Fréttablaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 94
70 16. maí 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. vísupartur, 6. í röð, 8. kæla, 9.
spíra, 11. gjaldmiðill, 12. smyrsl, 14.
barátta, 16. pot, 17. blóm, 18. elds-
neyti, 20. 999, 21. blóðsuga.
LÓÐRÉTT
1. atlaga, 3. golf áhald, 4. Grænlend-
ingur, 5. spor, 7. félagsskapur, 10.
einkar, 13. málmþráður, 15. sjúkdóm-
ur, 16. kúgun, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. stef, 6. rs, 8. ísa, 9. ála, 11.
kr, 12. salvi, 14. glíma, 16. ot, 17. rós,
18. kol, 20. im, 21. igla.
LÓÐRÉTT: 1. árás, 3. tí, 4. eskimói, 5.
far, 7. slagtog, 10. all, 13. vír, 15. asmi,
16. oki, 19. ll.
„Ég syng alltaf í sömu brókunum þegar mikið liggur við, ég söng
í þeim í fyrra og verð í þeim líka núna,“ segir Friðrik Ómar Hjör-
leifsson, einn þriggja bakraddasöngvara Jóhönnu Guðrúnar á
Eurovision-keppninni í Moskvu.
Stóra stundin rennur upp í kvöld þegar íslenska föruneytið stígur
á stóra sviðið og flytur lagið Is it true? eftir Óskar Pál Sveinsson,
Tinu Japaridze og Chris Neil. Íslenska lagið var í síðasta umslaginu
á þriðjudagskvöldið en Friðrik Ómar segist aldrei hafa haft neinar
áhyggjur. „Ég vissi að við yrðum í þessu umslagi, ég var alveg hand-
viss um það,“ segir Friðrik enda var hann þá í svörtu brókunum með
rauðu röndinni sem á stendur „maraþon“. En þær þykja færa mikla
lukku þegar mikið stendur til.
Friðrik sér eiginlega alveg um hjátrúna í hópnum. Hann gaf
Jóhönnu Guðrúnu lítið íslenskt lukkutröll með íslenska fánanum á
maganum þegar þau voru búin að koma sér fyrir í græna herberg-
inu á þriðjudaginn. Lukkutröllið verður að sjálfsögðu með í för í
kvöld. „Mig minnir að það hafi verið einhver ungur aðdáandi sem
gaf mér þetta í fyrra og það fór með mér og Regínu til Serbíu,“
segir Friðrik.
Friðrik bendir síðan blaðamanni á þá skemmtilegu staðreynd að
bæði norska og gríska lagið hafi verið síðust í röðinni á fimmtudags-
kvöldið en þeim hefur verið spáð mikilli velgengni í keppninni í ár.
„Þeir voru bara að reyna að hafa þetta spennandi, þannig að ég held
að við höfum fengið alveg prýðilega kosningu.“
- fgg
Friðrik Ómar syngur í lukkubrókunum
LUKKUTRÖLL OG LUKKUBRÆKUR Jóhanna Guðrún með Eurovision-lukkutröllið sem
Friðrik Ómar gaf henni í græna herberginu. Sjálfur klæðist hann svörtum lukkubrók-
um með rauðri rönd sem á stendur „maraþon“. FRÉTTABLAÐIÐ/ALMA
Kristján Jóhannsson heldur stór-
tónleika í Laugardalshöll hinn 17.
október ásamt einvalaliði tónlistar-
manna. Tónleikarnir kallast
Kristján og vinir og mun óperu-
söngvarinn ástsæli sýna á sér nýja
hlið því hann mun syngja þekkt
íslensk popplög. Og nokkrir þjóð-
þekktir popparar munu reyna sig
við klassíkina. „Ég er bara alveg
ofsalega spenntur, ég átti þrjátíu
ára óperuafmæli í fyrra en þá var
svo mikið að gera hjá mér að okkur
gafst ekki tími til að halda upp á
það með almennilegum hætti. Nú
gerum við það hins vegar með
bravúr, þetta verður konsert ald-
arinnar,“ segir Kristján.
