Fréttablaðið - 16.05.2009, Page 82
58 16. maí 2009 LAUGARDAGUR
Listakonan Dita Von Teese, fyrr-
verandi kærasta hins ófrýni-
lega Marylins Manson, beraði
brjóstin uppi á sviði við æfingar
á lagi Þýskalands í Eurovision-
keppninni. Lagið nefnist Miss
Kiss Bang Bang og verður númer
sautján í röðinni í kvöld. Dita
ætlar að dilla sér uppi á sviði
þegar lagið verður flutt og von-
ast til að veiða einhver atkvæði
út á það.
Óvíst er þó hvort henni verður
leyft að sýna brjóstin þegar
kemur að beinu útsendingunni í
kvöld, enda milljónir manna við
skjáinn. Þó ber að hafa það í huga
að glitrandi stjörnur huldu geir-
vörtur hennar á æfingunni og
gæti atriðið því fengið grænt ljós
hjá skipuleggjendum keppninnar.
Dita Von
Teese dillaði
brjóstunum
DITA VON TEESE Sýndi á sér brjóstin uppi
á sviði við æfingar á þýska Eurovision-
laginu. NORDICPHOTOS/GETTY
Söngkonan Lily Allen ætlar ekki
að nota almenningssamgöngur í
bráð. Ástæðan er atvik sem átti
sér stað í neðanjarðarlest í Lond-
on fyrir nokkru.
„Síðast fór ég í neðanjarðar-
lest á nýárskvöld fyrir einu eða
tveimur árum. Ég var að reyna
að komast í miðborgina til að
heimsækja kærastann
minn og ég var alein,“
sagði hún. „Fólk byrj-
aði að hrópa á mig og
syngja „Smile“ og þá
byrjaði ég að gráta
og kallaði: „Látið
mig í friði.“ Þá
hugsaði ég með
mér að ég
myndi ekki
nota neðan-
jarðarlest
í langan
tíma á
eftir,“ sagði
hún.
Ferðast ekki
neðanjarðar
LILY ALLEN
Söngkonan vinsæla
er rög við að nota
almenningssamgöngur.
Kvikmyndaframleiðandinn Sigur-
jón Sighvatsson hefur verið áber-
andi í kvikmyndabiblíunni Variety
undanfarna tvo daga eða svo. Ann-
ars vegar í grein um aukið vægi
enskrar tungu í skandinavískum
kvikmyndum og hins vegar í frétt
um nýjustu kvikmynd Jason Stat-
ham sem hann framleiðir.
Blaðamaður Variety, Andrew
Stewart, veltir því fyrir sér í grein
sinni af hverju Norðurlandaþjóð-
irnar séu nú í síauknum mæli farn-
ar að gera kvikmyndir á ensku í
stað móðurmálsins. Sigurjón Sig-
hvatsson, íslenski kvikmynda-
framleiðandinn, verður fyrir svör-
um ásamt danska leikstjóranum
Lone Scherfig en hún hefur vakið
mikla athygli fyrir kvikmynd sína
An Education og var meðal annars
hrósað í hástert á Sundance-kvik-
myndahátíðinni.
Sigurjón segir samstarf Norður-
landanna og Bretlands hafa getið
af sér tækifæri fyrir leikstjóra frá
þessum löndum til að brjótast inn
á alþjóðlegan markað. Leikstjórar
frá Norðurlöndunum hafa í síaukn-
um mæli horft til Bretlands sem
heppilegs tökustaðar og nægir þar
að nefna víkingamyndina Valhalla
Rising sem sonur Sigurjóns, Þórð-
ur Snær, framleiðir. „Það skiptir
engu máli hversu vel kvikmynd
frá Skandinavíu gengur, hún mun
alltaf fá mjög takmarkað áhorf,
þannig að þegar allt kemur til alls
hefur þetta haft í för með aukna
landvinninga,“ útskýrir Sigurjón.
Hann tekur hins vegar skýrt fram
að tungumálið skipti ekki öllu. „Í
huga kvikmyndagerðarmanna er
það sagan sem skiptir mestu máli
og það er ekki hægt að keppa við
Hollywood í Ameríku. Til þess að
eiga einhvern möguleika á alþjóð-
lega sviðinu verður að hafa ein-
hverja einstaka sýn,“ segir Sigur-
jón og svo mörg voru þau orð.
Variety fjallar síðan um nýj-
ustu kvikmynd Sigurjóns, Killer
Elite, sem skartar harðhausnum
Jason Statham í aðalhlutverki.
Eins og Fréttablaðið hefur greint
frá er hún byggð á æviminning-
um sérsveitarmannsins Ranulph
Fiennes og segir frá því þegar
meðlimir Navy Seals voru hund-
eltir af leigumorðingjum út um
allar trissur. Samkvæmt Variety
kostar myndin ekki nema fjöru-
tíu milljónir dollara í framleiðslu
eða rúma fimm milljarða íslenskra
króna. Fram kemur að tökur verði
í London, París og Ástralíu en leik-
stjóri er Gary McKendry. - fgg
Sigurjón áberandi í Variety
ÞUNGAVIGTARMAÐUR Sigurjón Sighvats-
son er í viðtal við tímaritið Variety.
HASARHETJA Jason Statham er einhver
vinsælasta hasarhetjan í Hollywood.