Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 23. maí 2009 23 170 milljarða á þremur árum? Við höfum reyndar verið að vinna með aðeins aðrar tölur. En það er gat sem þarf að loka með annaðhvort niðurskurði eða aukn- um tekjum … Hvaða tölur eru það? … og þótt þetta sé erfitt ástand og við höfum dregið saman um fjörutíu milljarða í fyrra, frá upp- haflegum áætlunum, þá höfum við ekki sparað inn að beini. Það segir sig sjálft að það eru matarholur síðan á árunum 1995 til 2008, sem voru þrettán uppgangsár. En á meðan við höfum ekki aðrar tölur en 170 milljarða, getur þú nefnt mér einn einasta milljarð þar sem á að skera niður? Við erum að hugsa út í marga kosti, en ég ætla nú ekki að byrja að telja fram milljarðana hér, með fullri virðingu fyrir Fréttablaðinu. Við þurfum að vinna þetta fyrst á vettvangi ríkisstjórnar og líka í samráði við aðila vinnumarkað- arins. Þeir eru að leggja grunn að kjarasamningum þar sem tekið er tillit til helstu hagstærða. Þá er mikilvægt að við komum að borðinu til að verja kjör og mynda umgjörð á vinnumarkaðnum. Skuldir heimila og fyrirtækja Hvernig svarar þú því að það sé ósanngjarnt að verið sé að fella niður margra milljarða skuldir í viku hjá fyrirtækjum en í staðinn lengja skuldir hjá einstaklingum til æviloka? Þetta er á nokkrum misskiln- ingi byggt. Það eru ekki felldar niður skuldir á fyrirtæki almennt. Þau fara í þrot og þá leysa bank- arnir þau til sín og koma þeim í hendur nýrra eigenda. Það er aldrei þannig að fyrri eigendur fái að halda fyrirtækjum og að skuldir séu skrifaðar niður. Það hefur hvergi gerst á undanförn- um mánuðum. En nýir eigendur kaupa fyrir- tækin án skulda og bankinn tekur á sig tjónið. Já, þeir kaupa þau þá og spreyta sig á að reka þau. Og það er alveg eins með fólk sem fer í þrot, að bankinn mun sitja uppi með það tjón. Aðgerðir okkar miða að því að greiða leið almennings til að halda lánum í skilum og standa undir skuldbindingum sínum. Blessunarlega er það ekki þannig að þorri heimila geti ekki stað- ið í skilum, þótt skuldabyrði hafi aukist. Ef þú horfir á verð- tryggðu lánin, þá er næstum eng- inn að verða fyrir meiri hækkun afborgana en sem nemur fimm- tíu þúsund krónum. En auðvitað eru heimili þar sem önnur fyrir- vinnan eða báðar hafa misst vinn- una, og geta ekki borgað. Það þarf að greiða þessu fólki leið. Með greiðsluaðlögun fasteignaveð- lána sköpum við leið fyrir fólk til að halda lánum í skilum á meðan á slíku erfiðleikatímabili stend- ur. Jafnframt hefur þú fyrirheit um að hægt verði að afskrifa það sem stendur út af í lok tímans. Þú borgar eins og þú getur á fimm ára tímabili. Ef skuldir eru þá meira en 110 prósent af mark- aðsvirði eignarinnar, þá er opnuð heimild til að fella þær niður. Þetta er bara fyrir þá allra verst stöddu … Í rauninni ekki. Ef annar aðil- inn missir vinnu og fólk á í erf- iðleikum, þá dugar þessi leið vel, sem og greiðslujöfnunarvísital- an. Hún getur tryggt tuttugu til fimmtíu prósenta lægri afborg- anir. Já, en það er sama skuldin. Það er talað um þetta sem réttlætis- mál, að þið hafið klúðrað öllu og ekki sagt frá því í hvað stefndi snemma 2008 og nú eigi almenn- ingur að borga brúsann. Þið feng- uð þessar eignir úr gömlu bönkun- um ódýrt. Af hverju eigum við að borga fullt verð? Þegar ríkið tekur yfir eign- irnar úr gömlu bönkunum, þá er miðað við að allir borgi eftir getu. Eina afskriftin sem þar fer fram er áætlað tap. Þetta er útbreidd- ur misskilningur að þarna verði til eitthvað fitulag. Og það er ekki þannig að það sé hægt að láta erlenda kröfuhafa borga fyrir allsherjar skuldaafléttingu. Við þyrftum að leggja byrðar á skattborgara, sem ekki mynd- uðu eignir, til að létta skuldum af þeim, sem tóku lán til að mynda eignir. Ég er alveg sammála því að það er ekki gott að lenda í þess- ari stöðu, en ég held að það yrði aldrei samfélagslegur friður um það ef ég losnaði við hluta þeirra skulda sem ég stofnaði til í eigna- kaupum og í staðinn eigi aldraðir eða ungt fólk að borga þetta, en ég haldi eignunum. Sama á við um breytingu vísitölu, hún kæmi úr ríkissjóði líka. Það fólk sem keypti eignir og stofnaði til skulda 2005 til 2008 er í sérstaklega vondri stöðu en fólk sem keypti eignir sínar áður er auðvitað fyrst og