Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 36
23.
2
„Fimm nemendur útskrifast að
þessu sinni eftir tveggja og hálfs
árs nám í skapandi ljósmyndun og
gefur að líta fjölbreytt verk þeirra
á útskriftarsýningunni,“ segir
Leifur Rögnvaldsson, yfirkenn-
ari Ljósmyndaskólans, en skól-
inn hlaut nýlega viðurkenningu
menntamálaráðuneytisins á því
námi sem hann býður og er þetta í
fyrsta sinn sem nemendur útskrif-
ast úr framhaldsdeild skólans.
„Sýningin er að Fiskislóð 79a,
baka til, og stendur frá 20. til 30.
maí en opið er daglega frá klukk-
an 16 til 20 virka daga en um helg-
ar er opið frá klukkan 13 til 18,“
útskýrir Leifur. „Auk þessa höfum
við alltaf verið með sýningu frá
nemendum sem lokið hafa eins árs
námi en hún verður opnuð 30. maí
næstkomandi.“
Ljósmyndaskólinn hefur verið
starfræktur frá árinu 1997. „Skól-
inn byrjaði sem námskeið sem
þróaðist yfir í að vera eins árs
nám fyrir frekara undirbúnings-
nám og er nú grunnurinn í nám-
inu hjá okkur. Fyrir tveimur árum
fórum við út í að gera annað við-
bótarnám þannig að í heildina eru
þetta fimm annir. Var það fyrsta
skrefið í að fá skólann viðurkennd-
an sem starfsnám og er það stórt
skref fyrir okkur og ljósmynd-
un á Íslandi,“ segir Leifur stolt-
ur. „Ljósmyndanám hefur verið
öðruvísi á Íslandi en tíðkast að öllu
jöfnu. Skólinn okkar er í raun sá
fyrsti hérlendis sem er samkvæmt
þeirri fyrirmynd sem tíðkast víða
erlendis og við lítum á námið sem
sköpun en ekki iðn. Þetta er skap-
andi nám rétt eins og tónlistar- og
kvikmyndanám.“
Liðlega tuttugu kennarar leið-
beina við skólann. „Við erum með
fasta kennara, stundakennara og
gestafyrirlesara. Þetta eru ljós-
myndarar, listamenn, hönnuð-
ir og markaðsfræðingar þannig
að tekið er á ýmsum þáttum sem
stuðla að almennri þekkingu í
ljósmyndun og sköpun en líka er
hugað að þeim veruleika sem blas-
ir við að námi loknu,“ segir Leifur.
Sýningin er hluti af lokaverkefni
útskriftarnema. „Á fimmtu og síð-
ustu önninni vinna nemendur að
sjálfstæðum verkefnum sem þeir
skapa sér sjálfir en hafa skólann
sér til aðstoðar til að leiðbeina og
veita tæknilega ráðgjöf, aðstöðu
og stuðning. Nemendur vinna
verkefnin í samvinnu við kennara
skólans sem samsvara hvað best
þeirri stefnu sem þeir marka sér
í verkefninu,“ útskýrir hann og
nefnir að verkefnin séu afar fjöl-
breytt og athyglisverð.
Umsóknarfrestur í Ljósmynda-
skólann rennur út 15. júní og í
framhaldi af því er valið inn í
skólann fyrir haustönn. „Tekið er
viðtal við umsækjendur og metið
út frá því. Annars eru inntökuskil-
yrði þau að nemendur hafi lokið
framhaldsskóla eða sambærilegu
námi. Skólinn áskilur sér þó rétt
til að veita undanþágur frá því
svipað og Listaháskólinn. Í skólan-
um eru nemendur á ýmsum aldri
frá tvítugu og upp úr og skapar
það skemmtilegt andrúmsloft,“
segir Leifur og hvetur alla til að
kíkja á sýninguna.
hrefna@frettabladid.is
Framhaldsnemar sýna
Ljósmyndaskólinn útskrifar nú nemendur úr framhaldsdeild í fyrsta sinn og af því tilefni sýna fimm nem-
endur verk sín á útskriftarsýningu. Leifur Rögnvaldsson yfirkennari segir verkin fjölbreytt og skapandi.