Talið berst síðan óvænt að
Jóhönnu Guðrúnu og frammi-
stöðu hennar í Moskvu en Kristj-
án hreifst af flutningi hennar. „Ég
hef lagt það til að þeir hjá Bravó
reyni að fá hana til að vera með.“
Ef Jóhanna á ekki heimangengt
kemur það ekki að sök því gestir
Kristjáns verða ekki af verri end-
anum. Þegar hefur verið gengið
frá því að systkinin Sigrún og Páll
Óskar Hjálmtýsson verði meðal
gesta. Þá mun tenórinn Gissur Páll
Gissurarson koma fram en hann
er gamall nemandi Kristjáns. Stór
strengjasveit og hljómsveit verða
á sviðinu en útsetningar verða í
höndum Þóris Baldurssonar. Ten-
órinn hlakkar mikið til að reyna
sig við hluti sem hann hefur aldrei
prófað áður. „Ég veit ekki með
rokkið, hvort ég legg í það, en ég
ætla allavega að poppa, þetta verð-
ur bara eitthvað fyrir alla, stóra
og smáa, unga sem aldna,“ segir
Kristján.
Tenórinn varð fyrir miklu áfalli
nýverið þegar móðir hans, Fanney
Oddgeirsdóttir, lést, 92 ára að
aldri. „Ég fæ þarna líka tækifæri
til að heiðra móður mína,“ segir
Kristján en mæðginin voru ákaf-
lega náin og ræddu saman í síma
mjög reglulega. „Við áttum góða
stund áður en hún fór, auðvit-
að er þetta gangur lífsins, maður
er samt einhvern veginn aldrei
undirbúinn undir þetta.“
Einn nánasti samstarfsmað-
ur og vinur til 25 ára er Björgvin
Halldórsson og hann mun að sjálf-
sögðu koma fram á tónleikunum og
vera vini sínum til halds og trausts
við skipulagningu þeirra. „Hann
komst á bragðið á jólatónleikun-
um mínum í fyrra og þetta verða
eiginlega fyrstu stórtónleikarnir
hans, ekki seinna vænna, Kristj-
án er í fantaformi,“ segir Björg-
vin í samtali við Fréttablaðið. „Við
erum þarna að búa til samruna
milli klassíska heimsins annars
vegar og dægurlagaheimsins hins
vegar þannig að úr verður svoköll-
uð poppera.“ freyrgigja@frettabladid.is
KRISTJÁN JÓHANNSSON: KOMST Á BRAGÐIÐ HJÁ BJÖRGVINI
Heiðrar minningu móður
sinnar með stórtónleikum
TURNARNIR TVEIR Kristján Jóhannsson og Björgvin Halldórsson ræddu saman yfir
hádegisverði á Vox í gær. Kristján heldur glæsilega stórtónleika um miðjan október
þar sem Björgvin verður að sjálfsögðu meðal gesta. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Maður er í léttu sjokki,“ segir rithöfundurinn
Steinunn Jóhannesdóttir sem lenti í því að brot-
ist var inn í bíl hennar og fartölvunni stolið. Í
henni voru drög að skáldsögu sem hún hefur
verið að vinna að síðustu ár. „Hún er komin til
ára sinna og geymir margra ára vinnu,“ segir
Steinunn um tölvuna. „Þarna er margt sem er
mér mjög dýrmætt, meðal annars ófullgerð
skáldsaga og alls konar rannsóknarskjöl og
fyrir lestrar,“ segir hún. Sagan fjallar um sögu-
legar persónur á 17. öld og er unnin í svipuðum
dúr og Reisubók Guðríðar Símonardóttur sem
hún gaf út 2001 við góðar undirtektir.
