Fréttablaðið - 23.05.2009, Side 2
2 23. maí 2009 LAUGARDAGUR
Sigurður, var þetta skot fyrir
neðan belti?
„Já, frá lélegri skyttu.“
Böðvar Guðjónsson, formaður körfu-
knattleiksdeildar KR, sagðist í Fréttablað-
inu í gær halda að Sigurður Ingimund-
arson hafi ekki haft pung til að taka
við þjálfarastöðunni hjá meistaraflokki
félagsins.
SKIPULAGSMÁL „Þetta er eins og rússnesk rúll-
etta og það hlaut að koma að því að bana-
slys yrði hér. Það var ekki fyrr búið að þrífa
Hringbrautina eftir slysið en bílarnir voru
aftur byrjaðir að spyrna. Ég trúði varla
mínum eigin augum,“ segir Sigríður Pét-
ursdóttir, íbúi á Hringbraut 44. Maður lést
í umferðarslysi á mótum Hringbrautar og
Birkimels á fimmtudagskvöld.
Sigríður segist ekki vita nákvæmlega
hvernig banaslysið bar að. Hins vegar hafi
ofsaakstur á Hringbrautinni verið viðvar-
andi vandamál eftir að brautin var breikkuð.
„Þetta er þriðja alvarlega umferðarslysið á
einu ári á þessum slóðum. Við höfum ítrekað
varað við þessu, sent fyrirspurnir til borgar-
yfirvalda, lögreglunnar, umferðareftirlits og
fleiri, en fengið fá svör.“
Sigríður segir marga íbúa við Hringbraut
krefjast aðgerða strax. Hún bendir á að
mögulegt sé að setja upp hraðahindranir sem
hamli spyrnuakstri en trufli þó ekki eðlilega
umferð. Einnig sé nauðsynlegt að setja upp
umferðarmyndavélar.
Að sögn Guðbrands Sigurðssonar, aðalvarð-
stjóra umferðardeildar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, hafa farið fram miklar hraða-
mælingar á Hringbrautinni og margir verið
sviptir ökuleyfi í kjölfarið. Sú hafi þó einnig
verið raunin áður en brautin var tvöfölduð.
Erfitt gæti reynst að koma upp hraðahindr-
unum á Hringbraut því um stofnbraut sé að
ræða.
Ólafur Bjarnason hjá Samgönguskrifstofu
borgarinnar segir að öll banaslys séu tekin sér-
staklega fyrir í samstarfi við lögregluna. - kg
Íbúar við Hringbraut krefjast aðgerða í kjölfar banaslyss til móts við Hólavallakirkjugarð í Reykjavík:
Hringbrautin eins og rússnesk rúlletta
BANASLYS Maður lést í umferðarslysi á Hringbraut á
fimmtudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STJÓRNSÝSLA Gylfi Magnússon við-
skiptaráðherra segir að á sama
tíma og ríkisbankarnir reyni að
fá sem mest út
úr sínum kröf-
um og gera
yfirtekin fyrir-
tæki lífvænleg
megi þeir ekki
ganga svo langt
að við það verði
keppinautarnir
ekki samkeppn-
ishæfir.
Samkeppniseftirlitið gaf út
leiðbeiningar fyrir slíkar yfir-
tökur eftir bankahrunið. „Ég tel
alveg víst að það séu einhver mál
af þessum toga komin til Sam-
keppniseftirlitsins enda hafa
ýmsir forsvarsmenn fyrirtækja
rætt við mig og boðað að þeir
sæju ekki aðra lausn sinna mála
heldur en að láta reyna á hvort
samkeppnislög hafi verið brotin.
Það er sjálfsagður réttur þeirra,“
segir Gylfi. - gar
Ráðherra varar bankana við:
Ekki má lama
keppinautana
GYLFI MAGNÚSSON
Maðurinn sem lést í umferð-
arslysi á mótum Hringbraut-
ar og Birkimels í Reykjavík
á fimmtudagskvöld hét Árni
Ragnar Árnason. Hann var
fæddur árið 1972 og lætur
eftir sig 11 ára son.