Leifur segir útskriftarsýningu nemenda Ljósmyndaskólans vera fjölbreytta en Heiða Björg Bjarnadóttir og Bergljót Þorsteinsdóttir
eru tvær af fimm nemendum sem útskrifast. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BÍÓHÚSIN eru vinsæl um helgar. Verið er að sýna nokkrar
góðar myndir um þessar mundir en á topp 5-listanum á Íslandi
eru: Angels & Demons, Star Trek, Hannah Montana, X-Men: Origins
og The Boat That Rocked. www.midi.is/bio
Báðir leikarar verksins Lostin,
sem frumsýnt er í Kassanum
í Þjóðleikhúsinu í kvöld, eru
heyrnarlausir.
„Það er draumur í dós að sýna í
Þjóðleikhúsinu,“ segir Margrét
Pétursdóttir, leikstjóri döff-leik-
verksins Lostin sem frumsýnt er
í Kassanum í kvöld. „Við erum að
leggja lokahönd á allt saman en
sýningin er nokkuð tæknilega flók-
in. Svo fer hún öll fram á táknmáli,
svo hún þarf að vera eins mynd-
rænt skýr og mögulegt er, svo allir
áhorfendur geti skilið hana.“
Sýningin er byggð upp á mörg-
um litlum sögum sem túlkaðar eru
bæði með dansi og leik. „Allir geta
skilið þessar sögur. Við prófuðum
búta úr verkinu á heyrandi fólki
og það komu hlátrasköllin utan úr
sal, svo það skildi alveg út á hvað
þetta gekk.“ En sýningin er ekki
bara fyndin. Hún er líka sorgleg
og jafnvel ofbeldisfull á köflum.
„Þetta er bara eins og lífið sjálft.“
Leikarar verksins eru tveir, þau
Elsa G. Björnsdóttir og Jan Fiura-
sek. Elsa hefur unnið í leikhúsi
og sjónvarpi um árabil og Jan er
atvinnuleikari frá Tékklandi sem
hefur ferðast mikið um heiminn og
leikið, leikstýrt og kennt leiklist.
Þau Elsa og Jan unnu leikverkið
sjálf en Margrét tók svo við því og
vann úr því endanlegt handrit.
Lostin verður sýnt á alþjóðlegu
döff-leiklistarhátíðinni Draum-
ar 2009 sem hefst á sunnudag.
„Það er kannski svolítið mikið að
halda leiklistarhátíð og frumsýna
á sama tíma, en það er óhætt að
segja að þetta hafi verið rosalega
skemmtilegir dagar,“ segir Mar-
grét, að vonum spennt, enda von á
á kringum 25 leikurum, fyrirlesur-
um, leikstjórum og kennurum víða
að á hátíðina. Hún segir allt mögu-
legt í gangi á hátíðinni sem allir
geti notið, bæði heyrnarlausir og
heyrandi. Dagskrána í heild sinni
má finna á www.draumasmidjan.
is. holmfridur@frettabladid.is
Lostin í Kassanum
Jan Fiurasek og Elsa G. Björnsddóttir
leika í verkinu Lostin sem frumsýnt er
í kvöld.
www.nora.is Dalve
opið: má-fö. 11-18,
laugard. 11-16
Úrval af
fallegum og
rómantískum
vörum.
Hillur, snagar,
gardínustangir
og festingar fyrir
baðherbergið,
eldhúsið,
forstofuna og
stofuna
FYRIR BÚSTAÐINN OG HEIMILIÐ
Opið: má-fö. 12-18, lau.11-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Tr y g g v a g ö t u 19 • 101 R e y k j a v í k
S í m i 5 62 5 0 3 0 • w w w . k o l a p o r t i d . i s
Kolaportið er
OPIÐ
laugardaga
og sunnudaga
frá kl. 1100-1700