Fréttablaðið - 16.05.2009, Síða 64
40 16. maí 2009 LAUGARDAGUR
LEIKUR TVEIMUR SKJÖLDUM
Í EUROVISION-ÁHUGA
„Diggi-Loo Diggi-Ley (sigurlag
hinna sænsku Herryes árið 1984)
er eina Eurovision-lagið sem kemur
upp í hugann. Hlýtur það þá ekki
að vera uppáhaldslagið mitt?“ hlær
Helga Vala Helgadóttir, formaður
Reykjavíkurfélags Samfylkingar-
innar, þegar hún er innt eftir því
hvenær Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva hafi náð hæstum
hæðum.
Helga dregur þó fljótlega í land
með slíkar yfirlýsingar. „Gagnvart
börnunum mínum er ég auðvitað
einlægur aðdáandi keppninnar. En ef ég væri ein með sjálfri
mér býst ég fastlega við að ég myndi sofa herlegheitin af mér.
Ég varð þó fyrir miklu áfalli þegar ég, ásamt dóttur minni,
var stödd úti í Bretlandi árið 2000 og við gátum ómögulega
fundið sjónvarpsstöð sem sýndi frá keppninni. Þá rann upp
fyrir mér að líklega horfa fáir nema við Íslendingar.“
Helga spáir Jóhönnu Guðrúnu og fylgdarliði sjöunda sæti í
Moskvu í kvöld. „Ég veit samt ekki hvort lagið lendir í sjöunda
sæti ofan frá eða neðan frá. En ég tel fullvíst að það verði
annað hvort,“ segir Helga Vala Helgadóttir.
Uppáhalds
Eurovisionlögin
Vafalaust verður þorri landsmanna límdur við sjónvarpsskjá-
inn þegar Jóhanna Guðrún og fylgdarlið hennar stíga á sviðið
í Olimpiysky-höllinni í Moskvu í kvöld. Kjartan Guðmunds-
son náði tali af nokkrum valinkunnum andans mönnum og
konum og spurði þau um eftirlætislögin sem Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva hefur alið af sér.
BESTA LAGIÐ HEFUR SÖGULEGA SKÍRSKOTUN
MÁTULEGT Á ÍSLAND AÐ VINNA
„Þessi keppni er rusl og hefur
ekkert með tónlist að gera. Ég
hreifst með í Gleðibankaævintýr-
inu sem barn en síðan hef ég lítið
fylgst með þessu. Enda er keppnin
ekki innan míns áhugasviðs, sem
er tónlist,“ segir Kristinn Gunnar
Blöndal, einnig þekktur sem KGB,
tónlistarmaður.
Kristinn viðurkennir þó að
örfá fín lög hafi farið í gegnum
keppnina á þeim áratugum sem
Eurovision hefur verið haldin.
„Einu lögin sem koma upp í hug-
ann eru All Kinds of Everything með Dönu (sigurlag Íra árið
1970) og Waterloo (sem færði Svíum sigurinn árið 1974). En
þá skilst mér reyndar að keppnin hafi haft eitthvert vægi.“
Þrátt fyrir almenna andúð á Eurovision kom Jóhanna Guð-
rún Kristni þó skemmtilega á óvart. „Lagið sem hún syngur er
tilfinningavella með skólabókarhljómagangi en Jóhanna er,
mér til mikillar undrunar, frábær söngkona. Rétt skal vera rétt.
Enda hefur hún verið þjálfuð á kínverska vísu frá barnsaldri.
Það væri mátulegt á þjóðarplebbismann að sigra í keppninni
og sitja uppi með enn eitt víkingatengt skuldaævintýrið,“ segir
Kristinn Gunnar Blöndal.
SLÆR VOPNIN ÚR HÖNDUM KALDHÆÐNILIÐSINS
ALLTAF HALDIÐ MEÐ DÖNUM
Bjarni Felixson, íþróttafrétta-
maður, segist hafa fylgst með
Eurovision-keppninni með öðru
auganu í gegnum tíðina. „Oft hef
ég haft gaman af þessari keppni.
En mér finnst sérstaklega skemmti-
legt að fylgjast með stigagjöfinni.
Ég er ekki frá því að ég nálgist þetta
dálítið eins og íþróttakappleik.“
Spurður um uppáhalds Euro-
vision-lagið er Bjarni ekki í nokkr-
um vafa. „Ég hef oftast verið hrifinn
af framlagi Dana í keppnina og var
mjög kátur þegar Olsen-bræðurnir
sungu lagið Fly on the Wings of Love til sigurs árið 2000. Eins
fannst mér hitt sigurlag Danmerkur mjög gott (Dansevise, sem
Grethe og Jørgen Ingmann fluttu árið 1963). Ég er orðinn svo
gamall að flest eftirlætislögin mín eru að verða hálfrar aldar
gömul. Þessi nýrri tónlist höfðar ekki eins mikið til mín.“
Bjarni segir Íslendinga hafa að jafnaði staðið sig vel í Euro-
vision, og hann er ánægður með framlagið í ár. „Ég treysti mér
þó ekki til að spá fyrir um úrslitin. Það er jafnvel erfiðara að
spá fyrir Eurovision en knattspyrnu,“ segir Bjarni og hlær.
LANGT FRÁ ÞVÍ AÐ VERA MÍN DEILD
„Eurovision er mjög langt frá því að
vera mín deild hvað tónlist varðar.