Lést í
umferðarslysi
EFNAHAGSMÁL „Þessi flétta hefur
meira og minna öll sést áður, en við
getum ekki farið nánar út í smáat-
riði málsins,“ segir Ólafur Hauks-
son, sérstakur
saksóknari. Níu
húsleitir voru
framkvæmdar
á vegum emb-
æt t i s Ól a fs
vegna rann-
sóknar á kaup-
um félagsins
Q Iceland Fin-
ance ehf. á 5,01
prósents eignar-
hlut í Kaupþingi.
Þrjár slíkar leitir til viðbótar voru
framkvæmdar á þriðjudag.
Til rannsóknar er grunur um
meinta markaðsmisnotkun og brot
á auðgunarbrotakafla hegningar-
laga í tengslum við kaupin, sem
fóru fram í lok september 2008,
skömmu fyrir fall Kaupþings.
Félagið Q Iceland Finance er
í eigu Sheik Mohamed Bin Kha-
lifa Al-Thani, fjárfestis frá Katar.
Kaupþing veitti Ólafi, sem á þeim
tíma var annar stærsti hluthafi
bankans, lán fyrir helmingi kaup-
verðsins í gegnum félag hans sem
skráð er á Jómfrúreyjum. Ólafur
endurlánaði svo Al-Thani upphæð-
ina. Alls námu viðskiptin um 25
milljörðum króna að þávirði.
Húsleitir voru meðal annars
gerðar hjá Samskipum og Kjalar,
fjárfestingarfélagi Ólafs Ólafs-
sonar, og á heimili Ólafs og fleiri
fyrum stjórnenda Kaupþings.
Einnig hjá Arion verðbréfavörslu,
dótturfélagi Kaupþings, og Cons-
olium, ráðgjafarfyrirtæki þeirra
Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrr-
verandi forstjóra Kaupþings, og
Ingólfs Helgasonar, fyrrum for-
stjóra bankans á Íslandi.
Að sögn Ólafs Haukssonar verða
hátt í tuttugu manns yfirheyrðir
vegna málsins, en yfirheyrslur eru
þegar hafnar. Nokkrir hafa réttar-
stöðu grunaðra en aðrir eru vitni.
Hann segist ekki geta gefið upp
hverjir hafi verið og verði yfir-
heyrðir. „Við þurfum að fá upplýs-
ingar hjá þeim sem hafa vitneskju
um málið og þennan gjörning til að
hann upplýsist. Það segir sig því í
raun sjálft hverjir eru þar efstir á
blaði,“ segir Ólafur.
Ólafur vill ekki gefa upp hvort
eitthvað hafi komið fram í yfir-
heyrslum sem staðfesti grun emb-
ættisins. Farið hafi verið vel í
gegnum öll gögn áður en ráðist var
í aðgerðirnar.
Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri
Nýja Kaupþings, staðfestir það eitt
að gerð hafi verið húsleit hjá bank-
anum og þar leitað að gögnum.
„Það er ekkert við það að athuga.
Við viljum gjarnan vinna vel og
dyggilega með stjórnvöldum að
því að rannsaka alla þætti sem upp
kunna að koma,“ segir Finnur.
Í gær náðist hvorki í Ólaf Ólafs-
son né þrjá helstu stjórnendur
Gamla Kaupþings, þá Sigurð Ein-
arsson stjórnarformann, Hreiðar
Má Sigurðsson forstjóra og Ingólf
Helgason, forstjóra Kaupþings á
Íslandi. kjartan@frettabladid.is
gar@frettabladid.is
Húsleitir vegna gruns
um milljarðamisferli
Húsleitir á tólf stöðum vegna rannsóknar á kaupum hlutabréfa í Kaupþingi rétt
fyrir fall bankans. Grunur um markaðsmisnotkun og brot á hegningarlögum.
Leitað á heimilum fyrrum stjórnenda bankans. Hátt í tuttugu yfirheyrðir.
ÓLAFUR
HAUKSSON
KAUPÞING Til rannsóknar er grunur um meinta markaðsmisnotkun og brot á auðg-
unarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við kaup Q Iceland Finance ehf. á fimm
prósenta hlut í Kaupþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐSKIPTI Hollenska ríkið var dæmt
til að greiða 106 milljón evrur, eða
um 18 milljarða íslenskra króna,
til hollenskra Icesave-innstæðu-
eigenda á miðvikudag.
Dómstóll í Hollandi, sem hefur
það hlutverk að dæma í málum er
varða greiðslu á almannafé, komst
að þessari niðurstöðu. Þessi upp-
hæð er hærri en hollenski fjár-
málaráðherrann hafði gefið upp.