Glæpurinn átti sér stað fyrir utan heimili
Steinunnar að Þórsgötu í Reykjavík um hábjart-
an dag á fimmtudag og hefur hún kært verkn-
aðinn til lögreglunnar. „Rúðurnar voru í maski
og glerbrot úti um allt. Vinnan mín var bara
komin á flakk, innihaldið úr höfðinu á mér til
margra ára.“
Steinunn segist eiga afrit af ýmsu sem var
í tölvunni en alls ekki öllu. Hún segist alltaf
hafa verið dugleg að passa upp á tölvuna en
því miður gleymdi hún henni úti í bíl í þetta
eina skipti með þessum afdrifaríku afleiðing-
um. „Þetta var algjört óhapp því ég er mjög
passasöm,“ segir hún og biðlar til þeirra sem
geta gefið vísbendingar um afdrif tölvunnar að
hafa samband við sig í gegnum netfangið stein-
joh@akademia.is. Hún segir fundarlaun í boði
og telur að tölvan sjálf, sem er svört af gerðinni
IBM, sé ekki verðmæt, enda komin vel til ára
sinna. Gögnunum þarf hún aftur á móti nauð-
synlega á að halda til að geta lokið við skáld-
sögu sína.
Steinunn er ekki sú eina sem lent hefur í
atviki sem þessu. Fréttablaðið hefur nýlega
sagt frá því þegar tölvum Óskars Jónassonar
leikstjóra og Auðar Jónsdóttur og eiginmanns
hennar var stolið í miðbænum. - fb
Fartölvu með skáldsögu stolið
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Styrmir.
2 Sex.
3 Páll Winkel.
MIKILL MISSIR Rithöfundurinn Steinunn Jóhannes-
dóttir við bílinn þaðan sem fartölvunni var stolið. Í
fartölvunni var handrit að ófullgerðri skáldsögu ásamt
fleiru. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Morgunblaðið birti í vikunni frétt
um að Jónas Jónasson útvarps-
maður hafi boðist til að vera með
þátt á Rás 1 Ríkisútvarpsins á
sunnudögum kauplaust og Sigrún
Stefánsdóttir þáði með þökkum.
Þetta gerir Jónas því hann veit sem
er að þröngt er í búi og honum
þykir vænt um stofnunina. Hins
vegar gæti þetta reynst bjarnar-
greiði því þetta setur launamál
innanhúss í uppnám: hvað með
alla hina sem voga sér að þiggja
laun mánaðarlega fyrir sína vinnu?
Þó þetta mál sé ekki beinlínis á
borði Aðalbjörns Sigurðssonar,
formanns Félags frétta-
manna, fylgist hann
grannt með þróun mála
því þarna eru fetaðar
hættulegar brautir – ef
ætlunin er að reka
Ríkisútvarpið að
hluta til á framlagi
sjálfboðaliða.
Eurovision-dagur er runninn upp
bjartur og fagur. Rússnesku kynnar
keppninnar leggjast misvel í fólk en
þó hittu þeir óvart á einhvern besta
brandara sem sagður hefur verið í
Eurovision fyrr og síðar þegar þeir
sögðust vilja fá pólitískt hæli í land-
inu sem átti síðasta umslagið í fyrri
umferð forkeppninnar. Ísland!
Sverrir Stormsker var um hríð
með umdeilda þætti á Útvarpi
Sögu en ekki eru taldar miklar líkur
á því að hann snúi þangað til baka
eftir hlé heldur gangi til liðs við sinn
forna félaga, Ástþór Magnússon, á
Lýðvarpinu. Enda löngu uppgerð
skráveifa sem Sverrir gerði Ástþóri
þegar hann var með þátt á útvarps-
stöðinni Stereó árið 2001. Þar
þóttist Jóhannes eftirherma vera
Ólafur Ragnar Grímsson og Sverrir
fékk svo Ástþór í hávaða-
rifrildi við Ólaf í beinni
útsendingu. Ástþór sagði
í kjölfarið: „Ég tók hress-
ilega í hann,“ en var þá
bent á hvernig í pottinn
var búið og talaði
ekki við Sverri, þá
kosningastjóra
sinn, í tvö ár í
kjölfarið. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ólafur Friðrik Ólafsson
Aldur: 20 ára.
Búseta: Hafnarfjörður.
Staða: Nemi við Flensborg í Hafnar-
firði og Verslunarskóla Íslands.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Ólafur er kærasti Jóhönnu Guðrúnar
Jónsdóttur söngkonu og er staddur með
henni í Moskvu í kvöld.
250
ÓKEYPIS
KROSSGÁTUR
NÝ GÁTA
Í HVERRI VIKU
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
Auglýsingasími
– Mest lesið