leikskólans Kjarrsins að Dalsmára 21. Austurlóðarmörk breytast með tilheyrandi
færslu á göngustíg.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:200 ásamt greinargerð dags. 5. maí 2009. Nánar vísast til kynningargagna.
Tillögurnar verða til sýnis á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fi mmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til
15:00 frá 19. maí 2009 til 16. júní 2009. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa
borist skrifl ega Bæjarskipulagi eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 7. júlí 2009. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir
tillögunni.
Smári Smárason,
skipulagsstjóri Kópavogs.
Auglýsing um skipulag í Kópavogi.
Skipulags- og umhverfi ssvið
Glaðheimar. Deiliskipulag.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, auglýsist hér með tillaga að deiliskipulagi fyrir Glaðheima.
Deiliskipulagið tekur yfi r svæði sem eldri deiliskipulagsáætlanir gilda um og með gildistöku fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu munu þær falla úr gildi.
Tillagan byggir á hugmyndum lóðarhafa norðursvæðis um fyrirhugaða byggð sem unnar hafa verið af teiknistofunni Arkis. Tillaga suðursvæðis er unnin
af Bæjarskipulagi Kópavogs.
Tillagan fyrir Glaðheima nær til um 12,6 ha lands og er skipt í norður og suðursvæði. Svæðið afmarkast af Reykjanesbraut til vesturs, Bæjarlind 12-18
í norður, Bæjarlind 1-3 og athafnasvæði við Akra- og Askalind til austurs og fyrirhuguðum Arnarnesvegi til suðurs. Innan marka þess er Áhaldahús
Kópavogsbæjar, athafnasvæði Hestamannafélagsins Gusts, hesthús, gerði, skeiðvöllur og reiðskemma. Samkvæmt fasteignaskrá eru á svæðinu um
14.000 m2 í sérhæfðu húsnæði. Í breytingunni felst að opið svæði til sérstakra nota (hesthúsahverfi ) er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu og að
hluta til í blandaða landnotkun verslunar, þjónustu og íbúðarsvæðis. Lóð Áhaldahúss Kópavogs breytist úr athafnasvæði í blandaða landnotkun versl-
unar, þjónustu og íbúðarsvæðis. Aðkoma að svæðinu verður frá Arnarnesvegi, Lindarvegi og Bæjarlind sem tengist Reykjanesbraut. Einnig er gert ráð
fyrir nýjum undirgöngum undir Reykjanesbraut fyrir bæði gangandi og akandi umferð frá Hæðarsmára. Um svæðið liggur ný safngata frá Arnarnesvegi
að Bæjarlind. Áætlað er að á skipulagssvæðinu verði byggt í heildina um 126.000 m2, þar af 102.000 m2 á norðursvæði. Á norðursvæði er gert ráð
fyrir um 80.000 m2 í verslun og þjónustu og eru tvö háhýsi fyrirhuguð á því svæði, annað 8 hæðir auk kjallara og 32 hæða bygging í norðvestur hluta
norðursvæðisins næst Reykjanesbraut. Austast á norðursvæði, næst Lindavergi, þar sem nú er Áhaldahús Kópavogs og reiðskemma Gusts gerir tillagan
ráð fyrir íbúðabyggð með um 245 íbúðum í 4 til 12 hæða fjölbýli alls um 24.000 m2. Miðað við 2,7 íbúa á íbúð er áætlað að á svæðinu verði um 660
íbúar. Miðað er við að reistir verði um 24,000 m2 í verslun- og þjónustu á suðursvæði sem verða að stofni til í 2-5 hæða húsum auk kjallara.
Núverandi byggingar á svæðinu (hesthús og áhaldahús), alls um 14.000 m2, verða rifnar eða færðar. Áætluð reitanýting svæðisins verður um 1,0. Reita-
nýting segir til um hlutfallið milli brúttó fl atarmáls bygginga á landnotkunarreit. Meðaltals lóðanýting er um 1.6 og nýting einstakra lóða liggur á bilinu
0.3 til 8.6. Skilgreining á lóðarnýtingu segir til um hlutfallið á milli brúttó fl atarmáls byggingar á lóð og fl atarmáls lóðar. Áætlað er að á svæðinu verði að
lágmarki 2 bílastæði á hverja íbúð og 1 bílastæði á hverja 35 m2 atvinnuhúsnæðis. Áætlaður fjöldi bílastæða er um 3400 þar af um 2900 stæði í niður-
gröfnum bílageymslum. Reiðleiðir milli svæðisins og Kópavogskirkjugarðs falla út. Gönguleiðir breytast. Ný undirgöng eru áætluð við Lindarveg. Áætlað
er að núverandi leikskóli Lindahverfi s verði stækkaður í takt við aukna íbúðarbyggð. Samhliða deiliskipulagsvinnu Glaðheima verður unnin tillaga að
deiliskipulagi Reykjanesbrautar frá mislægum gatnamótum við Arnarnesveg að gatnamótum Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar. Gert er ráð fyrir
breikkun Reykjanesbrautar í áföngum í samræmi við skýrslu Almennu verkfræðistofunnar dags. í desember 2007 og minnisblaði dags. 6 október 2008.
Tillagan er í samræmi við breytingu á Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001 -2024 sem staðfest var af umhverfi sráðherra 26. maí 2008 og sam-
þykktu aðalskipulagi Kópavogs sem staðfest var af umhverfi sráðherra 12. febrúar 2009.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 dags. 19. mars 2009, ásamt umhverfi sskýrslu dags. í maí 2009. Nánar vísast til kynningargagna.
