Fréttablaðið - 16.05.2009, Qupperneq 70
46 16. maí 2009 LAUGARDAGUR
RAGNHEIÐUR ELÍN
CLAUSEN ER FÆDD
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1968.
„Frægð og vinsældir
eru hverfular.“
Ragnheiður er ein af
ástsælustu þulum sem
komið hafa við sögu
hjá íslenska sjónvarp-
inu.
„Það var í apríl 1989 sem Stjórnin vann Landslagskeppn-
ina og rekur eiginlega upphaf sitt til þeirrar stundar því þá
fóru hjólin að snúast,“ segir Sigga Beinteins þar sem hún
situr á Gló ásamt söngvini sínum Grétari Örvarssyni við
að skipuleggja nýja Stjórnarsamstarfið. Hin geysivinsæla
hljómsveit þeirra er komin á keyrslu aftur og nýtt lag með
henni tekið að hljóma í útvarpinu. Það heitir Ekki á hverj-
um degi og er Stjórnarlegt lag sem gott er að dansa við. „Já,
við spiluðum sleitulaust í ellefu ár en tókum svo hlé þar til
nú,“ segir Grétar.
Í nýju Stjórninni eru Jóhann Ásmundsson á bassa, sem
var lengst af í gamla bandinu. Kristján Grétarsson (sonur
pabba síns) á gítar, Einar Bragi saxofónleikari og trommu-
leikari er Einar Valur Scheving.
Bæði segja þau Sigga og Grétar Eurovision-keppnirnar
það eftirminnilegasta frá fyrri tíð. Þau fóru tvisvar út með
Stjórnina, fyrst 1990 með Eitt lag enn og hrepptu fjórða sæti
og 1992 með Nei eða já sem varð í sjöunda sæti. „Sérstaklega
stendur ferðin til Zagreb 1990 upp úr,“ segir Grétar.
„Fyrst minnst er á ferðalög þá bjuggum við eiginlega í
rútu frá 1989 til 1994 því við vorum alltaf á ferðinni frá
fimmtudegi til mánudags,“ segir Sigga og viðurkennir að
þótt flökkulífið hafi verið skemmtilegt hafi vökur og þreyta
fylgt með. „Einu sinni sátum við í Vatnsskarðinu í átta tíma
í blindbyl eftir ball í Miðgarði, matar- og drykkjarlaus. Við
ætluðum að spila á Broadway kvöldið eftir en vorum sótt úr
Skagafirðinum og spiluðum á pöbb á Sauðárkróki í staðinn,“
segir hún og Grétar rifjar upp aðra vetrarferð, líka eftir ball
í Miðgarði. „Klukkan var sex um morguninn og við á leið
upp á Öxnadalsheiðina. Bílstjórinn þurfti að skipta um gír í
miðri brekku og rútan byrjaði að spóla og renna. Þá heyrð-
ist Sigga hrópa: „Allir út úr rútunni“ og við náðum að hoppa
út. Rútan endaði á rassinum utan vegar og við hefðum ör-
ugglega slasast ef við hefðum verið í henni.“
En eru þau tilbúin að fara í þennan gír aftur nú? „Ekki í
sama mæli og í gamla daga en við förum á flug,“ fullyrðir
Sigga. „Já, gott ef við endurvekjum ekki sveitaballamenn-
inguna aftur,“ segir Grétar og lofar að spila í stórum húsum
þannig að fólk geti dansað.
Fyrsta giggið er í kvöld í Vestmannaeyjum. Samt ekki fyrr
en eftir Eurovision í sjónvarpinu. „Við fylgjumst stíft með
keppninni,“ segir Sigga. „Ég fæ sjaldan gæsahúð vegna tón-
listar en ég upplifði það þegar ég hlustaði á Jóhönnu Guð-
rúnu á þriðjudaginn.“ gun@frettabladid.is
STJÓRNIN: 20 ÁRA MEÐ ENDURKOMU
Eurovision var
hápunkturinn
timamot@frettabladid.is
SIGGA OG GRÉTAR Segja ferðina til Zagreb eftirminnilegasta.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Alúðarþakkir sendum við öllum þeim er
sýnt hafa okkur vinarhug og samúð við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Jóns M. Guðmundssonar
Reykjum, Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir til bæjarstjórnar Mosfellsbæjar,
karlakórsmanna og annarra tónlistarmanna fyrir þá
virðingu sem minningu Jóns var sýnd við útförina.
