Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 23.05.2009, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 23. maí 2009 11 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: 31 Velta: 35 milljónir OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6 260 +0,67% 708 +0,44% MESTA HÆKKUN ICELANDAIR 5,00% ÖSSUR 0,49% MESTA LÆKKUN BAKKAVÖR -7,09% MAREL FOOD SYS. -0,16% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,40 +0,00% ... Atlantic Airways 167,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 515,00 +0,00% ... Bakkavör 1,18 -7,09% ... Eik Banki 89,00 +0,00 ... Eimskipafélagið 1,00 +0,00% ... Føroya Banki 119,00 +0,00% ... Icelandair Group 4,20 +5,00% ... Marel Food Systems 61,40 -0,16% ... Össur 103,50 +0,49% Launavísitala í apríl 2009 er 355,4 stig og lækkaði um 0,2 prósent frá fyrri mánuði samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í gær. Kaupmáttur launa er nú sá sami og var í lok árs 2003 að því er Greining Íslandsbanka bendir á. Til samanburðar var launavísitalan í janúar 2007 311,5 stig. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,4 prósent. Vísitala kaupmáttar launa í apríl er 108,5 stig og lækkaði um 0,6 prósent frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 6,7 prósent. Tveir kjarasamningar voru gerðir á tímabilinu sem koma inn í útreikninginn. Kjararáð lækkaði laun dómara um 5 til 15 prósent. Í samkomulagi Félags prófess- ora við ríkisháskóla og fjármálaráðherra var kveðið á um greiðslu sérstaks álags vegna gildistöku nýrra háskólalaga. Greining Íslandsbanka bendir á að kaupmáttur launa hefur nú lækkað um 9,7 prósent frá því að hann náði sögulegu hámarki í byrjun síðasta árs, en laun hafi hins vegar hækkað um 0,6 prósent frá hruni bankanna í október. Verðbólgan hafi hins vegar étið upp þá hækkun og vel það. „Lækkunin undanfarið er meiri og hraðari en hér hefur mælst síðan á sam- dráttarskeiðinu um og eftir 1990. Kaup- máttur launa stendur um 8,9 prósentum hærra en hann gerði fyrir tíu árum síðan og 24,9 prósentum hærri en hann gerði fyrir tuttugu árum,“ segir í umfjöllun greiningardeildarinnar. Kaupmáttur launa er því enn sagður vera nokkuð hár, í það minnsta miðað við þau gildi sem þá voru. Lítilla launahækk- ana er hins vegar að vænta næstu mánuði að mati Greiningar Íslandsbanka, enda mikill slaki á vinnumarkaði. - vsp/óká Kaupmáttur eins og í árslok 2003 Í VERSLUNARFERÐ Kaupmáttur launa er enn fjórðungi meiri en fyrir tuttugu árum, þótt hann hafi minnkað frá hámarki í byrjun síðasta árs. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. Unnið er að endurfjármögnun lána hjá Nordic Partners sem er í eigu Íslendinga. Meðal annars er lúxus- hótelið D‘Angleterre og fleiri hótel í þeirra eigu sem keypt voru árið 2007. Landsbankinn fjármagnaði kaupin á hótelunum. „Þetta er búið að vera í gangi lengi [endurfjármögnunin]. Það gengur ekki erfiðlega en það geng- ur mjög hægt að fá lán,“ segir Jón Þór Hjaltason, einn eigenda Nord- ic Partners. Félagið hefur sérhæft sig í mat- vælaframleiðslu en á einnig hót- el fasteignir í Danmörku. Ætlunin er að leigja út reksturinn á hótel- unum D‘Angleterre og Kong Fre- drik og endurskipuleggja þannig reksturinn. Fyrirgreiðslu hefur félagið fengið í Tékklandi fyrir matvælafyrirtækið Hamé. - vsp Endurfjármögn- un gengur hægt D‘ANGLETERRE Hótelið hefur verið í eigu Íslendinga frá 2007. Gengið hefur hægt að fá lán til að endurfjármagna starfsemina. Austurhöfn-TR, sem er félag í eigu ríkis og borgar um byggingu Tón- listarhúss og ráðstefnumiðstöðvar, hefur skipað nýjar stjórnir í eign- arhaldsfélaginu Portusi og systur- félagi þess, Situsi, sem orðin eru dótturfélög Austurhafnar-TR. Í stjórn Portusar eru: Pétur J. Eiríksson, formaður, Björn Ingi Sveinsson, Björn L. Bergsson, Svanhildur Konráðsdóttir og Þór- unn Sigurðardóttir. Portus mun sjá um framkvæmdir við Tónlist- arhúsið og ráðstefnumiðstöðina og einnig um undirbúning reksturs og starfsemi í húsinu. Í stjórn Situsar eru: Pétur J. Eiríksson, Guðrún Valdimarsdótt- ir og Björn L. Bergsson. Situs mun eiga aðliggjandi byggingarreiti og sjá um umsýslu þeirra reita. - vsp Portus kaus sér nýja stjórn TÓNLISTARHÚSIÐ Dótturfélög Austur- hafnar-TR hafa kosið sér nýjar stjórnir. Félögin annast meðal annars byggingu Tónlistarhússins í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON bmvalla.is Söludeild :: Breiðhöfða 3 :: Sími: 412 5050 OPIÐ HÚS HJÁ BM VALLÁ UM LAND ALLT Fornilundur Laugardaginn 23. maí kl. 12 – 16. Opið hús hjá BM Vallá Í tilefni sumarkomu bjóðum við alla hjartanlega velkomna til okkar. Við kynnum garðvörur, byggingalausnir og vörur fyrir viðhald húsa. TILBOÐ Á BLÓMAKERJUM Í TILEFNI DAGSINS Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir, landslagsarkitekt heldur erindi um garðinn og nýtingu hans kl. 14 og 15. í Aðalskrifstofu BM Vallá, Bíldshöfða 7.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.