Tillagan verður til sýnis á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fi mmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til
15:00 frá 19. maí 2009 til 16. júní 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is.
Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skrifl ega Bæjarskipulagi Kópavogs eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 7. júlí 2009. Þeir sem ekki gera
athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Smári Smárason,
skipulagsstjóri Kópavogs.
Haustpróf í verðbréfaviðskiptum
2009
Prófnefnd verðbréfaviðskipta stendur fyrir haustprófum í verð-
bréfaviðskiptum sem hér segir:
Próf úr I. hluta
17. ágúst 2009 Íslensk réttarskipun og Evrópuréttur, Ábyrgðir,
Ágrip úr réttarfari.
18. ágúst 2009 Viðfangsefni úr fjármunarétti, Félagaréttur.
19. ágúst 2009 Viðskiptabréfareglur, Veðréttindi, Þinglýsingar
Próf úr II. hluta
20. ágúst 2009 Grunnatriði í fjármálafræðum.
24. ágúst 2009 Greining ársreikninga.
31. ágúst 2009 Þjóðhagfræði.
Próf úr III. hluta
25. ágúst 2009 Lög og reglur um fjármagnsmarkaðinn.
26. ágúst 2009 Markaðsviðskipti og viðskiptahættir.
27. ágúst 2009 Helstu tegundir verðbréfa og gjaldeyrir:
Hlutabréf, Skuldabréf, Afl eiður og gjaldeyrir.
28. ágúst 2009 Fjárfestingarferli: Samval verðbréfa og
sjóðastýring, Ráðgjöf og skattamál.
Próftími er 4 klukkustundir og tímasetning hvers prófs er 09:00-
13:00.
Prófsefni greinir í prófsefnislýsingu prófnefndar verðbréfaviðskipta.
Í henni er jafnframt útlistað hvaða hjálpargögn eru leyfi leg í
einstaka prófum. Prófsefnislýsinguna má nálgast á vefsvæði próf-
nefndar verðbréfaviðskipta á heimasíðu viðskiptaráðuneytis:
http://www.vidskiptaraduneyti.is/profnefndir/nr/2844
Um prófi n fer samkvæmt reglugerð nr. 633/2003 um próf í verð-
bréfaviðskiptum.
Haustprófi n verða haldin í húsakynnum á vegum Endurmennt-
unar Háskóla Íslands, framkvæmdaraðila verðbréfaviðskiptaprófs
veturinn 2008-2009.
Einkunnir í einstökum prófum eru gefnar í heilum og hálfum
tölum frá 0 til 10. Til þess að standast verðbréfaviðskiptapróf þarf
próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr þeim prófum sem
hann hefur þreytt. Próftaki telst ekki hafa staðist einstök próf
hljóti hann lægri einkunn en 5,0.
Skráning í haustprófi n fer fram á vefsíðu Endurmenntunar Háskóla
Íslands, www.endurmenntun.is.
Skráningu í haustpróf lýkur 28. júní 2009, og verður greiðsla
prófgjalds að hafa farið fram fyrir þann dag.
Prófgjald vegna haustprófa er kr. 14.800 fyrir hvert próf. Vakin er
athygli á að haustpróf verða ekki haldin nema að a.m.k. 10 manns
hafi skráð sig í próf, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 633/2003 um próf í
verðbréfaviðskiptum. Ef ekki fæst nægur fjöldi í próf verður próf-
gjald endurgreitt. Tilkynning um haldin og felld haustpróf verður
send út til skráðra próftaka þann 1. júlí 2009.
Reykjavík, 16. maí 2009
Prófnefnd verðbréfaviðskipta
Ársfundur Byggðastofnunar
20.maí 2009, Hótel Reynihlíð við Mývatn.
Dagskráin verður sem hér segir:
Kl. 13:00 Setning fundarins, Örlygur Hnefi ll Jónsson,
formaður stjórnar Byggðastofnunar.
Kl. 13:05 Ávarp iðnaðarráðherra.
Kl. 13:20 Örlygur Hnefi ll Jónsson, ræða formanns stjórnar
Byggðastofnunar.
Kl. 13:35 Aðalsteinn Þorsteinsson, skýrsla forstjóra
Byggðastofnunar.
Nýting orkuauðlinda til svæðisbundinnar
uppbyggingar.
Kl. 14:00 Hvernig geta staðbundin stjórnvöld og sveitar
stjórnir haft áhrif? Reinhard Reynisson,
framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags
Þingeyinga.
Kl. 14:15 Áhrif stórra verkefna á sviði orkunýtingar á
nærsamfélagið og innviði þess. Helga Jónsdóttir,
bæjarstjóri Fjarðabyggðar.
Kl. 14:30 Orkuauðlindirnar og nýting þeirra, nýir orku-
gjafar. Dr. Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri.
Kl. 14:45 Starf Rammaáætlunar um nýtingu vatnsorku og
jarðvarma. Svanfríður Jónasdóttir, formaður
verkefnisstjórnar.
Umræður og fyrirspurnir.
Fundarstjóri verður Drífa Hjartardóttir,
stjórnarmaður í Byggðastofnun.
Kl. 15:30 Fundarlok.
- Allir velkomnir -