Starfsfólki á Eir sendum við innilegustu þakkir fyrir
frábæra umönnun.
Málfríður Bjarnadóttir
Sólveig Ólöf Jónsdóttir Pétur R. Guðmundsson
Guðmundur Jónsson Þuríður Yngvadóttir
Helga Jónsdóttir Magnús Guðmundsson
Bjarni Snæbjörn Jónsson Björg K. Kristjánsdóttir
Eyjólfur Jónsson Auður Þórisdóttir
Jón Magnús Jónsson Kristín Sverrisdóttir
barnabörn og langafabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur vináttu og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Fanneyjar Oddgeirsdóttur,
frá Hlöðum, Grenivík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dvalarheimilinu Hlíð
fyrir nærgætna umönnun á undaförnum árum. Einnig
þökkum við séra Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur,
Kirkjukór Akureyrar, stjórnanda hans og orgelleik-
ara fyrir einstaklega hlýja og fallega kveðjuathöfn í
Akureyrarkirkju. Guð blessi ykkur öll.
Heiða Hrönn Jóhannsdóttir Birgir Stefánsson
Anna María Jóhannsdóttir Birgir Marinósson
Lilja Helgadóttir
Jóhann Már Jóhannsson Þórey S. Jónsdóttir
Svavar Hákon Jóhannsson Sigurbjörg Þ. Jónsdóttir
Kristján Jóhannsson Sigurjóna Sverrisdóttir
Haukur Jóhannsson Ragnheiður Haraldsdóttir
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
Ástkær systir mín og frænka okkar,
Fanney Samsonardóttir
Grundarlandi 9, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn
18. maí kl. 13.00.
Jón Samsonarson, Ómar Árnason og fjölskyldur.
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengda-
mömmu og ömmu,
Ragnheiðar Magnúsdóttur
Sléttuvegi 15, Reykjavík,
sem lést þann 13. mars sl.
Ómar Morthens Kolbrún Björnsdóttir
Heimir Morthens Þóra Kristín Sigursveindóttir
Gústaf Haukur Morthens Hanne Grethe Torkildsen
börn og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug, vegna andláts og útfarar ást-
kærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Kristbjargar A.
Magnúsdóttur
Tröllagili 14.
Sérstakar þakkir sendum við öllum þeim er önnuðust
hana af einstakri hlýju og kærleika í veikindum hennar.
Guð blessi ykkur öll.
Helgi Magnús Stefánsson Helga Kristjánsdóttir
María Sigurbjörg Stefánsdóttir Leiknir Jónsson
Svandís Ebba Stefánsdóttir Jóhannes Páll Héðinsson
Anna Kristín Stefánsdóttir Anfinn Heinesen
barnabörn og langömmubörn.
Kæra systir okkar, mágkona, og vinur,
Eyrún Ottadóttir
lést á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg sunnu-
daginn 26. apríl. Útförin auglýst síðar.
Guðríður Ottadóttir Lúðvík Eiðsson
Anna Ottadóttir Hilmar Smith
Auður Ottadóttir Ágúst Bjarnason
Erik Jönsson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Elísabetar Gunnarsdóttur
Ægisgötu 16, Akureyri.
Sérstakar þakkir til Heimahlynningar á Akureyri fyrir
kærleiksríka umönnun.
Hreinn Sverrisson
Gunnar B. Hreinsson Vilborg Helgadóttir
Guðbjörn S. Hreinsson Kalína Klópóva
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
Ásta Jónasdóttir
lést á heimili sínu Seljahlíð, Hjallaseli 55, Reykjavík
þann 29. apríl sl. Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jónas Bjarnason Kristín Hjartardóttir
Svavar Bjarnason Brynja Halldórsdóttir
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Jóns Kristinssonar
Lambey í Fljótshlíð.
Guðbjörg Jónsdóttir Jón Þorvaldsson
Þórhildur Jónsdóttir
Kristjana Jónsdóttir Guðjón E. Ólafsson
Sveinbjörn Jónsson Jaana Rotinen
Kristinn Jónsson Guðbjörg Júlídóttir
Katrín Jónsdóttir Helmut Grimm
Þorsteinn Jónsson Ásta Brynjólfsdóttir
Sigrún Jónsdóttir Jón Valur Baldursson
Gunnar Rafn Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
MOSAIK