fremst að sjá pappírshagnað hverfa. Svo fremi sem það tók það ekki út í aukinni skuldsetningu, eins og mörg okkar gerðu. Í því fólst auðvitað áhætta, sem ég tók að hluta eins og aðrir. En margir gerðu þetta af illri nauðsyn. Verðtryggingin gerði ómögulegt að greiða niður inn- lend lán. Það var ónýt hagstjórn sem fékk marga út í þetta. Já, en af hverju voru vextir svona háir? Það var af því að mark- mið og skilaboð Seðlabankans voru að menn ættu ekki að taka lán. Þegar við tókum erlend lán vorum við að flýja hagstjórnarvald Seðla- bankans og tókum áhættu með því. Ég ætla ekki að fara að bera í bæti- fláka fyrir bankana eða þeirra vitlausu lánastefnu, en ég man nú samt eftir bankastjórum sem vör- uðu við því að fólk tæki lán í mynt sem það hafði ekki tekjur í. Við vorum ekki einhver sárasaklaus þjóð sem var troðið ofan í nauð- uga viljuga erlendum lánum. Hins vegar höfðum við byggt upp skuld- sett óheilbrigt samfélag, sem er nú komið að leiðarlokum. Nú verðum við að hefja efnahagslega viðreisn á traustari stoðum og traustum gjaldmiðli, þannig að verðmætin sem við sköpum skolist ekki út á haf með reglulegu millibili. Því það er lærdómurinn af íslensku krónunni. Hún kemur okkur allt- af í öngstræti og kallar yfir okkur kreppur. Sveiflurnar eru fylgifisk- ur þessarar veiku stoðar. Alþjóðasamningar og VG Nú erum við að brjóta EES með gjaldeyrishöftunum … Já, og það er eitt sem fór fram hjá hinum flokkunum í kosninga- baráttunni. Það er alltaf talað um hvað Samfylkingin sé upptekin af ESB, en það var aldrei nefnt í heilli kosningabaráttu annað en að það væri allt fínt í samskipt- um okkar við útlönd. En við erum ekki að uppfylla EES og þess vegna er ekki hægt að tala þannig að óbreytt ástand sé valkostur. Það að hér hafi verið eðlilegt að kaupa bíl á erlendu láni sýnir þetta betur en nokkuð annað. Við vorum öll að fara fram hjá krónunni, hvort sem það var með myntkörfu eða verðtrygg- ingu, því það er ekki hægt að nota hana. Við höfum alltaf verið að flýja. Heldurðu að VG sé þér sam- mála um þetta? Ég held að í VG séu sífellt fleiri að skilja að gjaldmiðillinn hefur áhrif á atvinnustefnuna. Með krónu byggjum við ekki upp smá- iðnað og þjónustu. Krónan krefst þvert á móti stórtækra ríkis- styrktra lausna á borð við stór- iðju. Áframhald íslenskrar krónu er ákall um endalaus álver. Sjálfbær atvinnustarfsemi verður reist með lágum vöxtum, stöðugleika og viðskiptum við önnur lönd. Þannig byggjum við upp heilbrigt atvinnulíf jafnt á höfuðborgarsvæðinu sem á lands- byggðinni. Enginn myndi græða jafn mikið á þessu og landsbyggð- in. Ég held að vinir mínir í VG séu að átta sig á þessu. FYRIR EFTIR FYRIR EFTIR FagMennt www.opnihaskolinn.is VILT ÞÚ STYRKJA STÖÐU ÞÍNA? KYNN T U Þ ÉR SÓ K N ARF ÆRI Á WWW.OPNI HAS KOLI NN. I S FagMennt Opna háskólans býður öflug og fjölbreytt námskeið sem hjálpa til við að styrkja stöðu þína. Kynntu þér námsframboð Opna háskólans. DIPLÓMANÁM Mannauðsstjórnun Hefst í ágúst Mannauðsstjórnun – Akureyri Hefst í ágúst Stjórnun og rekstur fyrirtækja Hefst í ágúst Markaðssamskipti og almannatengsl Hefst í ágúst Alþjóðaviðskipti Hefst í september Matstækni Hefst í september Markþjálfun (Coaching) Hefst í október Orkumál, auðlindastjórnun og loftlagsbreytingar Hefst í október LENGRI NÁMSKEIÐ Stök námskeið til eininga Hefjast í ágúst Viðurkenndir bókarar Hefst í ágúst Grunnur fyrir háskólanám með vinnu Hefst í september Nám til prófs í verðbréfa- viðskiptum Hefst í september Professional English Online Hefst í september Rekstrar- og fjármálanám Hefst í september Gerð fjárhagsáætlana Hefst í október Kínversk menning og viðskiptahættir Hefst í september STYTTRI NÁMSKEIÐ Professional Spanish Online Hefst í september Verkefnastjórnun Hefst í september Samruni fyrirtækja Hefst í september Samningatækni Hefst í október Siðferðið og viðskiptin? Hefst í október Excel – framhaldsnámskeið Hefst í október Basic Spoken English Hefst í október Lykilatriði í útflutningi Hefst í október Skráðu þig núna á www.opnihaskolinn.is Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Opna háskólans í síma 599 6360 eða í gegnum tölvupóst á fagmennt@opnihaskolinn.is. OPNI HÁSKÓLINN í háskólanum í reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.