Fréttablaðið - 16.05.2009, Side 83
LAUGARDAGUR 16. maí 2009 59
Mickey Rourke hefur tekið að
sér aðalhlutverkið í endurgerð
bresku glæpamyndarinnar Mona
Lisa sem kom út á níunda ára-
tugnum. Rourke leikur fyrrver-
andi fanga sem gerist bílstjóri
fyrir eftirsótta fylgdardömu. Eva
Green, sem lék í Bond-myndinni
Casino Royale, er í viðræðum um
að leika dömuna. Leikstjóri verð-
ur Larry Clark, sem er líklega
þekkastur fyrir hina umdeildu
Kids. Tökur á myndinni hefjast í
New York í júlí.
Bob Hoskins og Cathy Tyson
léku aðalhlutverkin í uppruna-
legu myndinni sem kom út 1986 í
leikstjórn Neils Jordan.
Rourke leikur
í Mona Lisa
MICKEY ROURKE Leikarinn kunni hefur
tekið að sér aðalhlutverkið í Mona Lisa.
Óskarsverðlaunahafinn Philip
Seymour Hoffman hefur kvart-
að undan því hversu erfitt það
sé að vera leikari. Í nýjustu
mynd sinni, hinni dramatísku
Synecdoche, New York, leikur
hann sjötugan mann. Þurfti hann
að taka á öllu sem hann átti til að
sýna sannfærandi leik.
„Ég þurfti að sannfæra fólk
um að ég væri sjötugur og væri
við dánarbeð dóttur minnar sem
ég hefði ekki séð í þrjátíu ár. Það
er töluverður sársauki sem fer í
slíkt. Að sýna þennan sársauka
er það sama og að vera dramat-
ískur. Það tekur á og er alls ekki
auðvelt,“ sagði Hoffman.
Erfitt að vera
dramatískur
PHILIP SEYMOUR HOFFMAN Óskarsverð-
launahafinn hefur kvartað undan því
hversu erfitt það sé að vera leikari.
Rapparinn Eminem segir að Sir Elton John hafi verið sér mikil
stoð og stytta undanfarin ár í glímu sinni við fíkniefnadjöfulinn.
Eminem og Elton sungu saman á Grammy-verðlaunahátíð-
inni árið 2001 og hafa allar götur síðan verið góðir vinir.
Rapparinn segist hafa hringt í Elton þegar hann var
háður lyfseðilsskyldum lyfjum, áfengi og meþadóni. „Ég
tala oft við Elton. Við urðum góðir vinir og núna tala ég
við hann um ýmislegt tengt tónlistarferlinum,“ sagði
Eminem. „Ég misnotaði vímuefni þegar ég var yngri.
Þegar ég vildi losna undan fíkninni í fyrsta sinn hringdi
ég í hann vegna þess að hann er í þessum bransa og
hefur reynslu af þessum lífsstíl.
Hann veit hversu erfitt getur verið að halda haus,“
segir Eminem. „Hann skilur hvernig þrýstingur
og aðrar ástæður fá mann til að nota fíkniefni.
Þannig að ég hringdi í hann og sagði: „Ég er
að ganga í gegnum erfiðleika og þarf á hjálp
þinni að halda“,“ sagði Eminem. Nýjasta plata
hans, Relapse, er á leiðinni í búðir en fimm
ár eru liðin síðan síðasta plata hans kom út.
Eminem þakkar Elton John
Ráðist var á Jeff Ament, bassa-
leikara Pearl Jam, á dögunum
fyrir utan hljóðver í Atlanta og
hann rændur. Hljómsveitin er
stödd í borginni við upptökur á
nýrri plötu með hjálp upptöku-
stjórans Brendan O´Brien.
Atvikið átti sér stað þegar
Ament og aðstoðarmaður hans
voru að leggja bíl sínum fyrir
utan hljóðverið.
Þá komu að þeim þrír grímu-
klæddir menn með hnífa og
heimtuðu peninga. Slógu þeir
Ament niður og höfðu með sér
rúma sjö þúsund dollara í verð-
mætum, eða um 900 þúsund
krónur.
Enginn hefur verið handtek-
inn vegna árásarinnar.
Bassaleikari rændur
PEARL JAM Bassaleikarinn Jeff Ament
var rændur á dögunum fyrir utan hljóð-
ver í Atlanta.
ELTON JOHN Elton
kynntist Eminem á
Grammy-hátíðinni
árið 2001.
EMINEM Rapparinn
snjalli hefur leitað
til Eltons John eftir
ráðleggingum.
Laugavegi 174 590 5000 www.hekla.is hekla@hekla.is
Reynslan er góð
HEKLA auglýsir eftir umsækjendum sem hafa áhuga á að starfrækja viðurkennd þjónustu-
umboð fyrir vörumerkin Volkswagen, Skoda, Audi, Volkswagen atvinnubíla og Mitsubishi.
Sérstaklega er leitað eftir umsækjendum á Vesturlandi, Vestfjörðum og Austurlandi.
Framleiðendur þessara vörumerkja gera miklar kröfur um fagleg vinnubrögð, afburðaþjónustu
við viðskiptavini og gæðaeftirlit á öllum stigum þjónustunnar.
Eingöngu viðurkennd þjónustuumboð hafa heimild til að framkvæma ábyrgðarviðgerðir og
innkallanir. Þá fá viðurkennd þjónustuumboð víðtækan stuðning frá HEKLU við uppbyggingu
og eftirfylgni á vottunartíma, sem og á gildistíma þjónustusamnings.
Áhugasamir sendi umsóknir í tölvupósti á netfangið gaedastjori@hekla.is eða í pósti
á póstfangið:
HEKLA hf.
b/t gæðastjóra
Laugavegur 172-174
105 Reykjavík
VIÐURKENND
ÞJÓNUSTUUMBOÐ