Hann gerði ráð fyrir 92 milljónum
evra eða um 16 milljörðum króna.
Samkvæmt samningi sem hol-
lenska ríkið gerði við það íslenska
átti Ísland að tryggja innistæðu-
eigendum fyrstu 20.887 evrurnar
eða um 3,5 milljónir. - vsp
Dómur genginn í deilumáli:
Greiða 18 millj-
arða í Icesave
DÓMSMÁL Kennarar í Iðnskólanum
í Hafnarfirði eiga inni vangold-
in laun hjá skólanum fyrir árin
2004 til 2008. Félagsdómur hefur
úrskurðað um þetta.
Árið 2004 breyttist kennslu-
fyrirkomulag skólans á þann hátt
að að slegið var saman tveimur
fjörutíu mínútna kennslustund-
um, með fimm mínútna hléi á
milli, í eina sem stóð í 75 mínútur
án hlés. Styttingin var dregin af
launum kennara.
Kennarar töldu það brot á
kjarasamningi og höfðuðu mál.
Félagsdómur úrskurðaði að launa-
skerðingin hafi verið óheimil, þar
sem ekki var samið um þessar
breytingar við kennara. - kg
Iðnskólinn í Hafnarfirði:
Eiga inni van-
goldin laun
STJÓRNSÝSLA Kjartan Örn Sigurðs-
son, forstjóri Office 1, segir Ríkis-
kaup hygla nýjum félögum í eigu
banka á kostnað einkaframtaks-
ins.
Rammasamningar sem Ríkis-
kaup höfðu við gamla A4 og gamla
Pennann voru framseldir nýja A4
og nýja Pennanum. Þetta hefur Off-
ice 1 kært til kærunefndar útboðs-
mála.
„Ríkiskaup hefur með þessu lagt
blessun sína yfir kennitöluflakk
ríkisbankanna,“ skrifar Kjartan í
grein í Fréttablaðinu í dag.
Í svari Ríkiskaupa til kæru-
nefndar útboðsmála vegna kæru
Office 1 segir hins vegar að framsal
samninga gömlu fyrirtækjanna til
þeirra nýju hafi meðal annars verið
samþykkt til að tryggja viðskipta-
hagsmuni ríkisins varðandi næga
samkeppni á markaði og vöruval.
Slíkt framsal sé heimilt.
Kjartan segir rök Ríkiskaupa
ekki halda. Office 1 sé einnig aðili
að umræddum rammasamningi og
gæti auðveldlega fullnægt þörfum
ríkisins. „Þá bendi ég á að til þess
að mega taka þátt í útboði hjá Rík-
iskaupum þurfa fyrirtæki að hafa
staðið í rekstri í minnst sex mánuði.
Það hafa þessi nýju félög auðvitað
ekki gert,“ segir hann.
Félag íslenskra stórkaupmanna
hefur einnig gagnrýnt ákvörðun
Ríkiskaupa í þessu máli. „Ríkis-
kaupum er eins og öðrum óheimilt
að beita ólögmætum aðferðum við
að ná fram lögmætum markmiðum
sínum,“ segir í ályktun félagsins.
Sjá síðu 16 /- gar
Hörð gagnrýni frá forstjóra Office 1 sem telur félögum í skjóli ríkisbanka hyglað:
Ríkiskaup sögð blessa kennitöluflakk
KJARTAN ÖRN SIGURÐSSON Forstjóri
Office 1 segir fyrirtækið hafa getað
uppfyllt þarfir ríkisins fyrir ritföng og
skrifstofuvörur.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Ekki líkur á hernaðarvæðingu
Hverfandi líkur eru á að Norðurheim-
skautssvæðið verði hernaðarvætt á
næstu 20 árum, þrátt fyrir að lofts-
lagsbreytingar og bráðnun íss opni
aðgengi að nýjum auðlindum, segir í
nýrri danskri skýrslu.
GRÆNLAND
Harður árekstur í Auðbrekku
Einn var fluttur á slysadeild eftir harð-
an árekstur milli fólksbíls og jeppa
í Auðbrekku í Kópavogi á sjöunda
tímanum í gærkvöldi. Meiðsli hans
munu ekki vera alvarleg. Báðir bílarnir
eru mikið skemmdir.
UMFERÐARSLYS
SPURNING DAGSINS