Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 50
8 FERÐALÖG
Þ
etta gengur ekkert strák-
ar. Við erum að tapa tíma.
Fokkuna út, slaka bóm-
unni, tvö rif niður, passa
hausinn og allir tilbúnir í vendingu.
Koma svo. Það er bullandi byr. Svo
förum við í slökun á eftir og tökum
okkur kit-kat stopp,“ kallar flota-
foringinn Önundur Jóhannsson til
áhafnarmeðlimanna níu sem eru
komnir frá Íslandi til að taka þátt
í alþjóðlegri siglingakeppni, sem
haldin er á vorin og haustin í tyrk-
neska skútubænum Göcek.
Íslensku víkingarnir höfðu fjóra
daga í þrjátíu stiga hita til að hita
upp og stilla saman strengina í
Fethyie-flóa fyrir sjálfa keppn-
ina sem varði í fjóra daga. „Vinn-
ingslið þarf fyrst og fremst að
vera samstillt með snaggaralega
snerpu, hafa góðar græjur og síð-
ast en ekki síst flagga góðum skip-
stjóra,“ segir Önundur hlæjandi og
á þar að sjálfsögðu við sjálfan sig.
Lúxusfley í Miðjarðarhafi
Íslenska skútan Tobba trunta, sem
var meðal þátttakenda í keppn-
inni að þessu sinni ásamt fimmtíu
öðrum, er af gerðinni Jeanneau
45. Að auki á og rekur Önundur,
eða Önni eins og hann er gjarn-
an kallaður, tvær aðrar 45 feta
skútur, Íslandssól og Sóllilju auk
Sölku Völku, 49 feta skútu, sem
hann á með fleiri Íslendingum. Öll
eru skútunöfnin fengin úr smiðju
Nóbelsskáldsins Halldórs Laxness.
Skúturnar hans Önna, sem allar
sigla undir íslenskum fánum við
Miðjarðarhafsstrendur, eru mikil
lúxusfley enda nánast nýjar. Þeim
var hleypt af stokkunum í Frakk-
landi vorið 2006 og siglt í halarófu
til Tyrklands, 1.300 sjómílna leið.
Eftir það hófst útgerðarsaga Önna
í Tyrklandi sem hann segir að hafi
gengið þokkalega það sem af er
ævintýrinu. Skúturnar, sem búnar
eru öllum þægindum, leigir hann
út til áhugasamra siglara, sem búa
um borð og sigla svo um Fethiye-
flóa þar sem er að finna óteljandi
fallegar víkur og voga til að varpa
akkeri eða binda við bryggju, þar
sem hægt er að synda, sóla sig,
snorkla og fara í ýmsa könnunar-
leiðangra. Í mörgum víkum er svo
að finna litla krúttlega fjölskyldur-
ekna veitingastaði, sem gera ein-
göngu út á skútufólkið.
„Ég er nú að hefja mitt fjórða
rekstrarár hér í Tyrklandi á þessu
ári. Segja má að kúnnahópur-
inn minn samanstandi af þremur
jafnstórum þriðjungum, Tyrkjum,
Íslendingum og svo öðrum þjóð-
ernum. Og þegar Íslendingar eru
komnir á bragðið og hafa pantað
einu sinni skútusiglingu, koma þeir
gjarnan aftur og aftur. Það full-
vissar mig um að menn fara héðan
mjög ánægðir,“ segir Önni og bætir
við að skútuvertíðin standi að heita
má óslitið frá apríl til nóvember-
mánaðar. Skútubærinn Göcek, sem
er heimahöfn íslenska skútufyrir-
tækisins Seaways-sailing hefur nú
breyst á rúmum tíu árum úr því að
vera lítið fiskiþorp í líflegan bæ,
sem laðar að siglingafólk úr öllum
heimshlutum. Skútuhöfnin í Göcek
er ein af þeim vinsælustu við suð-
urströnd Tyrklands. Bærinn býður
upp á fjölbreytta þjónustu, svo
sem verslanir, markaði, góða veit-
ingastaði, hótel og gistihús, allt í
göngufæri frá höfninni.
Leigjast með eða án skipstjóra
Sjálfur fékk Önni „skútuveik-
ina” árið 1980 og hefur síðan siglt
víða, meðal annars í Karíbahaf-
inu, í Miðjarðarhafinu og við Taí-
landsstrendur. „Ég byrjaði á því
að kaupa mér skútu, sem aldrei
var afhent, en eftir þá reynslu
ákvað ég að halda mig við leigu-
markaðinn eða þar til ég í félagi
við aðra keypti Sölku Völku árið
1998.” Gömlu Sölkunni var skipt
út fyrir nýja 49 feta skútu fyrir
tveimur árum og er hún nú einn-
ig til útleigu hjá Önna ef eigend-
urnir eru ekki að nýta hana sér til
skemmtunar sjálfir. Auðveldast
er að nálgast skútubæinn Göcek
frá Íslandi með því að fljúga með
Úrval-Útsýn beint til Dalaman,
sem er 22 km frá Göcek, eða með
Vita til Bodrum-Milas, sem er 180
km frá Göcek. Að venju er tekið
vel á móti farþegum um borð í
skútunum, sem eru vel útbúnar
siglingatækjum, sjókortum, GSM
og leiðsögubókum með nákvæm-
um upplýsingum um allt siglinga-
svæðið. Fremur auðvelt er að sigla
um svæðið. Að mestu leyti er siglt
eftir auganu, en æskilegt er að
leigutakar hafi kunnáttu í siglinga-
fræði og notkun sjókorta sem og
meðhöndlun báts í höfn og á akk-
erislægi. Að öðrum kosti má alltaf
leigja sér skipstjóra með skútunni
gegn smá viðbótargjaldi. Í hverri
skútu er svefnrými fyrir allt að tíu
manns. Skútan leigist í heila viku
frá 2.300 evrum og upp í 3.500
„SVONA LEIKUM VIÐ
Slaka bómunni Önundur
leiðbeinir áhöfninni.
Sól og sæla Önundur við skútuna sína.
Siglingaþjóð Hér sést
yfir höfnina í Fetyie.
Fethiye-fl ói við Tyrklandsstrendur er einstaklega skemmtilegur til skútusiglinga
og það var ekki síst þess vegna sem útgerðarmaðurinn Önundur Jóhannsson, sem
hefur áralanga reynslu af skútusiglingum um heimsins höf, ákvað að setjast að í
tyrkneska skútubænum Göcek. Jóhanna Ingvarsdóttir fór í æfi ngabúðir til Önna
ásamt íslenskri áhöfn til að taka þátt í alþjóðlegri siglingakeppni á skútunni
Tobbu truntu, sem skartar íslenskum þjóðfána.
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Fréttablaðið
stendur upp úr
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað
landsins með glæsilegt forskot á samkeppnis-
aðila sinn eins og síðasta könnun Capacent
Gallup ótvírætt sýnir. Við erum auðvitað rífandi
stolt af þessum góða árangri og bendum
auglýsendum á að notfæra sér forskot okkar
þegar þeir velja auglýsingamiðil.
Allt sem þú þarft...
34%
74%