Mér þótti þetta óhemjuleiðinlegt á
tímabili, en núna finnst mér þetta
aðeins meira gaman,“ segir pönk-
drottningin og fyrrverandi X-Factor
dómarinn Elínborg Halldórsdóttir,
sem einnig er þekkt undir nafninu
Ellý í Q4U.
„Ég á ekkert eftirlætis Eurovision-
lag, en ég á skemmtilegar bernsku-
minningar tengdar laginu All Kinds
of Everything með Dönu. Það lag
söng ég á skólaskemmtunum og
í afmælum þegar ég var lítil stelpa og kunni fram og til baka.
Mér þykir því dálítið vænt um það lag,“ segir Ellý.
Ellý óttast að óvinsældir Íslands vegna vangoldinna skulda
á alþjóðavettvangi geti komið niður á íslensku keppendunum
í stigagjöfinni í kvöld. „Það er samt aldrei að vita hvað gerist.
Keppnin er orðin dálítið öfgafull, með rosa dönsum og
trommum og öllu tilheyrandi, en mér finnst Ísland og Noregur
vera að fara í aðra átt en flestir hinna. Jóhanna Guðrún er auð-
vitað frábær og það sást strax á unga aldri hjá henni að hún
myndi ná langt. Svo er norski keppandinn svo rosalega sætur
og flottur,“ segir Elínborg Halldórsdóttir.
„Í dag er ég með lagið Save Your Kisses for Me
með Brotherhood of Man (sigurlag Breta í Eurov-
ision árið 1976) á heilanum. Vinkona mín var að
að raula það í vikunni og svo sá ég það í einhverj-
um Eurovision-þætti í sjónvarpinu fyrir nokkrum
vikum. Þetta er bara svo ógeðslega sætt lag, vel
heppnað popplag sem festist í höfðinu,“ segir
Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur, þegar
hún er beðin um að nefna eftirlætis Eurovision-
lagið sitt.
Guðrún bauð gestum heim til sín að fylgjast
með frækilegri frammistöðu Jóhönnu Guðrúnar
í undankeppninni síðastliðinn þriðjudag. Hún
stefnir á að endurtaka leikinn í kvöld. „Síðast eld-
aði ég rækjur en núna hef ég hugsað mér að elda gúllas. Hann
Gunni vinur minn verður afar spenntur og tilfinninga-
samur yfir keppninni og það hjálpar okkur hinum að
lifa okkur inn í þetta. Við þurfum nefnilega alveg á
smá hjálp að halda með það.“
Guðrún spáir því að íslenska lagið nái 10. sæti í
Moskvu í kvöld. „Ég hugsa að allir ættu að geta verið
ánægðir með það. Hún Jóhanna Guðrún er svo falleg
og yndisleg að það er ekki hægt annað en að halda
með henni. Hún slær
vopnin úr höndun-
um á kaldhæðni-
liðinu með því að
vera svona opin
og einlæg,“ segir
Guðrún Eva Mínervudóttir.
„Uppáhalds Eurovision-lagið mitt hefur mikla
sögulega skírskotun, enda fyrsta og eina lagið sem
sungið hefur verið á arabísku í keppninni þar til
nú,“ segir Stefán Pálsson, sem er sagnfræðingur
eins og Eurovision-smekkurinn gefur sterklega til
kynna. Framlag Ísraels til keppninnar í ár er sungið
á hebresku, arabísku og ensku.
„Þannig er mál með vexti að það eru ekki ein-
ungis Evrópulönd sem mega keppa í Eurovision,
heldur öll þau lönd sem eru meðlimir í Sambandi
evrópskra sjónvarpsstöðva, sem inniheldur nánast
öll ríki við Miðjarðarhafið. Þar á meðal er Marokkó
sem tók þátt í fyrsta og hingað til eina sinn árið
1980 með laginu Bitaqat Khub,“ segir Stefán.
„Þetta var í raun Gleðibanki þeirra Marokkómanna. Þeir
sendu skærustu söngstjörnu landsins í keppnina og bundu gríð-
arlegar vonir við lagið. Þær vonir brugðust, og Marokkóbúarnir
fundu þann sársauka sem við Íslendingar þekkjum allt of vel.
Lagið lenti í næstsíðasta sæti, rétt á undan Finnum.
Þetta urðu mikil og djúpstæð vonbrigði, og sagan
segir að konungurinn Hassan II hafi orðið svo fúll
að hann hafi fyrirskipað að Marokkó tæki ekki aftur
þátt í keppninni. Marokkó hefur ekki tekið þátt aftur,
líka vegna þess að landið vill ekki taka þátt í sömu
keppni og Ísrael.“
Stefán segist hafa haft áhuga á Eurovision á sínum
yngri árum, þegar Ísland var að stíga sín fyrstu spor í
keppninni. „Manni fannst rökrétt að fyrst Íslendingar
ættu heimsmeistara í aflraunum og fegurð ættum
við heimtingu á Evrópumeistaratitli í sönglist, en
okkur var svo kippt niður á jörðina í þeim efnum.
Hin síðari ár hefur þessi ástríða á keppninni, sem
jaðrar við þráhyggju, farið að skelfa mig. Þegar sú ákvörðun
var tekin að láta alla innlenda dagskrárgerð RÚV hverfast um
undankeppnina í fyrra, mettaðist áhuginn endanlega,“ segir
Stefán Pálsson.
ÞEKKTASTA EUROVISION-SIGURSVEITIN Hin sænska poppsveit Abba vann Eurovision árið 1974 með laginu Waterloo sem skaut sveitinni upp á
poppstjörnuhimininn þar sem hún fékk fastan samastað.